Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Blaðsíða 340
• AAR-3 endurspeglar raunveruleikann best að mati höfunda en hins vegar er útlit
fyrir að hraðvirka steypustrendingaprófið (AAR-4) sé sú prófunaraðferð sem henti
best til að meta alkalívirkni að teknu tilliti til krafna um hraðvirkar prófunaraðferðir.
AAR-4 prófunaraðferðin er enn í þróun. Hönnun hf. hefur lagt fram tillögur að
innlendum og erlendum framhaldsrannsóknum.
• Nauðsynlegt er að finna raunhæf tengsl á milli þenslumælinga annars vegar og
ástands í mannvirkjum hins vegar í þeim tilgangi að tryggja að krítísk viðmiðunar-
mörk séu raunhæf. í ljósi þessa má ætla að kominn sé tími á ástandskönnun steyptra
mannvirkja á íslandi / höfuðborgarsvæðinu en slík könnun var síðast gerð árið 1991,
eða fyrir 15 árum.
Niðurstöður sýna að hraðprófunin AAR-2, en annað tveggja alkalíprófanna sem tilgreind
eru í Byggingarreglugerðinni er sambærilegt því prófi, sýnir mun meiri þenslur en hinar
prófunaraðferðirnar þrjár. Nýju steypustrendingaprófin frá RILEM virðast hentar vel til
að meta áhrif sements og íauka á aikalívirkni í steinsteypu og alkalívirkni mismunandi
fylliefna. Múrstrendingaprófið C 227 endurspeglar vel áhrif íauka en virðist sýna of lága
þenslu fyrir lágalkalískt sement sem hugsanlega má skýra með útskolun alkalísambanda
úr löngum og mjóum múrstrendingum. í ljósi þessa þykir ýmsum orðið tímabært að
endurskoða ýmis ákvæði Byggingarreglugerðar um prófunaraðferðir og viðmiðunar-
mörk vegna alkalívirkni.
Niðurstöður þessarar rannsókna ásamt áframhaldandi rannsóknum mun gera okkur
kleift að leggja grunn að reglum við nýja Evrópustaðla um alkalívirkni. Það er markmið
okkar að Island geti áfram verið í fremstu röð þeirra þjóða sem geta tekið á alkalí-
vandanum. Lokaskýrsla með ítarlegum niðurstöðum er væntanleg í árslok 2006.
Heimildir
[1] ÍST EN 206-1: 2000 + A1:2004 + A2:2005. Steinsteypa - 1. hluti: Tæknilýsing, eiginleikar, framleiðsla og samræmi.
(Concrete - Performance, production, placing and compliance criteria).
[2] Hákon Ólafsson og Þorgeir Helgason, 1983. Alkalívirkni steypuefna á Islandi og áhrifsalts og possoiana á alkallvirkni f
steinsteypu. Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins, Steinsteypunefnd, skýrsla nr.50,44 bls.
[3] Sveinbjörn Sveinbjörnsson, 1987. Alkalivirkni steypu eftir 1979 - Ástandskönnun, Rannsóknastofnun byggingariðn-
aðarins, skýrsla nr. V87-11,49 bls.
[41 Bjarni Þórðarson o.fl., 1991 .Alkalivirkniisteinsteypu -Ástandskönnun. Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins.skýrsla
nr. 91-13,25 bls.
[5] Byggingarreglugerð nr. 441/1998 með síðari breytingum. 2002. Umhverfisráðuneytið, bls.52.
[6] ASTM C 1260-01. Standard Test Method for Potential Alkali Reactivity of Aggregates (Mortar-Bar Methodle Annual Book
of ASTM Standards 2003, Section four Construction. Volume 04.02 Concrete and Aggregates.
[7 ASTM C 221-91 a. Standard test method for Potential Alkali Reactivity of Cement-Aggregate Combinations (Mortar-Bar
Method). Annual Book of ASTM Standards 2003, Section four Construction.Volume 04.02 Concrete and Aggregates.
[8] Gísli Guðmundsson og Jón Baldvinsson, 1996. Alkalivirkni fylliefna f steinsteypu. Rilem steypustrendingaaðferð.
Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins.skýrsla nr.96-19,6 bls.
[9] RILEM TC 106-2 [now AAR-2). Detection of potential alkali-reactivity of aggregates - The ultra-accelerated mortar-bar
test. Materials and Structures. Vol 33, no 229,2000, bls. 283-289.
[101 RILEM TC 106-3 [now AAR-3]. Detection ofpotential alkali-reactivity of aggregates - Method for aggregate combinations
using concrete prisms. Materials and Structures, Vol 33, no 229,2000, bls. 290-293.
[11] RILEM TC-ARP, AAR-4. Detection ofpotential alkali-reactivity. Accelerated method for aggregate combinations and con-
crete mix design using concreteprisms. Óbirt gögn.
[12] ASTM C C33-02a. Standard Specification for Concrete Aggregates. Annual Book of ASTM Standards 2003, Section four
Construction.Volume 04.02 Concrete and Aggregates.
[13] Fournier, B., Nkinamubanzi, P-C., Lu, D.,Thomas, M.D.A., Folliard, K.J. & Ideker, J.H., 2006. Evaluating Potential Alkali-reac-
tivity of Concrete Aggregates, How Reliable are the Current and new TestMethods. I. Benoit Fournier (Editor), Marc-André
Bérubé Symposium on Alkali-Aggregate Reactivity in Concrete, Montréal, Canada, May 2006, bls. 21 -43.
3 3 8 | Arbók VFÍ/TFl 2006