Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.04.1966, Blaðsíða 5
FRA RITSTJORNINNI
Ei glóir æ á grœnum lauki, sú gullna dögg um morgunstund . . . .
Svo er því einnig farið með Flóru okkar að hamingjan er henni ekki
alltaf jafn hliðholl. Siðasta hefti varð dýrt og enn eykst útgáfukostm-
aður liröðum skrefum. Ríkisstyrkur til útgáfu frœðirita virðist eklii
liggja á lausu, etida útlit fyrir, að við liöfum verið sviptir þeim litla
styrk, sem þaðan hefur komið. Ekki hefur Vísindasjóður heldur feng-
izt til að styrkja útgáfuna, þrátt fyrir itrekaðar beiðnir, og finnst oss
það þó vera i hans verkahring, og vist. er það, að fræðirit, sem gefin
eru út í nágrannalöndum okkar, njóta flest mikilla styrkja úr hlið-
stœðum sjóðum.
Hins vegar hafa stofnanir á Akureyri enn orðið til að veita ritinu
lið. Má þar fyrst og fremst nefna Bókaforlag Odds Björnssonar, sem
sér um prentun og útgáfu ritsins, með slikum ágætum, að vakið hefur
athygli viða um heim. Viljum vér þar sérstaklega þakka prentsmiðju-
stjóranum, Geir S. Björnssyni og yfirmanni teiknistofunnar, Kristjáni
Kristjánssyni, sem báðir hafa lagt sig fram við að gera ritið sem bezt
úr garði. Þess má geta að Kristján hefur teiknað kápusíðu þá, sem frá
upphafi hefur verið búningur Flóru. Hefur ritið jafnan átt góðan hauk
í horni, þar sem Kristján er.
Forlagið hefur enn lýst sig fúst til að halda útgáfu ritsins áfram,
þrátt fyrir nokkra skuldasöfnun af hálfu þess, og þvi er það, að fjórði
árgangur þess sér nú dagsins Ijós.
Þá hefur Kaupfélag Eyfirðinga i þriðja sinn veitt okkur styrk úr
Menningarsjóði sinum. Viljum við færa stjórnarmönnum þess sjóðs
sérstakar þakkir fyrir þessi rausnarlegu framlög. Mætti fordæmi Kaup-
félagsins vera öðrum verzlunar- og iðnaðarstofnunum bæjarins til eftir-
breytni.
Þrátt fyrir þessi. framlög, höfum við ekki séð okkur fært að hafa
ritið nema tæpar sjö arkir að þessu sinni, eða minna en jafnan áður.
Ekki þótti heldur fært að hafa litmynd i heftinu, en til að bæta það
upp voru teknar nokkrar svarthvitar myndir i það.
TÍMARIT UM ÍSLENZKA GRASAFRÆÐI - FlÓra 3