Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Page 357
op. Eins eru til önnur tæki og aðferðir til að koma slökkvivatni undir háum þrýstingi inn
í brennandi rými án þess að gert sé stórt op á rýmið.
Við getum ákvarðað magn kæliáhrifa slíkra aðferða og ákveðið nýjan byrjunarhita sem
mun verða notaður við líkanahermunina. Gufi allt vatnið upp, þá er kælimagnið:
AH p V =(T -T, ,)C p V
wr' h’ H’ V m final > airr gas gas
V...
( ^in Tfinat ) Cqir Pgas ^ga,
AHwpw
(7)
(8)
Til að kæla allar heitar lofttegundir frá 300 niður í 100°C, uppgufunarhitastigið, má nota
jöfnu 8, sem gefur Vw=7,3 lítrar.
Tafla 2 sýnir að 16,1 lítrar eru nauðsynlegir til að ná lágmarksþynningu D(25), sem þýðir
að 100°C er byrjunarhitastig í þynningarútreikningunum.
Þegar engu nýju lofti er þrýst inn í íbúðina og engin náttúruleg loftun er notuð, þá tekur
útloftun lofttegundanna miklu lengri tíma heldur en við aðrar aðstæður. Samanburður
útreikninganna verður þess vegna gerður þegar fimm mínútur eru liðnar frá því að herm-
unin hófst. Eldfima svæðið fyrir þetta líkan í langan tíma er sýnt á mynd 7 hér að neðan.
Niðurstöður sýna að mjög hægist á
þyngdarsviðsloftstraumi vegna kæli-
áhrifanna. Hann fór með rúmlega 2 m/s
hraða og rakst á bakvegg herbergis 2 eftir
8 sek., við aðstæður sem gefnar voru fyrir
líkan 1, en hraði hans við 100°C er aðeins
1 m/sek. við. Jafnframt er jafnvægi eðlis-
massanna náð mjög fljótt, sem skapar
stöðugt ástand miklu fyrr en í líkani 1.
Niðurstöðurnar sýna að hlutfall metans
að gildi metanstyrks innan eldfima svæð-
isins eru oft nálægt LFL, samanborið við
önnur líkön, einkum eftir 200 sekúndur.
Þessar niðurstöður munu verða athug-
aðar betur í smáatriðum í næstu magn-
tengdri rannsókn. Við getum hins vegar
þegar sagt að til þess að þynningarað-
ferðin nái markmiði sínu verður að fram-
kvæma aðgerðina þar til lágmarksrúnv
málshlutfalli eldmats er náð (punktur
CVC á mynd 6). Þá mætti benda á að með
501/mín. skurðslökkvitæki tekur aðeins
55 sek. að hindra það að reyksprenging
geti átt sér stað við þær aðstæður sem hér
er lýst. Sé þessari þynningu ekki náð er
hættan á reyksprengingu til staðar.
Magntengdar niðurstöður
Hinar eðlistengdu niðurstöður hér að ofan gáfu góða lýsingu á vægi mismunandi líkana.
I þessum hluta eru þessi afköst magntengd að vissu leyti með því að bera saman lóðrétta
breidd eldfima svæðisins í miðju þriggja mismunandi herbergja.
Tækni- o g vísindagreinar i355