Skagfirðingabók - 01.01.2011, Page 124
SKAGFIRÐINGABÓK
strönd. En foreldrar mínir fluttust
þaðan aftur til Sauðárkróks þegar ég
var nokkurra mánaða gamall. Á
Krókn um var ég talsvert hjá móður
ömmu minni og svaf ég oft hjá henni.
Hún átti heima í litlu húsi í miðju
kauptúninu og var það hús nefnt
Græn a húsið, eitt af elstu húsum bæj
arins og hefur nú verið rifið. Hún var
mjög góð við mig; kenndi hún mér
mikið af bænum og versum. Hún var
mjög trúuð kona og leið mér mjög vel
hjá henni.
Eitt sinn fór ég með henni niður á
bryggju en þá var bátur að koma að
landi úr róðri. Hún sneri sér að for
manninum á bátnum, og segir við
hann: ,,Þú gefur mér nú í soðið,” en
hann svarar: ,,Ég gef þér ekki neitt í
soðið.” Þá segir hún: ,,Ó jú, þú gefur
mér í soðið, Guð borgar fyrir okkur
fátæklingana.” Þá svarar hann: ,,Hvað
ætli hann borgi, andskotans ætli hann
borgi!” en síðan réttir hann henni
vænan fisk.
Móðuramma mín, Anna Sveinsdótt
ir, lést 1944. Hún fór nokkrum árum
áður til sr. Helga Konráðssonar með
eitt hundrað krónur sem áttu að nægja
fyrir fermingarfötum á mig, og afhent i
Verzlun Haraldar
Júlíussonar.
Bræðrabúð við
Aðalgötu, stóð sunnan
við Verzlun Haraldar
Júlíussonar.
124