Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.04.1966, Blaðsíða 80
Blettir XXVII. 8 Fljótsheiði, 380 m, 9 Miklimór, um 400 m eru
dálítið frábrugðnir hinum blettunum að tegundum. Þarna er t. d.
bugðupuntur Deschampsia flexuosa) svo mikill, að tala mætti um
bugðupunts afbrigði. Aðrar tegundir þessara bletta, sem annaðhvort
vanta eða eru sjaldséðar á hinum stöðunum eru: hvítmaðra Galium
pumilum), gulmaðra (G. verum), blóðberg (Thymus arcticus), vall-
humall (Achillea millefolium) og brjóstagras (Thalictrum alpinum).
Staðhættir í XXVII. 8 eru þó í engu sýnilegu frábrugðnir því, sem
fyrr er lýst í sambandi við rofbörð, en sennilega er snjóþyngra þarna.
Blettur XXVII. 9 er í samhengi við blett XXII. 4 (krækilyngs-fjall-
drapa hverfi) og er staðháttum lýst nánar við það hverfi. Vafalítið er
snjór þar dýpri en vant er í loðvíðihverfinu.
Eftirfarandi tafla sýnir meðaltöl lífmynda og tegundaflokka runna-
heiðarinnar. Mér er fyllilega ljóst, að meðaltöl þessi eru ekki fullgild,
þar sem þau eru reiknuð út af misjafnlega mörgum talningum í ein-
stökum hverfum, en læt þau engu að síður koma hér fram með því
að þau gefa í einu lagi yfirlit yfir mun hinna einstöku hverfa, þótt
þeim sé ekki að fulltreysta.
A% Ch% H % G%
55,- -56. Juncus trifidus-Kobresia soc 52.5 18.6 60.0 19.4
57. Emp. hermafr.-Loiseleuria procumb. soc. 75.8 51.7 33.0 14.6
58. F„ hermafr.-Vacc. ulig.-C. rigida soc 71.4 45.2 29.4 24.8
59. E. hermafr.-Betula nana soc 76.7 40.2 42.2 13.8
60. E. hermafr.-Dryas octopetala soc 76,8 45.9 36.1 17.3
61,- -62. Callunetum vulgaris 23.6 37.9 49.9 11.6
63. Sal. glauca-Emp. hermafroditum soc. . . . 71.6 46.4 30.8 20.6
64. S. glauca-Carex rigida soc 70.2 30.1 33.0 33.6
65. S. glauca-Kobresia myosuroides soc 69.3 38.8 40.0 18.5
66. S. glauca-S. herbacea-E. hermafr. soc. . . . 75.7 40.7 39.7 17.8
67. S. glauca-S. herbacea mosarík soc 81.3 33.9 30.4 33.9
68. S. lanata-E. hermafr.-Vacc. ulig. soc 72.1 41.4 32.2 26.0
69. S. lanata-Dryas octopet.-Kobresia soc. . .. 72.2 32.0 49.5 16.6
70. S. lanata-S. glauca soc 67.6 40.0 37.1 20.9
71. S. lanata-Festuca rubra soc 62.5 28.1 52.7 17.5
78 Flúra - tímarit um íslenzka grasafræði