Skagfirðingabók - 01.01.2011, Blaðsíða 18
18
SKAGFIRÐINGABÓK
Frakkland og frönsk menning varð í
kennslu Þórarins töfrandi og tók hug
okkar nemenda hans föstum tökum.
Þórarinn Björnsson var kröfuharður
kennari, en strangastar kröfur gerði
hann jafnan til sjálfs sín. – Fjölhæfni
hans og þekking var óvenju alhliða og
ótrúlega yfirgripsmikil. Ég minnist
þess, að hann kenndi okkar bekk
íslenska stílagerð einn vetur fyrir Sig-
urð skólameistara. Líklega er þessi
grein eitthvert vandasamasta kennslu-
efni sem hugsast getur, en kennsla
hans og merkilegar athuganir í þess-
ari grein eru mér ógleymanlegar.
Hann reifaði þetta hála efni af slíkri
rökvísi að ég get undrast það enn í
dag. (Þórarinn Björnsson: Rætur og
vængir II, 415)
Það sýnist mér ljóst að viðhorf Andrés-
ar til stíls hafi verið miklu skyldara
Þórarni Björnssyni en Sigurði Guð-
mundssyni, tært látleysi Þórarins stað-
MA-stúdentar 1937. Fremst f. v.: Jón Gunnlaugsson, Gunnar Hlíðar, Þórunn Sigurðar-
dóttir, Ásthildur K. Björnsdóttir, Áslaug Helga Árnadóttir, Þóroddur Oddsson, Valdimar
Guðjónsson. – Önnur röð f. v.: Sigurður Kristjánsson, Andrés Björnsson, Sigurður Sigurðsson,
Torfi Guðmundsson, Högni Jónsson, Björgvin Bjarnason, Gísli Konráðsson. – Þriðja röð f.
v.: Brjánn Jónasson, Erlendur Konráðsson, Aðalsteinn Guðmundsson, Kári Sigurðsson,
Eiríkur Kristinsson, Árni Kristjánsson, Jón Þórarinsson. – Fjórða röð f. v.: Þorbjörn Sigur-
geirsson, Kristján Jónsson, Þórhallur A. Pálsson, Magni Guðmundsson, Hallgrímur F.
Björnsson, Stefán Jónsson, Högni Helgason, Ármann Helgason. – Á myndina vantar: Birgi
Finnsson, Brand Brynjólfsson, Jón Eiríksson og Ólaf Einarsson.