Skagfirðingabók - 01.01.2011, Side 184
SKAGFIRÐINGABÓK
að beita tönn vélarinnar og herfa með
henni. Námskeið þetta stóð í tvær
vik ur. [29]
Eitt sinn voru Friðrik Sigurðsson og
Valgarð Björnsson með vélina og
unnu þá m.a. við að lækka háan mel
austan við Gálgabrúna, sem snjó skóf
af. [20] Þeir Frið rik og Valgarður
urðu seinna starfsmenn á verkstæði
Kaupfélags Skagfirðinga, sem ann
aðist viðhald á vélum Ræktunarsam
bands Skagafjarðar, og unnu þeir við
það um áratuga skeið. Kristján Han
sen stofnaði fyrirtækið Kristján og
Jóhannes, með bróður sínum Jóhannes i,
og önnuðust þeir vöruflutn inga á mill i
Sauðárkróks og Reykjavíkur um fjölda
ára.
Sumarið 1947
Þetta sumar var ýtan gerð út í umferð
ar vinnu hjá bændum. Með henni unnu
þeir Maron Pétursson og Kjartan
Haraldsson frá Unastöðum. Kjartan
var fæddur 18. september árið 1928
og lést 22. október 1975, sonur Har
ald ar Jóhannessonar og Önnu Bergs
dóttur, sem bjuggu á Unastöðum og
síðar á Bakka í Viðvíkursveit. [17]
Kjartan ók um tíma mjólkurbíl, en
síðar vörubíl og var búsettur á
Sauðárkróki.
Þetta sumar var unnið í Viðvíkur
sveit, Óslandshlíð og Deildardal, mest
við jarðvinnslu og eitthvað við vega
gerð. Þá hafði fengist fjárveiting úr
Sýsluvegasjóði til að laga veginn fram
að Unastöðum og var þá gert bílfært
þangað.
Björn Sverrisson man vel eftir þeim
Kjartani og Maroni við vinnu með
vél inni í Viðvík sumarið 1947. Þá var
túninu bylt neðan við bæinn og utan
og neðan við kirkjuna, og sléttað yfir
leiði Þuríðar fóstru Þorbjörns önguls
Þórðarsonar, sem var norður af
kirkjunni og neðan við gamla bæjar
hólinn, sem nú er horfinn. Stór steinn
var á leiðinu, sem settur var í
grjóthrúgu norðaustan við kirkjuna.
Frá því verki ók Maron Pétursson
ýtunni upp á bæjarhlaðið og fór hún
þá út af hægra beltinu. Þetta þótti
ekki einleikið, þar sem vélinni var
ekið beint upp brekkuna og hallaðist
ekkert. Þar af leiðandi gerðu menn því
skóna að Þuríður gamla væri ekki sátt
við að steinninn skyldi færður, og
hefð i verið að láta vita af því. Þorbjörn
öngull bjó í Viðvík og var mikill
óeirðamaður. Hann var sagður sonar
sonur Hjalta Þórðarsonar landnáms
manns í Hjaltadal. [8]
Af Hauki og Kjartani 1948
Sumarið 1948 unnu Haukur Pálsson á
Röðli og Kjartan Haraldsson með vél
inni. Haukur er fæddur 29. ágúst
1929 í Sauðanesi á Ásum og uppalinn
þar. Faðir hans dó 1932 og þá tók
Gísl i bróðir hans við búrekstri. Móðir
þeirra, Sesselía Þórðardóttir, andaðist
1942 og eftir það bjó Haukur með
Gísla til hausts 1946, en þá fór hann í
Bændaskólann á Hólum. Sumarið
1947 vann hann við skólabúið og vet
ur inn eftir var hann í skólanum og
lauk búfræðiprófi vorið 1948. Kristján
Karlsson skólastjóri réði þá félaga,
enda rak skólabúið ýtuna, en Ólaf
ur Jónsson ráðunautur Búnaðarsam
bandsins skipulagði vinnu hennar eins
og árið áður. Skólasveinum var kennt
lítil lega á jarðýtuna og Maron Péturs
184