Morgunblaðið - 22.04.1975, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 22.04.1975, Blaðsíða 34
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. APRlL 1975 Thieu mætti sífellt aukinni mótspyrnu Saigon, 2 1 aprll AP NGUYEN Van Thieu var forseti Suður-Víetnams í átta ár. Völd hans byggðust á gífurlegri aðstoð Bandarikjamanna og stuðningi hersins. Að lokum tóku Bandarikjamenn undir háværar kröfur um að hann segi af sér. Hershöfðingjar kenndu honum um ósigra hersins þar sem hann hafði fyrirskipað skipulagslaust undanhald frá miðhálendinu. Thieu átti ekki annarra kosta völ en að segja af sér til að auðvelda samninga sem gætu bundið enda á striðið. Thieu naut ekki vinsælda en hafði stjórnmálahæfileika. Hann skipaði stuðningsmenn sina i mikilvægustu embætti og myndaði öflugt valda- kerfi. Hann tryggði sér töluverðan stuðning á landsbyggðinni. Spilling þreifst undir stjórn hans og stjórnarandstæðingar sameinuðust gegn honum — þingmenn stjórnarandstöðunnar, búddatrúarmenn og hreyf- ing kaþólskra manna sem berst gegn spillingu. Sameiningin komst á i september i fyrra en landsmenn hafa litinn áhuga á stjórnmálum og stjórnarandstæðingar eru sjálfum sér sundur- þykkir. Andstaðan varð þó til þess að Thieu endurskipulagði stjórn sina og hreinsaði til i heraflanum Völd hanshöfðu stöðugt aukizt siðan hann var endurkjörinn forseti 1971 þegar hann var einn i kjöri. Eftir kosningar til öldungadeildarinnar 1973 hafði hann meirihluta i báðum þingdeildum og meirihiuta dómara á sínu bandi. Thieu einangraðist meir og meir á siðustu valdaárum sinum. Bæði vegna þess og pólitiskra hygginda var honum líkt við Nixon fv. Bandaríkjaforseta, sem kallaði hann eitt sinn „einn af fjórum eða fimm beztu stjórnmálamönnum heimsins „að sögn bandarísks heimildar- manns i Saigon. Sendiherrar Bandarikjanna, Ellsworth Bunker og Graham Martin, kölluðu hann vin sinn. Faðir hans stundaði hrisgrjónarækt i fiskiþorpi i Ninh Thuan og þar fæddist Thieu 5. april 1923. Hann stundaði nám i kaþólskum skóla i Hue en hjálpaði föður sinum á árum japanska hernámsins. Um skeið var hann félagi i æskulýðshreyfingu Viet Minh en sagði fljótt skilið við hana. Hann tók kaþólska trú þegar hann kvæntist 1951. Þá hafði hann lokið námi i herskólanum i Dalat og herskóla i Frakklandi. 1954 varð hann ofursti. Hann varð siðan yfirmaður Suður-vietnamska herskólans og stjórnaði aðgerðum á Mekongóshólmasvæðinu. Hann sótti tvívegis námskeið i Bandaríkjunum. Þegar Ngo Dinh Diem var steypt af stóli 1. nóvember 1963 réðu skriðdrekar Thieus úrslitum. Hann sýndi dæmigerða varkárni og sendi þá ekki af stað fyrr en hann var viss um að aðrir herforingjar hefðu látið til skarar skriða. Hann varð þjóðhöfðingi 1965 en völdin voru i höndum Nguyen Cao Ky flugmarskálks sem var forsætisráðherra. Völdunum náði Thieu i september 1 967 þegar aðrir herforingjar kusu hann forseta og Ky varð varaforseti. í vorsókninni 1972 lýsti Thieu yfir herlögum, bannaði stjórnmálaflokka og þúsundum var varpað i fangelsi. Hann stóð lengi í vegi fyrir samningum við Norður-Vietnama. Hann sagði Henry Kissinger utanrikisráðherra að hann léti þá leika á sig. Bardagar blossuðu upp að nýju eftir Parísarsamningana, flóttamönn- um fjölgaði, verðbólga magnaðist, hryðjuverkastarfsemi færðist i auk- ana, erlendar fjárfestingar minnkuðu og fátækt jókst. Thieu tók ákvarðanir án þess að spyrja aðra en tvo nánustu samstarfsmenn sina. Hernum tókst að þrauka þótt honum væri illa stjórnað en hann var vel búinn vopnum. Umbætur i landbúnaðarmálum báru nokkurn árangur en spillingin hélt áfram. Stjórn Thieus var talin spillt einræðisstjórn. Hún naut þvi ekki stuðnings. allra sizt i Bandarikjunum. Endurskipu- lagning á stjórninni