Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.04.1966, Blaðsíða 40
yrði, og í öðru lagi lagði ég drög að heildarflóru eyjarinnar. í því, sem
hér fer á eftir mun ég svo gefa heildaryfirlit yfir þetta livort tveggja,
að svo miklu leyti, sem mér er unnt. Og á ég þar við, að ég hefi enn
ekki fengið nöfn á ýmsum þýðingarmiklum sýnishornum af mosum og
fléttum, sem ég liefi ekki sjálfur aðstöðu til að nafngreina.
Auk minna gróðurathugana leit ég eftir liðdýrum og lindýrum og
safnaði nokkru.
GRÓÐURJLENDI.
Nefna má fimms konar gróður:
Mólendisgróður (grasmór).
Valllendisgróður (tún).
Mýrlendisgróður.
Vatnagróður.
Strandgróður.
Mólendið: Allur miðhluti og nokkuð af norðurhluta eyjarinnar er
einn samfelldur, þýfður grasmór, og má segja að hvergi bryddi á upp-
blásnu landi; eru því eiginlegur mela- og flagagróður óþekkt fyrir-
brigði, nema í nánd við Hvaltjörn (og örlítið á öðrum stað), þar sem
vatnið hefur tortímt megingTÓðrinum á litlum blettum; hafa fáeinar
flagaplöntur náð þar bólfestu, og er því utbreiðsla þeirra aðeins bund-
in við þessa staði. Má hér til nefna: Juncus biglumis, J. triglumis, J.
bufonius, Sagina nodosa, Sedum villosum og Koenigia.
Móagróðurinn er líkur að samsetningu á hinum ýmsu stöðurn; þó
getur munað nokkru á magni tegundanna eftir legu staðarins. Á eynni
sunnanverðri hallar mólendinu sums staðar mót suðri eða suðvestri,
og er því gróðurinn þar nokkuð frábrugðinn því venjulega; hafa vall-
lendis tegundir numið þar land. Og á stöku stað rennur tún og mór
saman í óaðgreinanlega samfellu. Ríkjandi tegundir, þ. e. þær teg-
undir, sem setja svip sinn á mólendið eru: Juncus trifidus, Kobresia
og norðaustan á eynni: Alchemilla alpina. Þá er allmikið af Festuca
rubra, F. ovina, Thymus, Euphrasia, Polygonum viviparum, Luzula
multiflora. Aðrar dreifðari tegundir má nefna: Galium verum, Viola
palustris, V. canina, Carex rigida, Luzula spicata, Thalictrum, Botri-
chium lunaria, Cerastium caespitosum, Selaginella, Parnassia, Salix her-
bacea, Poa pratensis, Trisetum, A?ithoxanthum, Agrostis tenuis, A.
canina.
38 Flóra - tímarit um íslenzka grasafræði