Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Page 278
5. Niðurstöður
í þessu verkefni hafa líkanútreikningar verið bornir saman við niðurstöður mælinga við
haust- og vetraraðstæður (með og án nagladekkja) á hljóðstigi í grennd við stofnbraut
með mikilli umferð. Út frá þessum samanburði er greinilegt að niðurstöðum mælinga og
líkanreikninga ber vel saman. Er því ljóst að reiknilíkið gefur góða mynd af hljóðstigi
lóðarinnar.
Af samanburði niðurstaða mælinga við haust- og vetraraðstæður má merkja að notkun
nagladekkja hafði ekki ráðandi áhrif á hljóðstig á lóðinni Markarholt á mælitíma. Ahrif
nagladekkja eru þó breytileg eftir fjarlægð frá hljóðgjafa þar sem nagladekkjahvinur er
við hærri tíðni en venjulegur dekkjahávaði. Því deyr nagladekkjahvinurinn hraðar út
með fjarlægð en annar dekkjahávaði. Auk þess hefur það mikil áhrif að þeir ökumenn
sem ekki nota nagladekk nota að jafnaði ónegld vetrardekk, sem eru grófmynstraðari og
mýkri en sumardekk. Grófara munstur minnkar „lofthljóð" frá dekkjunum og mýkra
gúmmí dregur úr veghljóði.
Hér hefur einnig verið gerður samanburður með hugbúnaðinum SoundPLAN á áhrifum
tveggja mismunandi hljóðmana. Höfðu þær báðar veruleg áhrif á hljóðstig á lóðinni.
Nærri hljóðuppsprettu er virkni hljóðmananna svipuð nálægt jörðu, en virkni hljóð-
manar 2 er meiri þegar hærra dregur. Fjær er virkni hljóðmananna tveggja nánast sú
sama.
Heimildaskrá
[1 ] Björg Helgadóttir (2004). Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar. Munnleg heimild.
[2] Braunstein + Berndt GmbH (2004). SoundPLAN User 's manual.
[3] Dómsmálaráðuneytið (1999).Reglugerð um hávaða 933/1999,. Dómsmálaráðuneytið, Reykjavík.
[4] Guðbjartur Sigfússon (2001). Negldir hjólbarðar og slit á malbiki. Lokaráðstefna BUSL. 6. apríl 2001. Reykjavík.
[5] Jacobsen, F. og Polack, J-D (2003). An elementary introduction to acoustics. Acoustic Technology, 0rsted.
[6] Línuhönnun hf. (2003). Notkun styrkts jarðvegs í mannvirki í vegagerð. Sótt 6. júlí 2006 af http://www.vega-
gerdin.is/upplysingar-og-utgafa/rannsoknarskyrslur/
[7] Maekawa, Z. og Lord, P. (1994). Environmental and architectural acoustics. E & FN SPON, London.
[8] Nordtest Method (2002a). NTACOU 039 - Road traffic:Measurement ofnoise immission - Engineering method. Nordtest,
Espoo.
[9] Nordtest Method (2002b). NT ACOU 056 - Road traffic: Measurement of noise immission - survey method. Nordtest,
Espoo.
[10] Ólafur Daníelsson (2005). Hljóðvist í nágrenni stofnbrautar - samanburður mælinga og líkanreikninga. Meistararitgerð,
Verkfræðideild Háskóla íslands, Reykjavík.
[11 ] Ólöf Örvarsdóttir (2005). Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkurborgar. Munnleg heimild.
[12] Road Traffic Noise - Nordic Prediction Method 1996 (1996).TemaNord 1996:525. Norræna ráðherranefndin.
[13] SoundPLAN (2006). Sótt 20. apríl 2006 af http://www.soundplan.com/.
[14] Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf (2004). Umferðarspár höfuðborgarsvæðisins - endurskoðun 2004. Sótt 25. sept-
ember 2005 af http://www.vegagerdin.is.