Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Page 256
Hér hefur ekki verið tekið tillit til mikilvægisstuðulsins í EC8. Fyrir stíflumannvirki af því
tagi sem hér um ræðir, er líklegt að mikilvægisstuðulinn yt = 1,4 yrði valin, sem myndi
hækka grunngildi hröðunar á svæðinu í agR = 0,56g.
Hreyfifræðileg greining var framkvæmd með því að nota þrjár mældar tímaraðir úr
Suðurlandsskjálftunum árið 2000. Tímaraðirnar eru sýndar á mynd 6, en þær hafa verið
kvarðaðar til þess að meðaltal svörunarrófa þeirra falli að svörunarrófi svæðisins skv.
EC8, sjá mynd 5.
Tafla 2. Helstu efniseiginleikar stoðfyllingar og kjarna. Byggt á [1,4].
Þurr rúmþyngd: Ydry Stoðfylling 20,0 Kjarni 12,4 kN/m3
Vatnsmettuð rúmþyngd: Ysat 22,5 18,1 kN/m3
Holrýmistala: e 0,45 1,17 -
Viðnámshorn: 0 46,0 40,0 °
Þensluhorn: ¥ 16,0 10,0 0
Samloðun: c 0 0 kPa
Poisson's hlutfall: V 0,2 0,3 -
Lektarstuðull: k 10‘2 10-7 m/s
Jarðvegseiginleikar
Efniseiginleikar jarðefnanna sem nota á í stíflurnar
hafa verið rannsakaðir nokkuð ítarlega, einkum fok-
jarðvegurinn sem fyrirhugað er að nota sem kjarna-
efni [1]. Helstu efniseiginleika kjarnaefnisins og
stoðfyllingarinnar má sjá í töflu 2, en þeir eiginleikar
byggja m.a. á þríásaprófum, bæði stöðu- og hreyfi-
fræðilegum, sem gerð hafa verið á jarðefnunum.
Til þess að áætla skúfstuðul stoðfyllinganna er stuðst
við líkinguna
G —
625 ■ OCRk ■ p]~" ■ (crm J
= 18000-
(1)
þar sem <j'm er meðaltal virkra höfuðspenna og p„ = 100 kPa er viðmiðunarþrýstingur.
Veldisvísir meðalspennunnar er að jafnaði hafður n = 0,5 fyrir grjótfyllingu, og OCR = 1,0 [9].
Skúfstuðull kjarnaefnisins er ákvarðaður á sambærilegan hátt með líkingunni
Gmax = 3.230^^-p-OCRk- =4900 - (2)
þar sem OCR = 1,0 líkt og áður [7].
( ^
Tafla 3. Niðurstöður þríásaprófana á fokjarðvegi sem fyrirhugað er
að nota sem kjarnaefni í stíflurnar í neðri hluta Þjórsár. Taflan sýnir
fjölda álagslota, N, sem þarftil að framkalla 10% streitu í jarðvegs-
sýninu, fyrir tiltekið spennuhlutfall CSRtx, ásamt leiðréttu spennu-
hlutfalli CSRfjgtf. Byggt á [lj.
Sýni nr. CSR,X N CSRfjeid
1 0.406 546 0.292
2 0.507 163 0.365
3 0.608 106 0.438
4 0.710 56 0.511
V___________________________________________________J
Hreyfifræðileg þríásapróf hafa verið gerð á kjarnaefn-
inu til þess að ákvarða spennuhlutfall efnisins, CSR,
sem nota má til að segja um hvort hætta sé á að ysjun
verði efninu við jarðskjálfta. Hluta af niðurstöðum
prófana sem gerðar voru á hugsanlegu kjarnaefni
fyrir Hvammsvirkjun má sjá í töflu 3 [1]. Til þess að
niðurstöður þríásaprófana eigi við raunverulegar
aðstæður þarf að leiðrétta þær, sem er gert með
líkingunni
þar sem leiðréttingarstuðullinn er cr ~ 1,0 fyrir vel
þjöppuð jarðefni, y = 1,25 er öryggisstuðull skv. EC8
og CSRtx er óleiðrétt spennuhlutfall skv. þríásaprófi.
Hönnun þversniða
Til þess að ákvarða hver hliðarhalli stífluþversniðanna má vera mestur, miðað við tiltekið
jarðskjálftaálag, er hér stuðst við almennu sneiðaaðferðina, nánar tiltekið Morgenstern-
Price-aðferðina. Notast var við Slope/W hugbúnaðinn frá GeoSlope, með láréttu jarð-
skjálftaálagi á hverja sneið, sjá mynd 7. Hæð stífluþversniðanna sem hér eru tekin skoð-
unar er 16 m.
25 4, Arbók VFl/TFl 2 0 0 6