Morgunblaðið - 22.04.1975, Blaðsíða 16
1
i
4
f
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. APRlL 1975
2000 milljóna kr. skattalækkun:
1380 millj. kr. tekjuskattslækk-
un, 540 m. kr. söluskattslækk-
un og 80 m. kr. tollalækkun
LAGÐAR voru fram á Alþingi í gær breytingartillögur meirihluta
fjárhags- og viðskiptanefndar (stjórnarflokkanna) við frumvarp til
laga um ráðstafanir í efnahagsmálum. Tillögurnar gera ráð fyrir
2000 milljóna króna skattalækkun, þ.e.: 1380 milljón króna
lækkun tekjuskatts, 80 milljón króna tollalækkun og 540 milljón
króna lækkun söluskatts. Frumvarpið og breytingartillögur
stjórnarflokkanna fela í sér verulegar hagsbætur, sem einkum
koma til góða hinum lægst launuðu í þjóðfélaginu án þess að fela
í sér aukna skattbyrði á eina eða neina starfsstétt þjóðarinnar.
Ólafur G. Einarsson (S), 5. þingmaður Reyknesinga, gerði
grein fyrir þessum breytingartillögum í ítarlegu máli. Fara hér á
eftir nokkrir kaflar úr ræðu hans, en rúm þingsíðunnar leyfir ekki
birtingu hennar í heild.
Eins og áður hefur komið fram
voru það tilmæli ASÍ, að öll skatta-
lækkunin, sem heitið var, 2000
milljónir króna, kæmi fram í lækkun
beinna skatta. og í samræmi við það
var í siðari tillögu Alþýðusambands-
ins lagt til, að V. kafli frv. yrði felldur
niður, þ.e. heimildarákvæðin um
lækkun eða niðurfellingu tolla og
söluskatts af einstökum matvöru-
flokkum. Meirihluti nefndarinnar
hefur ekki treyst sér til þess að verða
við þessum tilmælum. Ástæðurnar
eru einkum tvær:
0 f fyrsta lagi teljum við, að frv.,
eins og það nú er, með breytingatil-
lögum okkar, efni það fyrirheit að
fullu, sem forsætisráðherra gaf þann
26. mars sl.. þ.e. að lækka skatta
um allt að 2000 milljónir króna, með
það fyrir augum að skattaiækkun
þessi gagnist best þeim, sem við
erfið kjör bua.
0 f öðru lagi verður að teljast var-
hugavert að lækka beina skatta
meira en hér er gert ráð fyrir, án
þess þá jafnframt að gera viðtækari
breytingar á lögunum, svo sem varð-
andi sérsköttun hjóna o.fl.
Til þess að gera frekari grein fyrir,
hversvegna frv. er nú svo úr garð
gert, sem það er, en ekki einhvern
veginn öðruvisi, verð ég að fara
nokkrum orðum almennt um lækkun
beinna skatta, helstu atriði breyting-
anna á tekjuskattinum og fara siðar
nokkrum orðum um persónuafslátt
og nýtingu hans.
Almennt um
lækkun beinna
skatta
Sem kunnugt er hefur verið sam-
þykkt i fjárlögum ársins 1975 að
skattvisitala skuli hækka um 51%.
Samsvarar þetta til fulls áætlaðri
tekjuaukningu að meðaltali milli ár-
anna 1973 og 1974. Með þessari
ákvörðun var leitast við að tryggja
að skattbyrði hækkaði ekki milli ára.
Þá er i fjárlögum gert ráð fyrir
lækkun tekjuskatts og eru ætlaðar
til þess 700 millj. kr. og til að greiða
fyrir sameiningu fjölskyldubéta og
skattgreiðslna.
Við tillögugerð um tilhögun
skattalækkunarinnar var tekið mið
af framtíðarstefnu í skattamálum og
tillögurnar urðu einnig liður í því að
stuðla að samkomulagi milli aðila
vinnumarkaðarins um kaup og kjör.
Eins og frv. liggur nú fyrir með
breytingartillögum meirihlutans felur
það i sér lækkun beinna skatta um
1380 millj kr við álagningu á þessu
ári.
