Skagfirðingabók - 01.01.2011, Síða 58
SKAGFIRÐINGABÓK
Síðsumars árið 1883 hefur hópurinn
sem var að kveðja Skagafjörð og leggja
í hið langa og erfiða ferðalag verið
sam an kominn á Sauðárkróki, tilbúinn
að stíga um borð í skipið Camoens
sem lét úr höfn áleiðis til Skotlands,
en þar beið þeirra annað skip til
fyrirheitna landsins. Meðal farþega í
þessari ferð voru hjónin Dýrunn
Steins dóttir, 27 ára, og maður hennar
Gísli Árnason, 32 ára, ásamt tveimur
ungum börnum sínum. Þau höfðu
verið gift í 6 ár og búið m.a. um skeið
á LitluSeylu (nú Brautarholt) í Seylu
hreppi, en þá jörð áttu foreldrar Dýr
unnar. Þau voru Steinn Vigfússon og
Helga Pétursdóttir sem bjuggu stór
búi í StóruGröf á Langholti í Skaga
firði. Steinn var kunnur maður á sinni
tíð, búhöldur mikill og hafði hafist til
efna af eigin rammleik vegna dugn
aðar og sparsemi. Hann var hrepp
stjóri í Staðarhreppi um árabil og ann
álaður fyrir hjálpsemi við fátæklinga,
þegar skortur var í búi þeirra, eins og
algengt var á þessum tímum. Steinn
lét sig ekki muna um að gefa fátækum
bæði hey og mat, jafnvel mjólkurkú ef
svo bar undir. Þau Steinn og Helga
eignuðust 7 dætur sem komust til
full orðinsára. Þær giftust bændum og
bjuggu flestar í Skagafirði. Meðal
þeirr a var Helga, fædd 1852, en hún
var fyrst kvenna til að koma á fót gisti
aðstöðu á Sauðárkróki. Dýrunn var
fimmta í röðinni, fædd 1856 og sú
eina af systrunum sem fór til Vestur
heims. Þegar dæturnar giftust, gaf
Steinn nokkrum þeirra heilar eða hálf
ar jarðir í „heimanmund“. Af þessu
má sjá að Dýrunn átti til efnaðra að
telja, að þeirra tíma mælikvarða, alin
upp í stórri fjölskyldu sem hún var að
kveðja og hitti aldrei framar. Gísli
maður Dýrunnar var fæddur 1851
utan hjónabands og ólst upp hjá móður
sinni, Aðalbjörgu Gísladóttur, og
móðurforeldrum sem bjuggu í Álfta
gerði í Seyluhreppi. Faðir hans var
Árni Jónsson, afkomandi Jóns Ólafs
sonar „sterka“. Dýrunn og Gísli höfðu
eignast þrjú börn, tvö þeirra fóru með
þeim til Vesturheims, eins og áður er
getið, Guðrún fimm ára og Árni
þriggj a ára, þriðja barnið Steinunn,
sem var ársgömul, varð eftir í Stóru
Gröf hjá foreldrum Dýrunnar. Kemur
hún síðar við sögu.
Gísli Árnason og
Dýrunn Steinsdóttir.
58