Skagfirðingabók - 01.01.2011, Page 115
Mynd frá Hofsósi sumarið 1925. Hengibrúin yfir ána var sett til bráðabirgða á sporða
gömlu timburbrúarinnar sem fauk 27. janúar 1925. Steypt brú var síðan byggð á ána, 1925.
Byrjað er að grafa fyrir brúarvængnum sunnan við ána. Húsin eru þessi: Nr. 1. Sjóbúð
Jakobs Símonarsonar í Brekku. 2. Pakkhúsið gamla frá 1772. 3. Sláturhús Vilhelms Er
lendssonar. 4. Óvíst, e.t.v. fjós Vilhelms Erlends sonar. 5. Ásgrímshús, þar bjuggu síðast Gísli
Benjamínsson og Anna Pálsdóttir sem byggðu stórt steinhús á sama stað árið 1930, nefnt
Svalbarð, og stendur það enn. 6. Vilhelmsbúðin, seinna var sett viðbygging norðan undir
henni, þar var símstöðin. 7. Baldurshagi, íbúðarhús Vilhelms og Hallfríðar. 8. Sigurðarbær,
þar bjuggu lengi foreldrar Guðrúnar, Sigurður Marteinn Jónsson og Sigríður Pétursdóttir. 9.
Brattahlíð, hús Friðriks Jónssonar og Guðrúnar Sigurðardóttur og byggt af þeim. 10. Síða,
hús Halls Einarssonar, líklega byggt af honum og Jakobi Símonarsyni á Brekku. 11. Sólvang
ur. Þar bjó lengi Árni Halldórsson skósmiður og Ólöf Guðrún Þorvaldsdóttir. 12. Ás, íbúðar
hús Kristins Erlendssonar og Sigurlínu Gísla dóttur frá NeðraÁsi. 13. Braut, eitt af elstu
íbúðarhúsunum í Plássinu. Þar bjuggu 1930 Jóhann Skúlason og Guðrún Ágústsdóttir,
Þórður Kristjánsson, verslunarmaður og Björn Jónsson útgerðarmaður. 14. Hlíð. 15. Brimnes,
byggt 1922 af Árna Jóhannssyni sem þar bjó til 1926, að hann fluttist til Siglufjarðar. 16.
Grindahjallur neðan við Brimnes og tilheyr andi því húsi. 17. Salthúsið, geymsla. 18. Þing
hús, skóli og bókasafn, brann í mars 1950. Árið 1930 bjó þar Baldvin Ágústsson með fjöl
skyldu sinni. 19. Sólheimar eða oftar nefnt Prestshúsið, íbúðarhús séra Pálma Þóroddssonar
og Önnu Jónsdóttur. Þar var símstöðin á þess um tíma. 20. Hvassafell, þetta hús var flutt úr
Grafarósi og sett hér niður á steyptan kjallara. Árið 1930 bjuggu hér 11 manns. 21. Bakki,
en milli hans og Hvassafells sér á nokkur útihús íbúanna í Plássinu. Byggðin sunnan við
Hofsána var kölluð Plássið.
Eigandi: Héraðsskjalasafn Skagfirðinga.
1
2
3
4
5
6
7
8 9 10
11 12 13
14
15 16
17
18192021
VILHELM ERLENDSSON KAUPMAÐUR Á HOFSÓSI
115