Helstu atriði
breytinganna
á tekjuskatti
Þeim tilgangi að skattalækkunin
gagni best tekjulágum og miðlungs-
tekjufólki er náð með þvi að breyta
persónufrádrætti gildandi laga i per-
sónuafslátt, með þvi að sameina
ivilnanir rikisins til barna i barnabæt-
ur, sem eru gerðar óháðar tekjum,
með breytingu heimilisfrádráttar ein-
stæðra foreldra i afslátt, og með þvf
að gera ráð fyrir að lækkunar-
heimildir skv, 52. gr. geti komið
tekjulágum að betra haldi en hingað
til.
Einnig eru i frv. önnur nýmæli,
eins og skattaleg meðferð fólks sem
býr saman i óvígðri sambúð, ákvæði
sem koma i veg fyrir, að persónuaf-
sláttur nýtist með óeðlilegum hætti
o.f I.
f 10. gr. frv., sem verður 9. gr.
skv. tillögum meirihlutans, er að
finna uppistöðu þeirra breytingartil-
lagna sem gerðar eru til lækkunar á
tekjuskatti einstaklinga og til tekju-
jöfnunar.
Skv. tillögum meirihlutans er gert
ráð fyrir að ákvæði frv. um upphæðir
persónuafsláttar og barnabóta, svo
og um skattstiga og skatthlutföll
standi óbreytt. Varðandi meðferð
persónuafsláttar er lagt til að eftir-
stöðvar hans gangi i fyrsta lagi ekki
til greiðslu eignarskatts, eins og frv.
gerir ráð fyrir, heldur einvörðungu
útsvars á gjaldárinu, og i öðru lagi,
að þær eftirstöðvar sem þá kunna að
verða greiðist ekki út heldur falli
niður.
f frv. er einnig miðað við þá
meginreglu, að eftirstöðvar greiðist
ekki út, en undantekning er þar gerð
um lifeyrisþega að ákveðnu marki.
Meirihlutinn leggur jafnframt til að
þessi útgreiðsla verði sameinuð
tekjutryggingu almannatrygginga,
og mun tillaga ! þessu efni verða
gerð ! meðferð frv. til laga um lág-
launabætur sem nú liggur fyrir
Alþingi.
Þar sem frv. og tillögur meiri-
hlutans fela i sér veigamiklar breyt-
ingar frá gildandi lögum varðandi
meðferð persónuafsláttar er rétt að
gera tillögunum sérstök skil.
Um persónufrádrátt
og reglur
um nýtingu hans
Hugtakið skattafsláttur var fyrst
lögleitt við skattkerfisbreytinguna
1974, sbr. lög nr. 10 22.
mars/1974. Skattafsláttur var þá
kr. 11.000.00 fyrir einstakling,
18.500 kr. fyrir hjón, 3.300 kr. fyrir
hvert barn, 6.500 kr. aukalega fyrir
einstætt foreldri og 600 kr. að auki
fyrir hvert barn þess. (f greinargerð
frv. er að finna þessa afslætti með
skattvisitölu 151). Skattafsláttur
þessi takmarkast við 6% af tekjum,
sbr. nánari skilgreiningu laganna.
Nýtist skattafsláttur ekki til greiðslu
á tekjuskatti skal honum ráðstafað
með ákveðnum hætti og greiðast út
til viðkomandi framteljanda, ef svo
ber undir. Ráðherra skyldi með sér-
stakri reglugerð ákveða meðferð
skattafsláttar þar sem m.a. skyldi
tryggt eftir föngum að vissir aðilar
nytu ekki skattafsláttar.
Hugmyndin um skattafslátt var að
mörgu leyti gagnmerk en hana bar
að með nokkuð öðrum hætti en við
hefði mátt búast. Skattafslátturinn
kom á ská á skattkerfið og varð
nokkurskonar viðhengi sem laut sin-
um eigin lögmálum. Einnig hafa
komið ! Ijós nokkrir gallar á fyrir-
komulaginu á þv! reynsluári sem
liðið er og er ástæða til að bæta úr
þvl.
Um persónuafslætti þessa frum-
AIÞMGI
varps og barnabætur (sem eru i
reynd útborganlegur afsláttur) og
reglur um þá, er þetta helst að segja,
að teknu tilliti til breytingartillagna
meirihlutans:
0 1. Tilgangur afslátta og barna-
bóta er að ná tekjujöfnunaráhrif-
um og meira réttlæti en hingað
til. Jafnframt er sú mikla ein-
földun gerð að fjölskyldubætur
almannatryggingakerfis eru
sameinaðar skattgreiðslum.
