Læknablaðið : fylgirit - 01.06.2004, Blaðsíða 15
AGRIP ERINDA / XVI. ÞING FELAGS ISLENSKRA LYFLÆKNA
ÁGRIP ERINDA
E 01 Hönnun á dýralíkani fyrir rannsóknir á tækifæris-
sýkingum. Áhrif flúdarabíns á B- og T-eitilfrumur
í músum
Valgerður S\ cinsdóttir , Helga Erlendsdóttir3, Þórunn Ásta Ólafsdóttir’,
Hulda Harðardóttir’, Magnús Karl Magnússon’, Ingileif Jónsdóttir2-’, Magnús
Gottfreðsson1-2-3
'Lyfjafræöideild og 2læknadcild HI, -’Landspítali
magnusgo@landspitali.is
Inngangur; Krabbameinslyfið flúdarabín er púrín-hliðstæða sem
meðal annars hindrar umritun DNA og veldur stýrðum frumu-
dauða. Flestar rannsóknir á lyfinu hafa verið gerðar á sjúklingum
með eitilfrumukrabbamein og þar hefur verið lýst langvinnri fækk-
un T-hjálparfrumna. Tækifærissýkingar af völdum veira og sveppa í
kjölfar meðferðar með lyfinu eru algengar. Ahugavert er að kanna
hvort unnt sé að nota flúdarabín til ónæmisbælingar í músum svo
unnt sé að rannsaka meingerð tækifærissýkinga, svo sem ífarandi
sveppasýkinga.
Efniviður og aðferðir: Notast var við NMRI mýs. Dýrin fengu
flúdarabín í lífhimnu í mismunandi skömmtun í þrjá sólarhringa.
Blóð var tekið reglulega og hvítkornatalning, eitilfrumutalning og
greining á undirflokkum eitilfrumna var framkvæmd eftir litun með
einstofna mótefnum og frumuflæðisjá. Ein forathugun var gerð þar
sem dýrin voru sýkt í blóðrás með Candida albicans og í lungu með
Streptococcus pneumoniae. Fylgst var með lifun og fjöldi sýkla í
vefjum ákvarðaður í lok tilraunar.
Niðurstöður: I ljós kom að mikil fækkun varð á B-eitilfrumum.
Fækkunin var skammtaháð og nam allt að 80% eftir skammtinn
3mg/dýr/dag. Lyfjaáhrif náðu hámarki fimm sólarhringum eftir
upphaf lyfjagjafar, en fjöldi B-eitilfrumna varð því sem næst eðlileg-
ur innan mánaðar frá meðferðarlokum. Lyfið olli óverulegri fækk-
un T-eitilfrumna (32%) og þau áhrif gengu til baka á innan við sjö
sólarhringum. Fjölgunarpróf með mítósuörvandi efnum sýndu enga
bælingu á T-frumum eftir lyfjagjöf. f einni sýkingartilraun sem gerð
var í músum varð ekki vart við merkjanleg áhrif lyfsins á lifun eða
þéttni sýkla ívefjum.
Umræða: í músum er næmi B-frumna fyrir áhrifum flúdarabíns
mun meira en næmi T-frumna. Niðurstöður benda til að í þeim
skömmtum sem notaðir voru sé ekki unnt að framkalla marktæka
bælingu á frumubundnu ónæmissvari í músum. Þetta kemur nokk-
uð á óvart í ljósi þeirra fjölmörgu greina þar sem slíkri bælingu er
lýst í mönnum. Frekari rannsókna er þörf þar sem gefnir eru hærri
og tíðari skammtar.
E 02 High sensitivity C-reactive protein (Hs-CRP)
er hækkað við lungnasjúkdóma, reykingar og aukna
líkamsþyngd
Inga Sif Ólafsdóttir', Þórarinn Gíslason1, Bjami Þjóðleifsson1, ísleifur Ólafsson2,
Davíð Gíslason', Christer Janson3
'Lyflækningasvið I og 2rannsóknasvið LSH, 3lungna- og ofnæmisdeild
Háskólasjúkrahúsinu Uppsölum
ingasif@landspitali. is
Inngangur: CRP er vel þekkt akút fasa prótein og tengist hækkun
þess bólguferlum og sýkingum. Ýmsar rannsóknir hafa sýnt að FIs-
CRP er áhættuþáttur hjartasjúkdóma. Minna er vitað um tengsl Hs-
CRP við lungnaeinkenni, reykingar eða offitu. Áhugavert var því
að kanna þýðingu Hs-CRP í öðrum hluta Evrópurannsóknarinnar
Lungu og heilsa (www.ecrhs.org) og tengsl Hs-CRP við lungnaein-
kenni, reykingar, líkamsþyngdarstuðul (BMI) og berkjuauðreitni.
