Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.04.1966, Blaðsíða 38
VIÐAUKI.
Síðan þessi flórulisti var skráður, 1931, hafa komið í leitirnar nokkr-
ar tegundir á þessu tiltekna svæði, sem ekki er getið í listanum. Eru
þær taldar hér á eftir.
226. Potamogeton pusillus, smánykra. — Vestmannsvatn hjá Sýrnesi. Fannst 1930, en var
ónafngreind í safni mínu, þegar flórulistinn var skráður.
227. Scirpus acicularis, vatnsnæli. — Kisakíl hjá Sandi. lireiður bekkur á löngu svæði
meðfram kílnum þéttvaxinn þessari tegund. Mest var það blómlaust, forma submersa.
Fannst 1930 en féll þá niður úr listanum.
228. Carex livida, fölvastör. — Mýlaugsstaðir, 1965. H. Hg.
229. Luzula sudctica, dökkhæra. — Sandur, mýrlendi nærri bænum. 1965. I'essi tcgund cr
líklega víða á svæðinu, en hefur verið ruglað saman við L. multiflora.
230. Myosotis palustris, engjamunablóm. — Skriðuland, deiglendi, nokkuð langt frá bæ og
ræktun. Fundin 1936.
231. Rhinanthus groenlandicus, eggjasjóður. — Fagranes í túnjaðri. 1963.
232. Festuca vivipara, geitvingull. — Víða, einkum í röku graslendi. Var áður talinn af-
brigði af F. ovina.
233. Hieracium alpinunt, fellafífill. — Til og frá í lyngbrekkum.
234. H. holoplcuroidcs, glókollsfífill. — Höskuldsey í Vestmannsvatni, 13. 8. 1961.
235. H. macrocomuni, brekkufífill. — Hólkotsey í Vestmannsvatni, 13. 8. 1961.
236. H. macropholidunt, tröllafífill. — Höskuldsey í Vestmannsvatni, 13. 8. 1961.
237. H. thulensc, skrautfífill. — Höskuldsey í Vestmannsvatni, 13. 8. 1961.
Undafíflagróður er fjölbreyttur og stórvaxinn á þessu svæði víða.
Safn mitt af þeim er ekki atlrugað til fulls, og verður þetta sýnishorn
að nægja um sinn.
Gvendarstöðum í nóvember 1965.
36 Flóra - tímarit um íslf.nzka grasafræði