Skattafslættinum frá 1974 var
ætlað að bæta að nokkru hækkun
söluskatts.
0 2. Persónufrádráttur skerðist ekki
við tiltekið tekjumark ! frv. eins
og gildandi lög kveða á um. Þessi
6% skerðing hefur eflaust orðið
til að halda kostnaði vegna af-
slátta niðri, en jafnframt fylgdi sá
böggull skammrifi, að ýmsir sem
mest þurftu á afslætti að halda
vegna tekjuleysis eða lágra
tekna. f gildandi lögum eru sér-
ákvæði um námsmenn, sem felld
eru niður! frv.
0 3. Frv. gerir ráð fyrir stórfelldri
hækkun persónuafsláttar, þar
sem persónufrádrætti er að fullu
breytt I afslátt og hann
sameinaður skattafslætti. Af
þessum sökum þarf að huga vel
að framkvæmdaatriðum og girða
fyrir óréttlæti i meðferð afsláttar-
ins. f þv! skyni að tryggja réttláta
og sanngjarna nýtingu eftir-
stöðva persónuafsláttar eru
settar tvær reglur i frv.
f fyrsta lagi er ætlast til þess að !
þeim tilvikum er sveitarstjórn
hefur heimild til að beita svo-
nefndri reglu um viðmiðunartekj-
ur skuli tekjur til tekjuskattsút-
reiknings hækkaðar með ákveðn-
um hætti, þannig að minna gangi
upp ! útsvar en ella. f öðru lagi
eru reistar almennar skorður við
þv! að þeir sem hafa verulega
lægri skattgjaldstekjur en vergar
tekjur til skatts fái að nýta eftir-
stöðvar persónuafsláttar til greiðslu
á útsvari.
0 5. Þau atriði, sem vega þyngst á
metunum við ákvörðun um að
eftirstöðvar persónuafsláttar
greiðist ekki út umfram útsvar
eru þessi:
a) Hin stórfellda hækkun afslátt-
arins útheimtir fyllstu varfærni !
útborgun.
b) Með þeirri tilhögun barnabóta
sem frv. gerir ráð fyrir, verða þær
! reynd útborganlegur afsláttur,
þanrrig að allt barnafólk fær út-
borganlegan afslátt Jafnframt
jafngilda barnabæturnar stór-
felldri hækkun útborganlegs af-
sláttar hjá þeim sem mikla
ómegð hafa, svo og hjá þeim
tekjulágu. vegna þess að skerð-
ingarákvæði gildandi laga hafa i
för með sér að þessi hópur fær
lítinn eða engan skattafslátt 6%,
en takmörkunin nær einnig til
skattafsláttar vegna barns.
c) Lífeyrisþegar fá ígildi útborgan-
legs afsláttar með hækkun tekju-
tryggingar.
d) Sérstök athugun hefur verið
gerð á þvi hverjir það gætu verið
og hve margir það væru, sem
töpuðu á þvi að eftirstöðvar per-
sónuafsláttar yrðu ekki greiddar
út.
Sargkvæmt framansögðu getur
þar einungis verið um að ræða
tekjulága framteljendur úr hópi
barnlausra hjóna og einhleypinga,
sem ekki eru lífeyrisþegar.
Hið athyglisverða kemur i Ijós,
að nær öll barnlaus hjón með
minna en 550 þús. kr. brúttotekj-
ur eru lífeyrisþegar. Þegar tekið
hefur verið tillit til þess, svo og
fjölda atvinnurekenda og fjölda
ungra hjóna án barna á þessu
tekjubili, er ! mesta lagi um 65
barnlaus hjón að ræða sem tapað
ætu á þv! að útborgun yrði hætt.
hópi einhleypinga eru tekju-
lægstu framteljendurnir ungling-
ar á aldrinum 16—20 ára. Fyrir
utan unglinga, atvinnurekendur
og lifeyrisþega eru á brúttótekju-
bilinu 0—250 þús. kr. innan við
3 þús. framteljendur, en hluti
þeirra eru námsmenn eldri en 20
ára. Það eru þv! fáir ! þessum
hópi sem mundu bera skarðan
hlut frá borði, kannski um 2 þús.
