Morgunblaðið - 22.04.1975, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. APRlL 1975
17
NORÐURSJÓRINN — Nokkrir bátar hafa verið að búa sig á síldveiðar í
Norðursjónum undanfarna daga. Hér er mynd af einum þeirra, Ásbergi RE. Verið
er að setja kassa um borð.
Ljósm. Sv.Þorm.
G.I. 90
ára í vor
AÐALFUNDUR Garðyrkjufélags
lslands var haldinn nýlega. 1
skýrslu stjórnar kom fram, að
starfsemin hefur verið mikil og
fjölbreytt á sfðasta starfsári, en
þar ber þátt fræðslustarfsins
hæst eins og verið hefur.
Félagsdeildir eru í Reykjavik, á
Akureyri, Akranesi, Borgarnesi,
Suðurnesjum og i Vestmannaeyj-
um, og er nú í athugun að stofna
deildir víðar um land.
Utgáfustarfsemi er liður i
fræðslustarfi Garðyrkjufélags Is-
lands, en félagið gefur nú út tvö
rit, Garðyrkjuritið og Garðinn,
sem er fréttabréf. Þá birtast stutt-
ir pistlar á vegum G. I. í Morgun-
blaðinu, undir heitinu „Blóm vik-
unnar“.
Garðyrkjufélag Islands verður
90 ára í vor, og er það meðal elstu
starfandi félaga á landinu.
Félagsmönnum hefur farið mjög
fjölgandi á undanförnum árum og
eru þeir nú hátt á þriðja þúsund
að þvi er fram kemur í fréttatil-
kynningu G.l. Formaður Garð-
yrkjufélags Islands er Jón Páls-
son, en aðrir í stjórn eru Selma
Hannesdóttir, sem er varafor-
maður, Ölafur Björn Guðmunds-
son, ritari, Gunnlaugur Ólafsson
gjaldkeri og Einar I. Siggeirsson,
meðstj.
Frá Purcell
til Britten
K am m erklúbburinn
í Félagsstofnun
stúdenta
KAMMERMUSlKKLUBBURINN
efnir til þriðju tónleika sinna nk.
þriðjudagskvöld kl. 21 í Félags-
stofnun stúdenta við Hringbraut.
Flytjendur eru söngflokkurinn
Hljómeyki ásamt hljóðfæraleik-
urunum Jósef Magnússyni,
flautuleikara, Páli Gröndal, hné-
fiðluleikara, og Jónasi Ingimund-
arsyni, píanóleikara.
Á efnisskránni eru ljóðasöngv-
ar eftir Purcell, Thomas Morley,
Edward Elgar, John Dowland, Or-
londo Gibbons, Joseph Haydn,
C.W. Stanford, John Hind,
Martinu, Richard Rodney,
Bennett og Benjamin Britten.
IMauðungaruppboð
á eigninni Borgarheið 2, (íbúð t.v. í smiðum) Hveragerði eign Jóns
Gunnars Sæmundssonar áður auglýst í Lögbirtingablaði 10, 17. og
28. janúar 1975 fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 25. apríl 1975
kl. 16.
Sýslumaður Árnessýslu.
Hestamannafélagið
Fákur
Sumarfagnaður verður i Félagsheimilinu síðasta
vetrardag og hefst kl. 21.
Félagsmenn og gestir þeirra, komið og fagnið sumri.
Skemmtinefndin.
Kaffihlaðborð
verður á sumardaginn fyrsta í félagsheimili
Fáks við Elliðaár. Félagskonur sjá um þetta
stórkostlega kaffihlaðborð. Þá er fyrirhugað að
leyfa börnum að koma á hestbak. Félagsmenn
eru beðnir að koma með hesta sína og teyma
þá undir börnum. Fákskonur.
Seljumídag:
1974 Chevrolet Impala
1974 Chevrolet Nova
Custom 2ja
dyra
1974 Vauxhall Viva
station
1974 Mazda 818 coupé
1974 Buick Century
1973 Vauxhall Viva de
Luxe
1973 Toyota Carina
1973 Chevrolet Laguna
1972 Chevrolet Nova
4ra dyra
1972 Chevrolet Blazer
V8 sjálfskiptur
1972 Chevrolet Malibu
1972 Opel Record II
1972 Ford Grand
Torino
1972 Vauxhall Viva 4ra
dyra
1972 Vauxhall Victor
SL
1972 Toyota Crown 4
cyl.
1971 Chevrolet Nova
1971 Vauxhall Viva
1971 Chevrolet
Chevelle
1971 Plymouth Valiant
4ra dyra
1970 Ford Cortina
Samband
Véladeild
ÁRMÚLA 3 - SÍMI 38900 |
Sjálfstæðisfélag
Keflavíkur
heldur fund i Sjálfstæðishúsinu, fimmtu-
daginn 24. april (sumardaginn fyrsta) kl.
2. e.h.
Matthias Mathiesen, fjármálaráðherra,
ræðirum ráðstafaniri efnahagsmálum.
Kosning fulltrúa á landsfund Sjálfstæðis-
flokksins.
Stjórnin.
Til sölu
Óskum að selja eftirtaldar eignir:
1. Mötuneytisskáli u.þ.b. 300 fm.
2. Verkstæðisbygging Strand-Steel u.þ.b. 360 fm.
3. Steypustöð Elba Wainer, framleiðir 11 rúmm. pr.
klst. Sementssíló og fleiri fyfgihlutir.
Steypubifreið Leyland með 5 rúmm. steyputunnu.
Upplýsingar gefa Gunnar J. Magnússon og Páll
Hannesson. Skrifleg tilboð sem greini verð og
greiðsluskilmála þurfa að berast fyrir 28. apríl
1975 Þórisös h/f,
Siðumúla 21, Reykjavík. Sími 32270.