Morgunblaðið - 22.04.1975, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. APRlL 1975
5
Byggingartrygging SJÚVA boetír dll utanaókomandi
tjón, þar meó talin tjon af völdum hruns, sigs, foks
'CX,'
SUÐURLANDSBRAUT 4
82500
Fóstbræður undirbúa sanisöngvana ásamt Sigrfði E. Magnúsdóttur,
sem verður einsöngvari með kórnum.
Húnavakan að hefjast
Húnavakan, hin árlega fræðslu-
og skemmtivika Ungmennasam-
bands Austur-Húnvetninga, hefst
f félagsheimilinu á Blönduósi síð-
asta vetrardag, þ.e. á morgun. Að
venju verða fluttar samfelldar
dagskrár með leikþáttum, söng og
frumsömdum gamanvfsum. Leik-
rit verður sýnt, karlakórar
syngja, sýndar verða kvikmyndir
og loks verða dansleikir á hverju
kvöldi. Húnavökunni lýkur
sunnudaginn 27. aprfl. Á annað
hundrað mans munu koma fram f
dagskráratriðum Húnavökunnar.
Húnavakan hefst með dag-
skrá Ungmennasambands Austur-
Húnvetninga sem nefnist Hús-
bændavaka. Þar mun m.a. frú
Guðrún Lára Asgeirsdóttir á
Mælifelli flytja erindi, Jóhann
Már Jóhannsson bóndi á Hrafna-
Hvar er kisa?
I Vesturbænum í Kópavogi tap-
aðist kisa sl. föstudag, sem heitir
Theodór, hálfangóra, blágrár og
hvítur með hvítar loppur. Hann
er allur Ioðinn, mest á hálsi,
bringu og skottið er geysisvert og
loðið. Ef þið hafið séð vininn
þá hringið i síma 43855. Háls-
bandið var ekki á honum vegna
þess að hann hefir verið lasinn
undanfarið.
björgum i Svinadal syngur ein
söng, skemmtikraftar úr héraðinu
syngja gamanvísur, kvartettinn
Gamlir félagar á Skagaströnd
syngur nokkur lög, ungmenni
þaðan sýna leikfimi, og loks leik-
ur lúðrasveitin á Blönduósi nokk-
ur lög.
Hjálparsveit skáta á Blönduósi
hefur lífgað upp á Húnavökuna
með margvíslegum hætti. I ár
hafa nokkrir félagar úr sveitinni
æft revíukabarett sem þeir setja
upp. Þá munu þeir sýna gaman-
leikinn Gullbrúðkaupið og atriði
úr Kardimommubænum. Loks
taka þeir nokkur rammislenzk lög
ásamt konum sínum. Frá Skaga-
strönd kemur meira efni en að
framan hefur verið getið. Má
nefna, að Umf. Fram og kvenfé-
lagið Eining sýna leikþáttinn
Ertu nú ánægð kerling? Leikrit
þetta var frumsýnt á Skagaströnd
fyrir nokkru og hlaut þá góðar
undirtektir. Leikritið verður sýnt
á laugardagskvöld, en revíukabar-
ettir.n hjálparsveitarmanna verð-
ur sýndur á fimmtudagskvöld. Á
sumardaginn fyrsta sýna nemend-
ur barnaskólans á Blönduósi
nokkur atriði um miðjan dag.
Þá er aðeins ógétið gestanna á
Húnavökunni í ár, en það eru
félagar úr Karlakórnum Heimi i
Skagafirði.
Fjöldi gesta hefur ætið sótt
Húnavökuna og er búizt við að svo
verði einnig að þessu sinni. Flug-
félagið Vængir flýgur til Blöndu-
óss dag hvern og aukaferðir eftir
þörfum og hótelið á Blönduósi
verður opið.
ÁRSSKÝRSLA Útvegs-
banka Islands fyrir árið
1974 er komin út.
Heildarinnlán bankans
jukust á árinu um 658
milljónir króna og námu í
árslok 4.645 milljónum
króna.
Heildarútlán bankans
jukust á árinu um 2.721
milljón króna og námu í
árslok 7.548 milljónum
króna, en þar af voru end-
urseld útlán 1.666 milljónir
króna, aðallega vegna sjáv-
arútvegs.