framteljendur, sem mundu sjá af
óverulegum upphæðum.
e) Það sem greitt yrði út ! lokin
yrði það litið að vafasamt er
hvort Alþingi getur mælt með þv!
að almannafé verði varið til að
halda uppi sl!ku kerfi, sérstaklega
ef tekið er tillit tilþeirrar gagn-
rýni, sem fram hefur komið á
meðferð skattafsláttar á siðast-
liðnu ári. Þetta gildir einnig um
tillögu ASf að þessu leyti. Þv! má
ekki heldur gleyma, að sá fá-
menni hópur sem nú sæi af skatt-
afslætti kemur til með að njóta
þeirrar skattalækkunar sem nú er
lögð til þegar þeir koma út á
vinnumarkaðinn.
Um tekjutryggingu
Áætlað er að útborgun til lif-
eyrisþega umfram útsvar skv.
reglum frv. i óbreyttu formi hefðu
getað numið 1 50—200 millj. kr.
Ólafur G. Einarsson, framsögu-
maður meirihluta fjárhags-
nefndar.
á þessu ári. Ástæðan fyrir þvi að
frv. gerði ráð fyrir sérmeðferð
lífeyrisþega var sú, að niðurfell-
ing útborganlegs afsláttar hefði
komið hart niður á þeim. Þeir
fengu stóran hluta þess skattaf-
sláttar sem borgaður var út
1974, ekki sist vegna þess að
sveitarfélög lækkuðu yfirleitt út-
svör á Iffeyrisþegum eins og þau
hafa heimild til.
Það væri æskilegt, að geta bú-
ið þannig um hnútana að ekki
væri verið að tekjujafna á mörgum
stöðum til sama fólksins. Tillagan
um barnabætur ! frv. er einmitt til
komin í þvi skyni að sameina
Ivilnanir hins opinbera til barna á
einn stað. Eðlilegast væri að fara
svipað að varðandi lifeyrisþega.
Kemur þá til álita að breyta
tekjutryggingu ! afslátt ! skatta-
kerfinu eða flytja hinn útborgan-
lega afslátt yfir á tekjutrygging-
una. Hefur seinni kosturinn orðið
fyrir valinu, þar sem hinn fyrri
þýddi umfangsmeiri breytingar
og þv! eðlilegt að sá kostur verði
ihugaður nánar við frekari athug-
un á samhæfingu tryggingabóta
og skattkerfis. Sameining afslátt-
arins og tekjutryggingarinnar
skv. tillögu meirihlutans hefur
jafnframt þann kost að greiðsl-
urnar verði mánaðarlegar, en út-
borgun afsláttar kæmi að öðru
jöfnu i einu lagi á ári hverju eftir
að skattskrá hefur verið lögð
fram.
Að sjálfsögðu yrði þessi fram-
kvæmdamáti til eínföldunar og
sparnaðar
Niðurfelling söluskatts í stað
frekari tekjuskattslækkunar
G 1. Talið hefur verið varhugavert
að lækka beinu skattana meira !
þessum áfanga án þess að gera
jafnframt veigameiri breytingar á
lögunum, t.d. varðandi sérskött-
un hjóna. sem rlkisstjórnin hefur
samþykkt að beita sér fyrir.
0 2. Eðlilegt er að viðbrögð ASf
hafi verið á þennan veg meðan
það hékk I lausu lofti hvernig
heimildum frv. yrði beitt. Nú þeg-
ar ákveðnar vörutegundir, sem
tvimælalaust eru brýnar nauð-
synjar, hafa verið nefndar, ætti
að vera Ijósara. hver áhrifin
verða.
0 3. Ekki er unnt að benda á mark-
tækan mun á þvi hvort kemur
lágtekjufólki betur í þessum efn-
um, samanber töflu þjóðhags-
stofnunar, sem frammi liggur.
0 4. Ekki þarf að lita á þetta sem
tilhögun sem standa þarf um ald-
ur og ævi.
0 5. Myndar mótvægi við allar nið-
urgreiðslurnar á kjöti og mjólk.
