Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Page 265
svona mulningur er ákjósanlegur í slíka steypu. Slíkt hefði sparað
efnisnámur og minnkað rask er þeim fylgir á yfirborði, en þessi
kostur var áætlaður dýrari en hefðbundnar jarðstíflur.
Jarðhiti: Lítt áberandi mannvirki: Greinarhöfundur telur að eftir örfá
ár verði njijar jarðhitavirkjanir okkar gjörólíkar þeim er nú standa.
/ fyrsta lagi verða mun færri borplön, þ.e. 5-7 holur (stefnustýrðar
skáholur) verða boraðar frá hverju borplani (þegar er byrjað á
þessu á Hellisheiði). / öðru lagi verða lagnir að mestu niðurgrafnar
(tilraunir þegar hafnar hjá Hitaveitu Suðurnesja), eða málaðar
felulitum þar sem þær þurfa að vera ofanjarðar. I þriðja lagi verður
öllum jarðhitavessum sem afgangs verða dælt niður í borholur
umhverfis vinnslusvæðið til að losna við sjónmengun og lykt, en
ekki síst til að halda uppi þrýstingi svæðisins og þannig lengja líf-
tíma þess. / fjárða lagi verða öll hús, stöðvarhús, skiljuhús,
dæluhús, móttökuhús, o.fl. (t.d vatnstankar) höfð eins lítið áber-
andi og unnt er, annað hvort með dempuðum jarðarlitum sem falla
inn í umhverfið, eða að hluta eða öllu leyti niðurgrafin (sjá
mynd 5). Þannig gætu stöðvarhús væntanlegra viðbótarvirkjana á
Hellisheiði litið út eins og lítið móbergsfell sem gægjast upp úr
hraunasléttunni eins og fjöldi annarra lítilla fella á Hellisheiði
(Birgir Jónsson 2002). A þennan hátt er núna verið að ganga frá vatns-
tanki rétt ofan við stöðvarhús Hellisheiðarvirkjunar, en í raun hefði
einnig átt að ganga þannig frá stöðvarhúsinu sjálfu (sjá mynd 6).
Raflínur: Mikill vandi er að finna bestu leiðir fyrir raflínur frá
virkjunum að notkunarstað og eru því miður mörg slæm dæmi um
hvernig til hafi tekist, en raflínur ætti að staðsetja þannig að þær
séu sem mest í hvarfi frá helstu akvegum á og að viðkomandi
svæði þannig að ferðafólk hafi þær sem minnst fyrir augum er það
virðir fyrir sér umhverfið (sjá mynd 7). Sé ekki hægt að fela
línumar í landslaginu, þarf að gæta þess að þær beri ekki við
himin, heldur falli inn í landið eða hlíð að baki línunnar. Þarna má
hafa línumöstrin í mismunandi litum svo línan falli betur að land-
inu og eins gróðursetja trjágróður á völdum stöðum meðfram
vegum eða milli vegar og línu til að fela hana betur.
Hægt er að ímynda sér ákveðnar mannvirkjarásir, t.d. yfir
hálendið, sem væru 3-10 km á breidd. Ef aðalvegur um svæðið
lægi nálægt öðrum jaðri rásarinnar, þá ætti að vera hægt að koma
fyrir háspennulínu nálægt hinum jaðrinum, þannig að ekki þarf
nema lág hæðardrög þar á milli til að línan sjáist ekki frá veginum
eða sé lítið áberandi. Þarna skiptir miklu að hafa rétta liti á
möstrunum.
Einnig þarf alltaf að hafa í huga þarm möguleika að í stað viðbótar
raflínu sé sá möguleiki athugaður að endurbyggja línuna sem er
fyrir, þannig að unnt sé að hækka spennu hennar úr 220 upp í
400 kV og þar með auka flutningsgetu línunnar þrefalt (Birgir
Jónsson 2002).
Afturkræfni virkjana
Vatnsafl: Hér á landi eru mörg dæmi um lón eða stöðuvötn sem
hafa fyllst af seti og/eða ræst fram við það að áin sem rennur frá
umræddu lóni hefur grafið sig niður af einhverjum orsökum. Nær
Mynd 7.Raflínumöstur af öllum gerðum mynda
þennan mastraskóg við einn fjölfarnasta þjóð-
veg landsins á Hellisheiði. Nú er ráðgert að
bæta verulega við þennan„skóg" á næstunni.
Er ekki til betri lausn fyrir þessa fjölförnu leið?
Ljósm. Birgir Jónsson, okt 2006.
/
b
\ J
Mynd 8. Einfölduð snið um forn lón á hálendinu.
8a) sýnir langsnið af hinu forna lóni á
Eyjabökkum, sem var í jökulgrafinni dæld í
berggrunninum og er nú fullt af seti.
8b) sýnir þversnið af hinu forna Hálslóni sem
ræstist fram gegnum berghaft e.t.v.fyrir innan
við 1000 árum.
8c) sýnir langsnið hins forna Blöndulóns.Vatns-
borð núverandi Blöndulóns er 5-10 m hærra en
forna lónið.
8d) sýnir dæmigert þversnið fyrir skammæ
jökulstífluð lón við hörfandi meginjökul síðasta
jökulskeiðs sunnan núverandi vatnaskila á
hálendinu.t.d.á sunnanverðum Kili og sunnan
Sprengisands og á vatnasviði Markarfljóts.
8e) sýnir forn hraunstífluð lón ofan við Hraun-
eyjafoss sem fylltust af seti.Vatnsborð núver-
andi lóns er um 10-15 m hærra en sandsléttan.
Teikn BJ.