og embættismannakerfinu og hreinsun i heraflan- um breyttu engu þar um. Siðustu mánuðina reyndi Thieu fyrst og fremst að fá bandariska þingið til að samþykkja 300 milljón dollara aukaaðstoð sem Ford Framhald á bls. 24 Heiðarlegur eftirmaður en heilsuveill Saigon, 21. april. AP. TRAN VAN HUONG, hinn nýi forseti Suður-Vietnams, var varaforseti Nguyen Van Thieus fráfarandi forseta og er gamalreyndur stjórnmála- maður. Hann hefur orð fyrir að vera heiðarlegur og hæfur maður en er heilsuveill og það getur háð honum á þeim erfiða tima sem fer i hönd. Huong er sjötíu og tveggja ára gamall, fæddur i héraðinu Vinh Long á Mekongóshólmasvæðinu og hlaut menntun sina i Saigon og Hanoi. Á yngri árum sinum var hann kennari og námsstjóri. Hann var skipaður borgarstjóri i Saigon 1 954 og gegndi þvi starfi i sex mánuði. Hann varð siðan framkvæmdastjóri Rauða krossins og gegndi þvi starfi til 1960. Siðan dró Huong sig i hlé um tima og sendi frá sér nokkrar Ijóðabækur og vietnamska óperu. Eftir fall Ngo Dinh Diems forseta sat hann um skeið i nefnd áhrifamanna sem var stjórninni til ráðuneytis. Forsætisráðherra var hann frá þvi i nóvember 1964 til janúar 1965. Hann bauð sig fram i forsetakosningunum 1967 en tapaði fyrir Thieu og Nguyen Cao Ky. Huong féllst á að verða forsætisráðherra 1969 og bakaði sér með þvi reiði margra stuðningsmanna í liði stjórnarandstæðinga en sagði af sér eftir nokkra mánuði. Pólitiskar heimildir hermdu að hann hefði sagt af sér vegna þess að Thieu veitti honum ekki nógu mikil völd og sjálfstæði. Vinslit Huong og stjórnarandstæðinga urðu alger þegar hann varð varaforseti Thieus í kosningunum 1971 þegar listi þeirra var einn í kjöri. Thieu skipaði hann formann nefndar sem átti að kanna spillingu en samkvæmt góðum heimildum hafði hann litið svigrúm til að ráðast gegn þeim vanda vegna þess að Thieu gaf honum ekki lausan tauminn. Huorig var lagður í sjúkrahús i ársbyrjun 1973 vegna ýmissa sjúkdóma, meðal annars sykursýki. lifrarsjúkdóms og augnsjúkdóms. Heilsa hans er enn sögð bágborin. Hann gengur við staf og sér mjög Isl________________________________________________ FJÖLDAFUNDUR SÓSÍALISTA. -Þ Einn af stuðnings- mönnum sósíalista- flokksins í Portúgal heldur á ljósmynd af Costa Gomes, hershöfðingja, for- seta byltingarráðs- ins, á fjöldafundi flokksins í Lissabon á sunnudag. Sjá frétt á forsíðu. AP-sfmamynd. Kýpurkon- ur mótmæla Larnaca, 21. apríl — Reuter. UM 40 griskumælandi konur á Kýpur, ásamt nokkrum brezkum, frönskum, þýzkum og pólskum stallsystrum, sátu í alla nótt fyrir framan sprengjulinu tyrkneska hersins til þess að krefjast þess að flóttamönnum á yfirráðasvæði Tyrkja handan línunnar yrði leyft að fara heim í samræmi við samþykkt Sameinuðu þjóðanna þessa efnis. Þessi mótmælaseta fylgir í kjölfar tilraunar meir en 20.000 kvenna í gær til að fara fylktu liði gegnum sprengjulínu Tyrkja til Famagusta. Tyrkirnir synjuðu þeim inngöngu. Um 200.000 flóttamenn af grisku bérgi brotnir eru nú á tyrknesku yfirráðasvæði. Sovétmenn og Egypt- ar treysta samskiptin — Arabaleiðtogar á rökstólum í Riyadh — Beirut,Moskvu, 21. apríl. AP — Reuter. KHALED, hinn nýi konungur Saudi Arabíu tók í dag á móti Hafez Assad Sýrlandsforseta og Anwar Sadat Egyptalandsforseta i Riyadh, en þeir munu ræða nýj- ar samræmdar aðferðir til að koma á friði í Miðausturlöndum, með sérstöku tilliti til nýrrar frið- arráðstcfnu í Genf. Heimildir hermdu að Yassir Arafat, leiðtogi Frelsishreyfingar Palestínu, myndi einnig mæta til fundarins. Sambúð Sýrlendinga og Egypta hefur verið stirð síðan Sadat lagði blessun sína yfir sáttatilraunir Kissingers, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Ismail Fahmi, utanríkisráð- herra Egypta, lauk í dag viðræð- um sinum við sovézka ráðamenn í Moskvu, en i gær skýrði hann frá því að Sovétstjórnin legði áherzlu á að Genfarráðstefnan hæfist að nýju i júnímánuði. 