Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.04.1966, Blaðsíða 97
HELGI HALLGRÍMSSON:
ÍSLENZKIR RIFSVEPPIR
Rifsveppir eða Cantharellales nefnist einn flokkur basíðusveppa,
sem líkjast blaðsveppum að því leyti, að neðra borð hattsins er um-
myndað í garða eða rif, sem stundum geta jafnvel minnt á blöðin hjá
blaðsveppunum. Oftast eru rifin þó mun lægri og líkjast stundum frem-
ur æðum, einnig að því leyti að þau eru oft greinótt.
Rifsveppir eru harðari og þéttari í sér en blaðsveppir og pípusvepp-
ir, og þola margir þeirra að þorna án þess að bíða af því verulegt tjón.
Að lögun geta rifsveppirnir verið alla vega, allt frá óreglulegri
skorpu upp í svepp af svipaðri lögun og blaðsveppirnir, þ. e. skiptur
í reglulega lagaðan hatt og staf.
Flestir nútíma sveppafræðingar hallast þó að því, að rifsveppirnir
í hinni gömlu og víðu merkingu séu raunar margir og óskyldir sveppa-
flokkar, og ráða það m. a. af einstaklingsþróun þeirra, einkum þó af
myndun gróanna. Hér hefur því farið sem oftar í sveppafræðinni, að
samstefnið (konvergenz) í þróuninni hefur villt mönnum sýn á hinn
raunverulega skyldleika.
í þessu greinarkorni mun ég einskorða mig við hina æðri rifsveppi
þ. e. rifsveppi með greinilegum hatti og staf, en af þeim flokki hefur
aðeins fundizt ein tegund hér á landi. Er það sveppurinn Cantharellus
cibarius Fries eða kantarell eins og hann er nefndur á flestum evrópu-
málum.
Hér fer á eftir stutt lýsing á sveppnum:
Hatturinn 2—5 sm á breidd, í fyrstu hvelfdur en verður síðan meira
eða minna flatur og að lokum oft dálítið dældaður eða trektlaga, oft-
ast egggulur að lit. Stafurinn er fremur stuttur og ógreinilega skilinn
frá hattinum, smábreikkar hann upp þar til hann rennur í bogalínu
saman við hattinn. Rifin eða garðarnir liggja svo eins og geislar neðan
á þessum bogadregnu hliðum hattsins og ná oft niður á miðjan staf
eða lengra. Þau eru um 1—3 mm á hæð, oft gaffalgreind.
Stafur og blöð eru með svipuðum lit og hatturinn en stundum dá-
lítið dekkri, vegna þess að hatturinn hefur upplitazt. Allur er sveppur-
TÍMARir UM ÍSLENZKA GRASAFRÆÐI - FlÓm 95