Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Síða 254
Inngangur
Hjá Landsvirkjun eru uppi áætlanir um að byggja
þrjár virkjanir í neðri hluta Þjórsár, en í þeim er
áformað að virkja nýtanlegt fall árinnar frá
Búrfellsvirkjun til sjávar. Þessar virkjanir eru, talið
ofan frá, Hvammsvirkjun, Holtavirkjun og Urriða-
fossvirkjun. Einnig hefur verið skoðað að sameina
Hvamms- og Holtavirkjanir í eina virkjun, Núps-
virkjun, en stíflur þeirrar virkjunar yrðu að mestu
leyti sambærilegar stíflum Hvammsvirkjunar.
Helstu kennistærðir virkjananna þriggja er að finna
í töflu 1.
Virkjanirnar þrjár eiga það sammerkt að virkjanlegt
fall er ekki ýkja mikið, en á móti kemur að rennslið
er tiltölulega mikið, a.m.k. miðað við aðrar virkjanir
hér á landi, og því hefur þegar verið miðlað í efri
hluta árinnar, einkum í Þórisvatni og Hágöngu-
miðlun. Af þessum sökum er ekki þörf á sérstöku
miðlunarrými við virkjanirnar sjálfar, aðeins tiltölu-
lega litlum inntakslónum, og stíflur virkjananna því
lágar líkt og sést í töflu 1. Hæstar eru stíflurnar í
farvegi Þjórsár, en þeir hlutar stíflnanna sem liggja
upp með ánni eru mun lægri. Lengd stíflnanna er
hins vegar talsverð, enda landslag við neðri hluta
Þjórsár almennt flatt, og langar stíflur því nauðsyn-
legar til þess að koma í veg fyrir að óþarflega mikið
land fari undir uppistöðulón. í rammaáætlun um
nýtingu vatnsafls og jarðvarma á íslandi eru virkj-
anakostir í neðri hluta Þjórsár taldir í meðallagi
hagkvæmir, og umhverfisáhrif þeirra lítil miðað við
aðra vatnsaflsvirkjanakosti á landinu, sem er
einkum vegna smæðar uppistöðulónanna [10].
Meginhluti Neðri Þjórsár er innan virka jarðskjálfta-
beltisins á Suðurlandi, og rannsóknir hafa leitt í ljós
að virkar sprungur er að finna nærri fyrirhuguðum
virkjanastöðum [11]. Af þessum sökum má reikna
með að jarðskjálftaálag á virkjanasvæðunum geti
orðið mikið, og meira en á þeim svæðum sem
vatnsaflsvirkjanir hafa verið reistar á hérlendis til
þessa. I þessari grein er fjallað um greiningu og
hönnun jarðvegsstíflna fyrir virkjanirnar í neðri
hluta Þjórsár, einkum með tilliti til jarðskjálftaálags,
og þrjár tegundir stíflna teknar til skoðunar. Tvær
stíflugerðanna hafa miðlægan þéttikjarna, úr jarð-
vegi hins vegar og malbiki annars vegar, en þriðja
/ \
Tafla 1. Helstu kennistærðir virkjana í neðri hluta Þjórsár. Byggt á [2,8].
Hvamms- Holta- Urriðafoss-
virkjun virkjun virkjun
Uppsett afl [MW] 77 45 120
Virkjað fall [mj 32-34 18 40
Rennsli [m3/sj 300 310 344
Stærð inntakslóns [km2] 4,6 6,7 12,5
Mesta stífluhæð [m] 20 23 14
Lengd stíflugaröa [m] 2,2 2,2 4,3
2 5 2 | Árbók VFÍ/TFÍ 2006