Morgunblaðið - 22.04.1975, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL 1975
13
sem er borgaralegur flokkur og
hefur tvo þingmenn. Lang stærsti
flokkurinn er svo Landsbyggðar-
og skerjagarðskosningabanda-
lagið, sem hefur 18 þingmenn.
Þetta er borgaralegur flokkur,
sem myndaður er á grundvelli
byggðahagsmuna. Loks kemur
svo Frisinnad samverkan, sem er
hægri sinnaður borgaraflokkur,
sem hefur á að skipa fjórum þing-
mönnum. Þetta eru ólíkir flokkar
um margt, en þeir hafa skipað sér
undir eitt merki í sjálfstjórnar-
málunum og þau ráða miklu um
afstöðu þeirra. Alandsk vSnster
er svo lítill kommúnistaflokkur,
sem var langt frá því að fá mann
kjörinn I kosningunum 1971. Sá
flokkur stendur einnig fyrir utan
Álandsk samling.
Formaður Álándsk samling er
Evald HSggblom, sem jafnframt
er fulltrúi Alendinga á finnska
ríkisþinginu. Hann er mjög I
sviðsljósinu um þessar mundir
vegna tilrauna hans til að tak-
marka ræðutímann í finnska
þinginu, en málæði þykir þar
keyra úr hófi fram.
Hræddir við
nýtt kerfi
Forseti landsþings Álandseyja
nú er Folke Woivalin. Hann hefur
tekið mikinn þátt í störfum
Norðurlandaráðs síðan Álend-
ingar fengu aðild að því og m.a.
átt sæti í norrænu menn-
ingarmálanefndinni. Hann segir,
að flokkakerfið sé þannig upp
byggt, að á þingi komi mjög sjald-
an til átaka milli hægri og vinstri
afla. Að vísu sé mikill borgara-
legur meirihluti I þinginu, en í
flestum efnum ráði önnur sjónar-
mið ferðinni. Aðspurður segir
hann á hinn bóginn, að í öllum
stjórnmálahópunum sé viss órói.
Göran Fagerlund er yngsti
þingmaður Alandseyja. Hann
hefur nýlega sett fram þá skoðun,
að nauðsynlegt sé að stokka upp
flokkakerfið og koma á skarpari
skilum á milli flokka á hug-
myndafræðilegum grundvelli.
Hann vill tveggja flokka kerfi og
þingræði, þannig að landsstjórnin
styðjist jafnan við ákveðinn
meirihluta á þingi.
Aðspurður sagðist Folke Woi-
valin vera á móti þessum
hugmyndum. Hann sagðist vera á
móti þingræðisreglunni. Ríkjandi
fyrirkomulag með hlutfallskosn-
ingum í landsstjórnina tryggði
meira jafnvægi. Menn væru
almennt hræddir við að reyna
nýtt kerfi. Ritari ÁlSndsk
samling, Folke Sjölund, segir á
hinn bóginn, að í röðum ungra
manna sé í vaxandi mæli rætt um
nauðsyn þess að koma á þing-
ræðisskipulagi. Hann telur lík-
legt, að breytingar verði á í þess-
um efnum á næstu árum, en óvíst
sé, hvort þeirra muni gæta f kosn-
ingunum, sem fram eiga að fara
næsta haust.
Woivalin segir, að á þingi taki
menn í flestum tilvikum persónu-
lega afstöðu til mála og þing-
flokksfundir þekkist tæplega.
Hann segir ennfremur, að þingið
taki til meðferðar 40 til 50 laga-
frumvörp auk fjárlaga á hverju
ári. Um þessar mundir sé allmikið
deild um nýja veiðilöggjöf og
ferðaskatt, sem nota eigi til
umhverfisverkefna. Þá sæktu
Álendingar nú á um aukið frjáls-
ræði í skattamálum. Woivalin
segir, að tæplega sé unnt að tala
um atvinnustjórnmálamenn á
Álandseyjum, nema þá helzt þá,
sem sitja í landsstjórninni.
Sjálfur er Woivalin bóndi, og
hann viðurkennir, að stundum sé
erfiðleikum bundið að sinna
bústörfunum jafnframt þing-
störfunum. Woivalin er eins og
aðrir Alendingar fyrst og fremst
sjálfstjórnarmaður, og hann stað-
hæfir, að eyverjar hafi alla jafnan
sterkari sjálfstæðiskennd en
meginlandsbúar. — Og ugglaust
hefur hann nokkuð til sfns máls i
því efni. — ÞP.
LESIO
oncLEcn
SíCt*
hagiæðmga' P
ir^rð l'rá kr
rekstn
ili
Fjölbreytt úrval
af buxum
í mörgum
efnum,
sniÖum
og litum
TAKIÐ
SPORo
c7HEÐ PVÍ
AÐ KAUPA
IVORo
'þegar fér lagií
H.BENEDIKTSSON H.F
SÍMI 38300 — SUÐURLANDSBRAUT 4 - REYKJAVÍK
Jíi//ld tSSna/ocrrr? a h'ó/(fí/stu
óef/icf mm/ia/eó/oa//ar?s t sÁa/sem
i er /2Sm/. f /y /o/rttJ af /ra/c/r/ entolÁc.
'ieytié />ar til lógunnn er />y//cur (2m/n/
/remúf s yrunnt, o/a/J s/at ftss/rafýúna )
//atut S/éfan tnn t Jryst/nr? ttn? (atf />'/ ///s/.