Skagfirðingabók - 01.01.2011, Side 61
LANDNEMAR Í VESTURHEIMI
við nágranna og vini og taka þátt í
upp byggingu íslenska samfélagsins á
þessu svæði. En áföllin voru því miður
ekki úr sögunni. Eftir fimm ára bú
skap á Víðirhóli, sem hafði gengið
nokkuð vel, hækkaði í Winnipegvatni
svo mik ið að flæddi yfir engi og tún
bænd a í byggðinni og þar á meðal á
býli Gísl a og Dýrunnar. Og enn á ný
var ekki um annað ræða en taka sig
upp og flytj a í burtu lengra inn í
landið, fjær vatninu. Gísli gerði sér
lítið fyrir og tók í sundur hús þeirra,
bjálka fyrir bjálka og spýtu fyrir spýt u,
setti númer á hvert stykki og flutti á
nýja staðinn í Framnesbyggð og reisti
húsið þar á ný. En á þessum tíma
myndaðist Framnesbyggðin sem er
norð vestur af Árborg, en þangað flutt u
margir Ísafoldarbúar þegar flóðin
hröktu þá í burtu. Gísla og Dýrunni
vegnaði vel í Framnesbyggðinni enda
landrými mik ið, og þarna var góður
hagi og gott að búa með nautgripi
sem hægt var að hafa talsverðar tekjur
af. Fjöl skyldan var samhent og dug
leg. Elstu börnin voru vaxin úr grasi
og léttu und ir í búskapnum með for
eldrunum. En áföll voru ekki úr sög
unni. Þegar Gísli var um sextugt
veikt ist hann alvarlega og missti
málið, en náði sér að öðru leyti sæmi
lega þó aldrei fengi hann sama styrk
og fyrr. Enginn lækn ir var til taks að
greina sjúkdóminn, en eftir þetta gat
Gísli ekki tjáð sig nema með skrift eða
táknmáli. Hann lifði í nokkur ár eftir
þetta en lést á heimili sínu árið 1917,
66 ára gamall. Hann var jarðsettur í
kirkjugarðinum í Árdal.
Í bókinni History of Arborg and Distr-
ict 1889–1987 er kafli um Gísla og
Dýrunni, sem grein þessi er að nokkru
leyti byggð á. Þar er Gísla lýst svo að
hann hafi verið myndarlegur og þrek
mikill, traustur og góður fjölskyldu
faðir, framúrskarandi smiður og mikill
dugnaðarmaður.
Eftir lát Gísla bjó Dýrunn áfram á
jörðinni næstu tvö árin með Árna
Helga, yngsta syni sínum sem þá var
um tvítugt og dóttur sinni Halldóru,
ennfremur átti Björn, eldri bróðir
þeirr a, þar heimili sitt. Hann var feng
Frá vinstri: Björn,
Dýrunn, Halldóra og
Jónína, dóttir hennar.
Ekki er vitað um nafn
mannsins sem stendur
fyrir aftan Dýrunni.
Myndin er tekin fyrir
framan heimili þeirra
í Árborg.
61