Sigríður E. Magnús-
dóttir einsöngvari
með Fóstbræðrum
KARLAKÓRINN Fóstbræður
heldur sfna árlegu samsöngva
fyrir styrktarfélaga sfna á morg-
un, miðvikudagskvöld, fimmtu-
dagskvöld, föstudagskvöld og
laugardagskvöld og hefjast öll
kvöldin kl. 19.00. Söngstjóri Fóst-
bræðra er Jónas Ingimundarson,
og eru þetta fyrstu samsöngvar
hans með kórnum, en hann var
ráðinn til hans s.l. haust. Ein-
söngvarar verða Sigríður E.
Magnúsdóttir, Hákon Oddgeirs-
son og Þorgeir Andrésson, en
undirleik annast Carl Billich.
Efnisskráin er fjölbreytt að
vanda, eftir innlend og erlend
tónskáld. Þau innlendu eru: Arni
Thorsteinsson, Sigursveinn D.
Kristinsson og Jón G. Ásgeirsson,
en eftir hann mun kórinn syngja
upphafs- og lokakórinn úr óper-
unni Þrymskviðu. Af erlendum
verkum á söngskránni má nefna
Rapsodie op. 53 fyrir alt-rödd og
karlakór eftir Jóhannes Bramhs,
kóra úr óperunni Töfraflautunni
eftir W.A. Mozart auk laga eftir
Schubert, Sibelius, Selim Seger-
stam o.fl.
Styrktarfélögum Fóstbræðra
hefur fjölgað mikið undanfarin ár
og verða samsöngvararnir því
fjórir i stað þriggja oftast áður.
Aðgöngumiðar á samsöngvana
hafa nú verið bornir út til styrkt-
arfélaga, en hafi einhverjir ekki
fengið miða sína enn, geta þeir
vitjað þeirra til Friðriks Eyfjörðs
i Leðurverzlun Jóns Brynjólfsson-
ar Austurstræti 3.
Skipting útlána bankans
til hinna ýmsu atvinnu-
greina var í árslok þannig:
sjávarútvegur 51.5%,
verzlun 14.9%, iðnaður
10.5% og aðrar greinar
23.1%.
Þannig hefur meira en helm-
ingur heildarútlána Utvegsbank-
ans gengið til sjávarútvegs. Það
verður að teljast óeðiilegt, að fjár-
mögnun helzta útflutningsat-
vinnuvegar þjóðarinnar skuli
hvíla nær eingöngu á tveimur við-
skiptabönkum, Landsbanka og
Utvegsbanka.
Tekjuafgangur Utvegsbankans
árið 1974 nam 30 milljónum
króna. Af hagnaði ársins var ráð-
stafað 15 milljónum króna til
varasjóðs, 6 milljónum króna til
afskriftasjóðs, 6 milljónum króna
til húsbyggingasjóðs og 3 milljón-
um króna til eftirlaunasjóðs
starfsmanna Utvegsbankans. Þá
greiddi bankinn ríkissjóði á árinu
41 milljón króna í skatt af gjald-
eyrisverzlun og tæpar tvær millj-
ónir króna i landsútsvar.
Menningarvaka að hefjast í Borgarfírði
MENNINGARVAKA hefst f
Borgarfirði á sumardaginn
fyrsta. Að vökunni standa Ung-
mennasamband Borgarf jarðar,
Samband borgfirzkra kvenna,
Búnaðarsamband Borgarfjarðar,
Tónlistarfélag Borgarfjarðar, og
Kirkjukórasamband Borgarfjarð-
arpróf astsdæm is.
Aðalviðburður menningarvök-
unnar verður samkoma, þar sem
fram fer kynning á borgfirzkum
skáldum og rithöfundum, ásamt
kórsöng, einsöng og léttu
skemmtiefni.
Af öðrum atriðum menningar-
vöku Borgfirðinga má nefna sam-
söng Karlakórsins Svana á Akra-
nesi, sýningu á leirmunum Stein-
urinar Marteinsdóttur og leiksýn-
ingu. Þar verður á ferð leikflokk-
ur Þjóðleikhússins með Inúk-
manninn.
Menningarvaka með líku sniði
var haldin i héraðinu í fyrra og
þótti takast með ágætum.
Eins og fyrr segir, hefst vakan á
sumardaginn fyrsta, en lýkur
sunnudaginn 27. apríl. Hún fer
fram á fimm stöðum — Lyng-
brekku, samkomuhúsinu í Borg-
arnesi, Valfelli, Logalandi og í
Bíóhöllinni á Akranesi.
Ertu að byggja ? þáþarftu
aötryggja
W
Arsskýrsla Utvegsbankans:
RÖSKIIR HELMINGUR ÚTLÁNA
RANN TIL SJÁVARÚTVEGSINS