Skagfirðingabók - 01.01.2011, Side 100
SKAGFIRÐINGABÓK
Viljir þú líta virðulegan svip Hólmfríðar,
þá er mynd hennar sett þér hér fyrir sjónir.
Ljóst er að hún var komin af miklum ættum,
en trúa máttu að sú rót var engu minni en fræið.
Ekki fer ég með fleipur, því að í einlægni
ávann hún sér allra lof með hreinlífri guðrækni.
Sálin er komin í hóp himnabúa; þessi mynd ætlar sér það
sem henni ber: hún verður ævarandi grafarminning.
Hólmfríður var fyrst á Hólum hjá dótt
ur og tengdasyni, en fór að Laufási
1683 með Helgu dóttur sinni og dó
þar 75 ára gömul árið 1692. Málverkið
mun vera gert skömmu síðar. Það var
í Laufáskirkju uns það barst Þjóð
minjasafni.
Í Laufáskirkju var einnig málverk af
Helgu Jónsdóttur og síra Þorsteini
Geirssyni eiginmanni hennar (Þjms.
1257). Það er talið vera eftir Jón Guð
mundsson í Felli og er líklega gert
skömmu eftir andlát Þorsteins (d.
1689). Þar eru sambærileg minningar
orð á latínu, í bundnu máli. Sá texti,
með íslenskri þýðingu Gottskálks
Jens sonar, er væntanlegur á næstunni
í seinna bindinu af riti Harðar Ágústs
sonar um Laufás.
Vorið 1992 þýddi dr. Jakob Benedikts
son þennan texta vegna greinar sem ég
hafði þá í undirbúningi. Minningar
orðin hljóða svo í þýðingu Jakobs:
100
Heimildir
Jón Espólín. 1980–1983. Ættatölubækur
1–8. Reykjavík: Samskipti. Ljósrituð
út gáfa.
Jón Þ. Þór. 2008. Bauka-Jón. Saga frá saut j-
ándu öld. Reykjavík: Bókaútgáfan Hól
ar, í samvinnu við Guðbrands stofnun.
Kristján Eldjárn. 1963. Um Hólakirkju, 2.
útg. Reykjavík: Menntamálaráðuneytið.
Páll Eggert Ólason. 1950 og 1952. Íslenzk-
ar æviskrár III og V. Reykjavík: Hið ís
lenzka bókmenntafélag.
Sigurjón Páll Ísaksson. 1992. Um legsteina
í Hóladómkirkju. Skagfirðingabók 21,
61–139. Reykjavík: Sögufélag Skagfirð
inga.
Stefán Aðalsteinsson. 1978. Svarfdælingar II.
Reykjavík: Iðunn. Kristján Eldjárn bjó
til prentunar.
Þorsteinn Gunnarsson og Kristján Eldjárn.
1993. Um Hóladómkirkju. Hólanefnd.
Jón Torfason og Þorsteinn Gunnarsson (rit
stj). 2005. Kirkjur Íslands 6. Reykjavík:
Þjóðminjasafn Íslands.
Þóra Kristjánsdóttir. 2003. Vestfirskur aðall
úr pensli Vatnsfjarðarprófasts og ann
arra snillinga. Ársrit Sögufélags Ísfirðinga
43, 215–227. Ísafirði: Sögufélag Ísfirð
inga.
Þóra Kristjánsdóttir. 2004. Myndlist á 17.
öld. Saga Íslands VII, 317–343. Reykja
vík: Hið íslenska bókmenntafélag,
Sögu félag. Ritstjóri: Sigurður Líndal.
Þóra Kristjánsdóttir. 2005. Mynd á þili.
Reykjavík: Þjóðminjasafn Íslands, JPV
útgáfa.