Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.04.1966, Blaðsíða 127
Flóra
TÍMARIT UM ÍSLENZKA GRASAFRÆÐI
RITSTJÓRN:
Helgi Hallgrimsson Pósthólf 580, Akureyri.
Hörður Kristinsson Pósthólf 580, Akureyri.
Steindór Steindórsson Pósthólf 66, Akureyri.
ÚTGEFANDI:
Bókaforlag Oclds Björnssonar, Pósthólf 558, Akureyri.
Kemur út einu sinni á ári, minnst 6 arkir árlega. Því er ætlað að birta
greinar og ritgerðir um grasafræði íslands, svo sem um flóru og gróður
þess eða einstakra landshluta, auk hvers kyns athugana á íslenzkum
plöntum, gróðursögu, forngrasafræði, frjókornafræði o. fl., ennfremur
alls konar fróðleik, fornan og nýjan, um íslenzk grös, grasnytjar og
grasanöfn. Greinar um almenna grasafræði verða einnig teknar eftir því
sem rúm vinnst til.
Ritgerðir skulu að jafnaði skrifaðar á íslenzku, en undantekningar
verða þó gerðar ef sérstaklega stendur á. Öllum ritgerðum um frum-
rannsóknir skal fylgja stuttur útdráttur á einhverju heimsmálanna.
Heimildarskrá skal og fylgja öllum meiri háttar ritgerðum.
Höfundar bera ábyrgð á efni ritgerða sinna og fá eina próförk af
þeim til leiðréttingar. Ritlaun eru engin, en höfundar fá ókeypis 50
sérprent af greinum sínum. Áskriftarverð er kr. 250.00.
EFNISYFIRLIT
Milli aldarafmxla .............................................. 3
Steindór Steindórsson: Helgi Jónsson dr. phil. — Aldarminning .. 5
Ingimar Óskarsson: Gróðurrannsóknir i Dalasýslu sunnanverðri
sumarið 1949 ............................................... 21
Steindór Steindórsson: Um húlendisgróður íslands. Fjórði hluti .. 53
Smágreinar .................................................... 93