Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.09.2013, Síða 34
*Græjur og tækniPhone Blocks er heiti á verkefni sem miðar að því að nýta gamla síma og gera úr þeim nýja »36
Átta klæðanlegir
tæknihlutir
Lúxusvandamál leyst
Í desember kemur tækið Run-N-Read, eða
hlaupið og lesið. Það virkar þannig að tækinu
er einfaldlega smellt í svitabandið eða á bolinn
og tækið nemur hreyfingu og hristing líkamans
og höfuðsins. Sendir svo þær upplýsingar í
símann eða hvaða tæki sem er og það verður
hægðarleikur að lesa! Þetta er þægilegt fyrir
fólk sem vill ekki leggja rafbókina frá sér á
meðan það er á hlaupabrettinu. Tækið kemur
til með að kosta 55 dollara vestan hafs eða
rúmlega sjö þúsund krónur.
Enn á tilraunastigi og engin vefsíða til.Hver sláttur öðruvísi
Nymi-armbandið breytir hjartslætti þín-
um í auðkennislykil fyrir síma, bíl, iPad,
tölvuna eða hvað sem er. Armbandið
nemur hjartalínurit viðkomandi með
því að þumlinum er þrýst á það og
tækið veit þá að þú ert í raun þú.
Hljómar hálfgalið en sérfræðingar vilja
meina að þetta geti verið framtíðin.
Kemur til með að kosta 79-99 dollara
sem eru í kringum tíu þúsund krónur.
http://www.getnymi.com/
Litasamsetningararmband
Embrace+ Mobile Phone Connector er armband fyrir fólk sem getur ekki lagt símann sinn
frá sér – ekki í eina sekúndu. Hræðslan við að missa af er svo mikil. Nú getur fólk pantað
sér armband sem lýsir þegar eitthvað gerist. Ef einhver hefur samband á fésbókinni, einhver
sendir sms eða tölvupóstur berst, já eða hringir. Hægt er að stilla litina og þannig getur
rauður þýtt símtal, grænn tölvupóstur, blátt fésbókin o.s.frv. Það er jafnvel hægt að láta
armbandið víbra. Kostar 69 dollara eða átta þúsund krónur.
Enn á tilraunastigi og engin vefsíða til.
Fáðu þér sokka
Hver hefur ekki farið út að hlaupa í
venjulegum íþróttasokkum? Nú er kom-
inn sokkur fyrir 21. öldina sem heitir
Heapsylon Sensoria Smart Sock Fitness
Tracker eða bara tölvusokkurinn. Sokk-
urinn er fullur af tækjum og tólum sem
nema hvernig þú hleypur, hvar álagið
kemur á fæturna og hvað þarf að laga
fyrir næsta hlaupatúr svo hann verði enn
betri. Svo er að sjálfsögðu hægt að deila
þessum upplýsingum um fésbókina. Kost-
ar 149 dollara, rúmlega 20 þúsund krón-
ur.
www.store.sensoriafitness.com/products/
Skrásetningarmyndavél
Memoto Lifelogging-myndavélin myndar líf þitt, tvisvar á dag – svo framarlega sem þú ert
með tækið á einhverjum tilteknum tímapunkti sem notandinn ákveður sjálfur. Myndavélin er
pínulítil eins og sést á myndinni þar sem þrjár myndavélar eru jafn stórar og venjulegur skrif-
stofupenni. Myndavélin er fimm megapixla.Virkar með öllum tölvum og myndirnar raðast í tíma
svo hægt sé að skoða líf sitt í tímaröð. Kemur til með að kosta 279 dollara eða 33 þúsund
krónur. www.memoto.com/
Rétt bak, betra bak
LUMOback Posture Sensor eða stellingar-
ráðgjafinn stefnir á að láta þig vita þegar setið
er vitlaust við tölvuna í vinnunni, sé það á
annað borð vinnan þín. Þetta er tiltölulega
einfalt, belti er smellt um mjóbakið og appið
lætur þig vita þegar þú ert farinn að vinna
álútur og kengboginn með skilaboðum í sím-
ann. LUMOback er ekki bara gert til að rétta
af bakið heldur fylgist það með daglegum at-
höfnum, hversu mörgum kalóríum þú brennir,
hve lengi þú situr og svo framvegis. Kostar
149 dollara eða rúmlega 20 þúsund.
http://www.lumoback.com/
Augnaloksopnari
Lark Silent Alarm Wrist Band, eða armbands-
vekjarinn, er vekjaraklukka sem hringir ekki
heldur vekur notandann með víbríngi. Arm-
bandið tengist snjallsímum með bluetooth og
er sérlega hentugt ef betri helmingurinn sefur
létt. Armbandið lærir svo smátt og smátt inn
á svefnvenjur þínar og þannig ættirðu að fá
betri og jafnari svefn. Kostar 159 dollara eða
20 þúsund krónur.
www.lark.com/
Fésbókarklukka
Samsung Galaxy Gear
Smartwatch, eða snjall-
úrið, kemur nú í október
í búðir vestan hafs. Úrsins
er beðið með mikilli eft-
irvæntingu því það segir
manni ekki aðeins hvað
klukkan er heldur er
einnig að finna myndavél,
veraldarvefinn, fésbókina
og Twitter. Þá getur það
tekið myndbönd upp í
HD-gæðum. Mun kosta
299 dollara eða 37 þús-
und krónur í Bandaríkj-
unum.
www.samsung.com
TÆKI ERU ALLTAF AÐ VERÐA MINNI OG MINNI OG MARGIR FRAM-
LEIÐENDUR SJÁ TÆKIFÆRI AÐ KOMA TÆKJUNUM SÍNUM Á KLÆÐIN
OKKAR. GOOGLE-GLERAUGUN ERU NÁTTÚRLEGA ORÐIN AÐ
VERULEIKA OG FJÖLMÖRG TÆKNIUNDUR SEM HÆGT ER AÐ BERA
ERU Á LEIÐINNI EÐA ERU NÚ ÞEGAR KOMIN Í BÚÐARHILLURNAR
VESTAN HAFS.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is