Félagsbréf - 01.03.1960, Qupperneq 43
FÉLAGSBRÉF
41
og hæversklega á lokaðar og læstar dyr?
Hver hefur árangurinn svo orðið af hæ-
verskunni, stillingunni? SíSustu þrjátiu
árin hefur þeim lögum fjölgaS, svo aS
segja daglega, sem takmarkað hafa rétt
okkar og framfarir, og í dag er svo komið,
að við erum nær réttlausir meS öllu. ÞaS
er meS þessa staðreynd fyrir augum og
fullan skilning á ábyrgðinni, sem ég hefi,
undir verndarvæng Afríska ÞjóSernissam-
bandsins, sameinazt ættfólki mínu í þeim
nýja anda, er stjórnar gerðum þess í dag,
anda sem rís opinberlega og djarflega
gegn óréttlætinu og tjáir sig á friðsaman
hátt. Hvað framtíðin kann að bera í skauti
sínu mér til handa, veit ég ekki. Það
kann að vera háð og spott, fangelsi, þræla-
búSir, líkamsrefsingar, útlegð og jafnvel
dauðinn sjálfur. Ég biS einungis hinn al-
máttuga guð að styrkja ákvörðun mína,
svo að engum af þessum miskunnarlausu
möguleikum takist að hræða mig frá því,
að berjast í nafni okkar elskaða lands,
til að koma þar á sönnu lýðræði og sönnu
sambandi allra ríkja landsins, í formi
og anda.“
„Skömmu síðar var Luthuli kjörinn for-
maður Afríska Þjóðemissambandsins.
Það er ægilegt afl, sem Luthuli og Þjóð-
ernissambandið hafa sameiginlega yfir að
ráða. Sambandið á rætur sínar að rekja til
hinnar stóru, svörtu vinnandi stéttar. —
Heimur iþess er heimur borgarumdæma,
ólgandi fjöldafunda milli hreysanna, verk-
falla og „heimasetu". Luthuli með sínum
látlausa, gráhærða virðuleika, rólegri vilja-
festu og frjálslyndu, máttugu kristnu trú,
er fulltrúi öldunganna, kyrrlátur, en ægi-
legur í reiði sinni. Ef stilling Luthulis og
hin rólynda stjórnvizka hans hvetur og
hughreystir afrísku millistéttina, klerk-
ana, kaupmennina og skrifstofufólkið, þá
talar sambandið með afli þeirra milljóna,
er vinna í verksmiðjum og fylla búðirn-
ar, mál iðnaðarlegrar byltingar og opin-
berra mótmælafunda. Samt hefur hvoi
aðilinn fengið lánað hjá og sameinazt
hinum. — Með Luthuli sem foringja
hefur A.N.C. öðlazt nokkuð af töfrum
hans, mikið af virðingu hans og afli og
hlotið þannig, með hinni vinsælu ímynd
hans, eitthvað af þeim þjóðlega persónu-
leika, sem öll happasæl fjöldasamtök
verða óhjákvæmilega að hafa til brunns
að bera. Og með því að þjást með fólki
sínu í mótmælasamtökum þess og „heim.v
setum“, með bönnum og með brottrekstr-
um hefur Luthuli sjálfur vaxið til póli-
tiskrar baráttu frá yfirlýsingum og bænum,
frá angist til aukinna valda.