Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Síða 322
Tafla 3. Samanburður á mældum gildum og kröfum.
Hekla Kletta.8-10 Húsasmið. Kjalarv. 14 Byko Kjalarv. 16 ísheimar Vogabakki Efnissala GEJóhann Kröfur
Bygging Eiginþyngd og notálag [kN/m2 ] 40 60 60 40 60
Farghaugur Efni Möl Möl Möl Möl Möl
Hæð [m] 5,0 6,0 6,0 5,2 6,0
Álag [kN/m3] 100 120 120 104 120
Farg gegn Efni Möi Möl Möl Möl Möl
langtímasigi Hæð [m] 3,0 3,0 3,0 3,0 3,0
Álag [kN/m^] 60 60 60 60 60 60
Sig húss Mesta sig [mm] 8,2 3,0 4,1 6,5 <50
Minnsta sig [mm], lyfting +1,9 +0,7 +3,0 3,0
Mesta missig [mm] 10,1 3,7 7,1 3,5 <20
Halli [%o] 0,1 0,07 0,04 0,05 <2
Tlmi til útjöfnunar á 45 40 45 45
vatnsþrýstingi [dagar]
Fargtimi [dagar] 60 58 97 54 >90 >60
Mælt langtimasig [ár/dagar] 2/357 3/327 3/327 7/205
Niðurstöður
Sigspá er gerð eftir aðferð Janbus [10] og eru efnisstuðlar valdir út frá niðurstöðum prófa
í sigtæki. Samkvæmt reynslu frá öðrum verkum og niðurstöðum frá fergingum virðist
útreiknað sig vegna útjöfnunar á vatnsþrýstingi vegna álags vera +/- 10 til 20% af mældu
sigi sem telst þokkalegt.
Lítið er um mælingar á langtímasigi og hjá Faxaflóahöfnum er byggt á niðurstöðum sig-
mælinga á skjólgarðinum Ábóta. Samkvæmt niðurstöðum á samanburði á mældu og
reiknuðu langtímasigi yfir 15 ár er mælt sig svipað og útreiknað. Hönnun á hæð fargs
byggist meðal artnars á útreiknuðu langtímasigi og ætti því að vera rétt hvað varðar
þykkt fargs.
Húsreitir voru skilgreindir sem byggingarlóð þar sem mesta sig skyldi vera minna en 50
mm, mesta missig minna en 20 mm og halli minni en 2%o. Er þetta í samræmi við
Eurocode 7 [6], grein 2.4.6(7). Samanburður við mælt sig sýnir að öll húsin er innan þess-
ara marka og eru ekki taldar líkur á að sig verði meira en skilgreind mörk á meðan húsið
verður í notkun.
Lagt er til að við ný hús á svæðum Faxaflóahafna verði stuðst við sömu vinnureglur og
notaðar hafa verið. Er þar miðað við að farg samsvari eiginþyngd, notálagi og 60 kN/m2
viðbótarálagi til að mæta langtímasigi.
Tíminn sem farghaugar þurftu að standa var 3 til 4 mánuðir þar sem linu setlögin, bæði
náttúruleg og aðflutt, voru 15 til 20 m á þykkt en um 2 mánuðir þar sem setið var um
helmingi þynnra.
Valið var að meta áhrif fergingar á mótstöðu setlaga gegn jarðskjálfta með reikniaðferð
sem er sett fram í heimild [11] og byggir á OCR hlutfallinu. Samkvæmt útreikningum [12]
er OCR á bilinu 1,3 til 2,0 með meðalgildið 1,33 fyrir fargið og 1,70 fyrir líklegt gildi. Ef
miðað er við OCR 1,33 þá hækkar mótstaðan gegn ysjun eftir fergingu um 15% en ef
miðað er við 1,70 er hækkunin 30% sem er umtalsvert.
3 2 0 | Arbók VFl/TFl 2006