1 lokayfirlýs- ingu um viðræðurnar í Moskvu fullvissar Leonid Brezhnev flokksleiðtogi Fahmi um að Sovét- rikin muni áfram veita Araba- löndunum stuðning í deilunni við Israel, og muni Egyptar og Sovét- menn treysta samvinnu sína. Þá London, 21. apríl. Reuter. AMNESTY International hefur skorað á Leonid Brezhnev, aðal- leiðtoga sovézka kommúnista- flokksins, að sleppa úr haldi þremur mönnum úr Moskvu-deild samtakanna. Martin Ennals, aðalritari mannréttindasamtakanna, sagði f símskeyti til flokksforingjans að öll starfsemi sovétdeildarinnar væri lögleg samkvæmt sovézkum lögum. Hann sagði að félagsmenn samtakanna í Moskvu berðust að- eins fyrir frelsi fanga utan Sovét- rlkjanna. Tveir menn úr sovétdeildinni, segir að Brezhnev muni á næst unni fara í opinbera heimsókn til Egyptalands. Á leiðtogafundinum i Riyadh er gert ráð fyrir að lagt verði fast að Arafat að hann skýri afstöðu Palestinuaraba til þátttöku í Genfarviðræðum. Andrei Tverdokhlebov, 35 ára gamall eðlisfræðingur, og Mikola Rudenko, rithöfundur frá Ukranínu, voru handteknir á föstudaginn. Þriðji maðurinn, dr. Sergei Kovalyov líffræðingur, var handtekinn í desember, sakaður um andsovézka áróðurstarfsemi. Rudenko var látin laus á laugar- dag í Kiev gegn loforði um að fara ekki úr borginni og jafnframt ákærður fyrir að dreifa andsovézkum rógi að sögn kjarn- orkueðlisfræóingsins Andrei Sak- harovs. Rudenko var sagt að bíða Framhald á bls. 24 Brezhnev beðinn að sleppa þremur Amnesty-mönnum Mikill klofningur í norska Verka- mannaflokknum vegna formannskjörs Osló, 21. apríl NTB —Reuter. ARSÞING norska Verkamanna- flokksins hófst í Ösló í gær og er þetta þing talið eitt hið mikilvæg- asta fyrir flokkinn um margra ára skeið. Trygve Bratteli, forsæt- isráðherra og formaður flokksins, skoraði f setningarræðu sinni á flokksmenn að sýna meiri sam- stöðu og einingu, til þess að flokk- urinn geti staðið af sér nýjar sóknarlotur vinstrimanna og kommúnista. Sagði Bratteli, að það væri verkefni þingsins að finna nýjan starfsgrundvöll, sem muni tryggja einingu innan flokksins og nýja sókn hans f norskum stjórnmálum. Fréttaritarar segja að Bratteli hafði haldið ræðu sína yfir mjög klofnu þingi út af væntanlegu for mannskjöri, en Bratteli hefur ekki gefið kost á sér til endur- kjörs. Tveir menn koma helzt til greina sem flokksformenn, Odvar Nordli, 47 ára að aldri, sem er formaður þingflokks Verka- mannaflokksins og Reiulf Steen, sem gegnt hefur embætti varafor manns flokksins sl. 10 ár. Mikil harka er sögð i kosningabaráttu stuðningsmanna beggja. Frétta- ritarar segja að úrslit kosning- anna muni ákveða pólitíska fram- tíð flokksins. 300 fulltrúar sitja þingið. Bratteli sagði í ræðu sinni, að flokkurinn væri enn ekki búinn að sigrast á þeim erfiðleikum, sem hann lenti í, er vinstrimenn í flokknum klufu sig úr honum snemma á síðasta áratug og stofn- uðu sósialiska þjóðarflokkinn. Sá flokkur gekk siðan i kosninga- bandalag við kommúnista i kosn- ingunum 1973 og fengu 16 af 155 þingsætum í Stórþinginu, en Verkamannaflokkurinn 62 þing- menn kjörna. Þetta bandalag vinstrimanna hefur allt frá því verið Verkamannaflokknum mik- ill pólitískur höfuðverkur. Bratt- eli varaði þingfulltrúa við að gera of mikið úr kosningu formanns, varaformanns, framkvæmda- stjóra og aðalritstjóra málgagns flokksins, Arbeiderbladets. Miklar almennar stjórnmála- umræður urðu eftir ræðu Brattel- is, og var þar einkum fjallað um stöðu Verkamannaflokksins í dag og framtíðarhorfur hans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.