Efniviður og aðferðir: Við rannsóknarstofu LSH var Hs-CRP mælt
úr sýnum 1289 einstaklinga í ECRHS II (1998-2002) frá Reykjavik,
Uppsölum og Tartu (Eistlandi). Gildin voru á bilinu <0,1 til 70,0
mg/1 og var þeim skipt í fjóra jafnfjölmenna flokka (<0,45; 0,45-
0,96; 0,96-2,21 og >2,21). Könnuð voru tengsl Hs-CRP við kynferði,
reykingasögu, BMI, FEV, mælingar, lungnaeinkenni og bráðaof-
næmishneigð (atopy).
Niðurstöður: Ekki var kynbundinn munur á Hs-CRP gildum en
marktæk tengsl voru við hækkandi aldur (p=0,0003) og hækkandi
BMI (r=0,41; p<0,0001). Einnig voru sterk tengsl við reykingasögu,
OR (95% CI) =1,17 (1,02-1,33) hjá þeim sem reykja. Marktæk
tengsl (p <0.0001) voru milli hækkaðs Hs-CRP og eftirtalinna
lungnaeinkenna (p<0,0001): ýls, surgs og píps, áreynslumæði og
næturhósta. Hs-CRP var marktækt hækkað við viðvarandi astma
(p=0,002), astma án ofnæmis (p<0,0001) og langvinna lungnateppu
(p=0,01). Engin marktæk tengsl voru milli Hs-CRP og berkjuauð-
reitni (p=0,51) eða ofnæmisastma. Marktæk tengsl voru milli Hs-
CRP og IgE-gilda (p=0,01).
Ályktanir: Hs-CRP er merki um bólgusvörun í líkamanum og sterk
tengsl þess við BMI, reykingar og lungnaeinkenni getur hugsanlega
aukið skilning á meingerð lungnasjúkdóma og ofnæmis. Hs-CRP
má ef til vill nota við mælingar á áhættuþáttum.
E 03 Samanburður á skráningu færniskerðingar og sam-
virkra veikinda hjá 75 ára sjúklingum og eldri á bráðalyf-
lækningadeildum með MDS AC og hefðbundinni sjúkra-
skrá. íslenskar niðurstöður samnorrænnar rannsóknar
Ólafur Samúelsson, Sigrún Bjartmarz, Anna Birna Jensdóttir, Pálmi V. Jónsson
Öldrunarsviö LSH, Rannsóknarstofa HI í öldrunarfræðum
olafs@tandspitali.is
Inngangur: Aldraðir eru vaxandi hlutfall þeirra sem sækja bráða-
þjónustu. Sýnt hefur verið fram á að færni og samvirkir sjúkdómar
eru mikilvægir spáþættir fyrir horfum. Með kröfu um sífellt styttri
legutíma er æ mikilvægara að markmiða þjónustuna sem fyrst og
þekkja úr þá sem líklegt er að þurfi ítarlegra öldrunarmat eða þjón-
ustu. Hér eru kynntar niðurstöður úr samnorrænni rannsókn þar
sem MDS AC matstækið er prófað og skráning með tækinu borin
saman við hefðbundna skráningu lækna og hjúkrunarfræðinga.
Efniviður og aöferðir: Með slembiúrtaki voru valdir 160 sjúklingar
75 ára og eldri sem lögðust inn brátt á lyflækningadeildir LSH í
Fossvogi. Skráning með MDS AC matstækinu var beitt á völdum
tímabilum í innlögninni og eftir útskrift. Hjá 80 sjúklingum var
skráning í sjúkraskrá á fyrstu 48 klukkustundum innlagnar borin
saman við MDS AC skárningu á fyrsta sólarhring innlagnar.
Niðurstöður eru sýndar sem S (sammála), Ó (ósammála) og E (ekki
skráð í sjúkraskrá). Meðaltal frá hinum Norðurlöndunum er sýnt
með þeim íslensku til samanburðar.
Niðursföður: Fyrir ADL skerðingu er best skráning fyrir hreyfigetu
og hreyfingu í rúmi þar sem 25-27% vantar að getið sé í sjúkraskrá.
Læknablaðið/Fylgirit 49 2004/90 15