Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Page 253
HÖNNUN STÍFLUGARÐA VIÐ
NEÐRI HLUTA ÞJÓRSÁR
Atli Gunnar Arnórsson lauk B.S. prófi í umhverfis- og byggingarverkfræði frá HÍ árið 2003. Hann stundaði framhalds-
nám við HÍ og skiptinám við NTNU í Þrándheimi í Noregi og lauk meistaraprófi í byggingarverkfræði frá Hí árið 2005.
Atli starfar á Stoð ehf. verkfræðistofu á Sauðárkróki.
Sigurður Erlingsson, prófessor við byggingarverkfræðiskor Háskóla íslands, lauk B.S.prófi í jarðeðlisfræði frá Háskóla
íslands 1985,M.Sc.prófi í byggingarverkfræði frá KTH í Stokkhólmi 1988 og Ph.D.prófi þaðan 1993.
Útdráttur
Uppi eru áætlanir um að virkja fall Þjórsár frá Búrfelli til sjávar í þremur þrepum með Hvammsvirkjun, Holtavirkjun og
Urriðafossvirkjun. Þrjár tegundir stífluþversniða fyrir þessar virkjanir eru teknar til skoðunar í þessari grein.Tvö þversnið-
anna hafa þéttikjarna, annað úr fokjarðvegi, en hitt úr malbiki. Þriðja þversniðið hefur steypta þéttikápu á vatnshlið.
Virkjanasvæðin eru innan virka jarðskjálftasvæðisins á Suðurlandi,en í Suðurlandsskjálftunum árið 2000 mældist hröðun á
svæðinu allt að 0,84g. Umfjöllun um hönnun þversniðanna er tvískipt. Fyrst eru þau hönnuð með því að beita sneiða-
aðferðinni til þess að uppfylla kröfur um öryggisstuðul þversniðanna. Því næst er gerð hreyfifræðileg greining á þver-
sniðunum, þar sem notast er við einingaraðferðina,til þess að meta varanlegar formbreytingar við jarðskjálfta og ysjunar-
hættu. Þannig er tryggt að allar stíflugerðirnar eiga að standast það jarðskjálftaálag sem vænta má á svæðinu, með
staðbundum skemmdum þó. Ysjunarhætta í kjarnaefni virðist ekki vera fyrir hendi. Að lokum er gerður einfaldur kostn-
aðarsamanburður á stíflugerðunum þremur, sem sýnir að grjótstífla með jarðvegskjarna er hagkvæmasta stíflugerðin í
þessu tilviki.
Abstract
Three hydropower schemes are proposed in the LowerThjorsa River in lceland.Three different types of rockfill dams for
the proposed schemes are studied in this paper.Two have a central core of loessoidal soil and of asphalt concrete, respec-
tively.The third dam is concrete faced.The proposed building sites are in the South lceland Seismic Zone. In June 2000 two
major earthquakes of magnitude 6,6 and 6,5 (Mw) occurred near the sites, with a registered peak ground acceleration up
to 0,84g.The dam design as studied in this paper is twofold. First the method of slices is used to fulfill the stability require-
ments of the dam slopes. Secondly, the finite element method is used to perform dynamic analysis, to determine perma-
nent displacements due to seismic loading as well as liquefaction potential.The main result of the analysis is that all three
dam types should withstand the expected earthquake loading, with only minor damage. Liquefaction risk seems minimal.
Finally, a simple cost comparison between the three dam types shows that the dam with the earth core is the most cost
efficient one for this application.
Ritrýndar
vísindagreinar
2 5 1