Söluskattur
af kjötvöru
Þá ræddi þingmaðurinn um fram-
komnar tillögur um niðurfellingu
söluskatts af kjörvöru. Um það efni
sagði þingmaðurinn m.a.:
Við framkvæmd söluskattslaga verð-
ur að ganga út frá þvi, að sá sem senda
á uppgjör á söluskatti til skattyfirvalda
hafi sjálfur möguleika til að greina
undanþágusölu frá annarri sölu með
nokkurri nákvæmni, svo og að skattyf-
irvöld hafi tæknilega möguleika til að
sannreyna réttmæti uppgjörsins.
Um kjötvörur er þvi það að segja,
að hér er um mun erfiðari þátt að
ræða en t.d. mjólk og mjólkurvörur
eða olíu til húshitunar, og virðist
ekki ! fljótu bragði vera mögulegt að
setja neina skynsamlega örugga
framkvæmdareglu um söluskatts-
undanþágu á sölu þessara vöruteg-
unda og skal ég nefna aðeins nokkur
atriði ! þv! sambandi:
0 1. Dreifing kjöts og kjötvara til
smásala (og beint til neytenda) er
! höndum fjölda aðila (framleið-
endur, kjötvinnslustöðvar) og
varan er seld á mjög mismunandi
framleiðslustigum.
0 2. Vinnsla kjötvara. Vinnsla kjöt-
vara fer ! flestum tilvikum fram
að einhverju leyti hjá smásala
sjálfum og er þv! ekki hægt að
beita fastri álagningarreglu. Sem
dæmi má nefna kjötkaupmann,
sem kaupir kjöt I heilum skrokk-
um af framleiðanda fyrir fast
verð. Kaupmaðurinn selur hluta
kjötsins ! heilum stykkjum, hakk-
ar hluta þess, sagar annað, reyk-
ir, saltar og býr til álegg. Hve
mikið kaupmaðurinn fær endan-
lega fyrir kjötskrokkinn getur
hann naumast vitað þar sem sala
hans blandast sölu annarra vara i
versluninni, og það er engin til-
tæk leið til að reikna það út með
neinni vissu.
0 3. Sala á kjöti og unnum kjötvör-
um er stór liður I sölu veitinga-
húsa og matsölustaða. Þegar seld
er t.d. kjötmáltið á veitingahúsi
er verið að selja ekki bara efnið i
máltíðina. þ.e. kjöt, heldur einnig
grænmeti, sósur o.s.frv., auk
þjónustunnar, og verður kjöt-
salan vart aðgreind frá öðru !
þessu tilviki.
0 4. Verði sala kjöts i veitingahús-
um talin söluskattskyld vaknar
t.d. spurning um sölu tilbúinna
rétta ! matvöruverslunum og að-
greiningu þeirrar sölu frá annarri
sölu sllkra verslana.
0 5. Verði undanþáan hinsvegar
takmörkuð við óunnið kjöt (sem
nánar yrði skilgreint) skapast
margvislegir möguleikar til und-
anskota og verður ekki séð hvaða
möguleikar eru til að sannreyna
söluskattsuppgjör þeirra, sem
versla með þessar vörur.
Einstæðir foreldrar
Þá sagði þingmaðurinn að komið
hefði verið til móts við óskir ein-
stæðra foreldra, sem þýða myndi 40
m. kr. hagsbætur fyrir þá og rakti
nánar ákvæði þar um.
Fleiri þættir skattamála í endur-
skoðun
Að lokum sagði þingmaðurinn, að
fleiri þættir skattamála væru nú i
endurskoðun. Fyrir haustþing yrði
undirbúið frumvarp um sérsköttun
hjóna með skiptingu tekna þeirra og
eigna að jöfnu og skattlagningu
hvors helmings um sig. Unnið væri
að athugun á þvi að taka upp virðis-
aukaskatt i stað söluskatts. Stað-
greiðslukerfi skatta væri ! sérstakri
athugun. Þessar breytingar, sem hér
væri stefnt að. væru aðeins fyrsta
skrefið af mörgum, sem eftir væri að
stlga „Ég er sannfærður um," sagði
þingmaðurinn, „að þessar breytingar
horfa allar til heilla fyrir þegna þjóð-
fétagsins."