Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Page 353
Lýsing vandans
Þegar slökkviliðsmenn koma á brunastað þar sem búast má við reyksprengingu kunna
þeir að bregðast við á mismunandi hátt, háð nokkrum þáttum. Mismunandi aðferðir má
nota eftir því hvort fólk er enn eftir inni í byggingunni eða ekki og hvaða búnaður er til
ráðstöfunar, aðgengi að íbúðinni eða eldrýminu og þá á hvað stigi eldsvoðinn sé o.s.frv.
Það eru hinar sérstöku aðstæður á brunastað sem ákvarða hvaða tækni geti verið beitt. í
þeirri vinnu sem þessi grein lýsir voru sex mismunandi aðferðir bornar saman en komið
geta upp sérstakar aðstæður þar sem engin þeirra getur verið notuð. Þá geta líka komið
upp aðstæður þar sem aðrar en þær sex aðferðir sem ræddar eru í þessari grein eru
notaðar.
Tilhögun rýmis og val á aðstæðum
Til að bera saman áhrif mismunandi slökkviaðferða
er gert ráð fyrir þriggja herbergja íbúð. Byrjunar-
hitastig í herbergjunum þremur er sett í 573 K.
Tilgangurinn með því að velja þessi gildi og þetta
líkan er að lýsa herbergi þar sem eldur hefur verið
laus í langan tíma. Eldurinn er kulnaður vegna
skorts á súrefni þar sem engar dyr eða gluggar eru
opnir. íbúðin er líka vel einangruð þannig að hitinn
helst inni í íbúðinni. Geislunarvarmi hefur myndað
heitt gas úr brennanlegu efni eins og t.d. hús-
gögnum í herberginu. Gert er ráð fyrir háum styrk
(í þessu tilfelli 30%) af brennanlegum reyk í íbúðinni.
Hvert herbergi er 4 x 4 m og með 2,8 m lofthæð.
Þrennar dyr mælast 0,80 x 2,0 m, tvennar milli her-
bergja og einar útidyr að herbergi 1, en opnun
þeirra tilsvarar opnun við byrjun á hermun.
Herbergi 3 er með glugga sem er opinn í líkani 3 og 4.
Rúmmynd er sýnd á mynd 2.
Eftirfarandi aðferðir voru skoðaðar og skipt í 6 mismunandi líkön, í þessari grein eru ein-
ungis líkön 1, 3, 4 og 6 rædd:
• Líkan 1: Samanburðarlíkan, þar sem ekkert er aðhafst.
• Líkan 2: Slökkviliðsmenn fara inn í íbúðina til að bjarga mannslífum.
• Líkan 3: Náttúruleg útloftun íbúðar með opnun glugga á bakhlið.
• Líkan 4A: íbúðin er loftræst með yfirþrýstingsblásara (PPV) á lágum hraða 3,73 m3/s.
• Líkan 4B: íbúðin er loftræst með yfirþrýstingsblásara (PPV) á háum hraða 5,38 m3/s.
• Líkan 5: Röng notkun PPV.
• Líkan 6: Þynning óbrenndra lofttegunda, til að líkja eftir áhrifum vatnsúðunar með
notkun skurðslökkvitækis áður en opnað er. Líkt er eftir fjórum mismunandi stigum
þynningar, frá 25% magni af óbrenndum lofttegundum til 10%.
Astæðan fyrir vali þessara sértæku líkana er sú að þau fela í sér aðferðir sem eru venju-
lega notaðar af björgunarliði um allan heim þegar fengist er við vannærðan bruna.