Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Side 339
blanda af steinefni og sementi sem nota skal sé innan leyfilegra marka miðað við ASTM
C 227 og eða ASTM C 1260. Þetta getur reynst erfitt þar sem ekki er til nein reglugerð hér
á Islandi sem segir til um þenslumörk steypublandna. Einnig má velta því fyrir sér hvort
þetta sé eðlileg krafa á hendur steinefnaframleiðendum, hvort ekki sé eðlilegra að það sé
ábyrgð steypuframleiðanda að sú steypa sem þeir framleiða sé innan þeirra marka sem
íslenskar reglugerðir setja.
Næstu skref
Við stöndum nú á þeim einstæðu tímamótum að geta nýtt afrakstur áratugalangra
innlendra og erlendra rannsókna og athugana, bæði á rannsóknarstofum og mann-
virkjum, til að þróa fljótvirkar og traustar prófunaraðferðir til nota í framtíðinni. Þetta
auðveldar iðnaðinum að bjóða upp á steypu sem er óvirk með tilliti til alkalívirkni.
Hönnun hf. hefur metnað til að taka virkan þátt í þeirri vinnu sem framundan er. Á
alþjóðavísu eru miklar vonir bundnar við nýju RILEM prófunaraðferðirnar, AAR-3 og
AAR-4, sérstaklega þá síðarnefndu. RILEM samstarfinu verður haldið áfram til að þróa
aðferðirnar enn frekar og verður Hönnun hf. sem fyrr virkur aðili að því samstarfi. Eitt
af áhersluatriðunum í því samstarfi er að rannsaka steypublöndur úr steypustöð en ekki
einvörðungu steypu sem er blönduð á rannsóknarstofu. Á þann hátt verður hægt að
kanna áhrif kornastærðardreifingar og ólíkra fylliefnablandna, jafnframt hvernig lág-
alkalísement og íaukar, s.s. kísilryk, flugaska og háofnaslagg, geta unnið gegn skaðlegum
áhrifum alkalívirkninnar.
Starf RILEM felst aðallega í því að safna saman fyrirliggjandi upplýsingum og reynslu
ásamt því að ráðast í nokkrar takmarkaðar rannsóknir sem hægt yrði að tengja við
athuganir af vettvangi. Hönnun hf. hefur hinsvegar bent á mikilvægi þess að hægt sé að
leggja fram nýjar og áreiðanlegar niðurstöður sem geti styrkt ákvarðanir RILEM-nefnd-
arinnar. Því hefur Hönnun hf. sett sér það markmið að eiga frumkvæði að því að afmarka
og skilgreina alþjóðlegt rannsóknarverkefni sem unnið yrði í nánu samstarfi við RILEM-
nefndina.
Árið 2008 verður 13. alþjóðlega ráðstefnan um alkalívirkni, ICAAR, haldin í Noregi
(www.icaar2008.org). Formaður vísindanefndarinnar, dr. Borge J. Wigum hjá Hönnun hf.,
bindur vonir við að fundurinn marki tímamót í þessum málefnum hjá hagsmunaaðilum.
Samantekt
Aðstæður á íslenskum steypumarkaði hafa breyst, í boði er aukið úrval sementsgerða og
íblendiefna og kísilryksíblöndun er breytileg. Einnig hafa þær tvær prófunaraðferðir sem
fyrirskrifaðar eru í Byggingarreglugerð verið gagnrýndar á alþjóðavettvangi. I báðum
aðferðum eru múrstrendingar prófaðir en ekki steypublöndur þannig að erfitt getur
reynst að meta áhrif stærri kornastærða og ýmissa íauka.
Hönnun hf. hefur komið sér upp metnaðarfullri aðstöðu á rannsóknarstofu sinni þar sem
rannsakaðar hafa verið þær evrópsku aðferðir sem verða notaðar í framtíðinni til að meta
alkavirkni. Niðurstöður þessa verkefnis leiða eftirfarandi í ljós:
• Kísilryk og lágalkalísement hafa lítil áhrif á niðurstöður AAR-2 prófsins, en þessi
prófunaraðferð er sambærileg C 1260 sem ásamt C 227 er fyrirskrifuð í Byggingar-
reglugerð. Þetta er túlkað á þann veg að AAR-2 prófið eigi eingöngu að nota til að
meta virkni fylliefnisins en ekki blöndu fylliefnis og sements þar sem virkt efni þýðir
ekki endilega að efnið sýni skaðlega alkalívirkni í steypublöndu.
• Niðurstöður C 227 prófsins sýna að þegar notað er 4% kísilryk mælist þenslan um
helmingur af því sem mælist þegar ekki er notað kísilryk. Einnig sýna niðurstöður að
ekki er gott samband milli múrstrendingaprófanna tveggja, AAR-2 og C 227.
Tækni- o g vísindagreinar i 3 3 7