Skagfirðingabók - 01.01.2011, Side 199
KAGFIRÐINGABÓK er rit Sögufélags Skagfirðinga. Bókin hefur komið út
frá árinu 1966 og flutt lesendum sögulegan fróðleik úr Skagafirði.
Hér birtist 33. hefti bókarinnar, með sama sniði og síðast, en heldur efnis
meira og ríkulega myndskreytt.
Efni bókarinnar er fjölbreytt að vanda. Fyrst er grein eftir Gunnar Stefánsson
um Andrés Björnsson útvarpsstjóra, sem var þjóðkunnur Skagfirðingur, þó
að starfsferill hans væri annars staðar. Margrét Margeirsdóttir fjallar um
landnema í Vesturheimi og dregur fram gamalt Ameríkubréf sem tengist
þeim, Bernharð Haraldsson segir frá kynnum sínum af Stefáni Jónssyni á
Höskuldsstöðum, Árni Gíslason í Eyhildarholti gerir grein fyrir nábýlinu við
Héraðsvötn, en búskapur í Eyhildarholti markaðist mjög af því, Sigurjón Páll
Ísaksson fjallar um legstein Kristínar Torfadóttur í Hóladómkirkju, og Sig ríður
Sigurðardóttir um þjónustuna og ígangsfötin, þ.e. þjónustuhlutverk kvenna á
fyrri tíð. Þá fjallar Haraldur Jóhannsson um Vilhelm Erlendsson kaupmann á
Hofsósi og Hallfríði Pálmadóttur konu hans, og Hörður Pálsson rifjar upp
æskuminningar sínar frá Sauð árkróki og fleiri frásagnir. Loks rekur
Sigtryggur Jón Björnsson sögu Hólaýtunnar, sem var fyrsta tæki sinna r
tegundar í Skagafirði.
Það er von ritstjórnar, að bókin og efni hennar falli lesendum vel í geð, og
að þeir veiti áfram öflugan stuðning við útgáfu Skagfirðingabókar. – Hægt er
að gerast áskrifandi að bókinni í síma 453 6640 eða með því að senda
tölvuskeyti í netfangið: saga@skagafjordur.is
S
Á myndinni hér fyrir ofan sjást Eyhildarholtshrossin feta sig yfir
ísinn af Hrúteyjum austur á Borgareyju. Ljósmynd: Guðrún Árna
dóttir, 17. nóvember 1991.
FORSÍÐUMYNDIN er vatnslitamynd Ástu Pálsdóttur af Höepfners
húsinu á Sauðárkróki, sem kemur við sögu í æskuminningum
Harðar Pálssonar. Eigandi myndar: Hörður Pálsson á Akranesi.