Morgunblaðið - 22.04.1975, Side 38
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. APRlL 1975
TVö silfur — tvö brons
VARÐ UPPSKERA ÍSLENDINGA Á NM f JÚDÓ
TVENN silfurverðlaun og tvenn bronsverðlaun varð uppskera
íslenzku júdómannanna á Norðurlandameistaramótinu sem fram
fór í Laugardalshöllinni um helgina. Verður þetta að teljast mjög
góð útkoma, og eru það örugglega fáar íþróttagreinar hérlendis sem
gætu státað af svo góðum árangri í keppni við grannþjóðir okkar.
Það voru þeir Halldór Guðbjörnsson og Gísli Þorsteinsson sem
hrepptu silfurverðlaun í mótinu, en Benedikt Pálsson hlaut brons-
verðlaun, svo og íslenzka sveitin í sveitakeppninni.
Það sem greinilega háði
íslenzku keppendunum var skort-
ur á keppnisreynslu enda standa
þeir þar sýnu verr að vigi en
keppendur hinna þjóðanna, sem
hafa fleiri og meiri tækifæri til
þess að taka þátt í mótum. Þannig
var t.d. um helmingur íslenzku
keppendanna í mótinu, sem ekki
hafði reynt sig við aðra en landa
sina fyrir mótið. Kom þetta
reynsiuleysi gleggst fram í úr-
slitaglimu Gísla Þorsteinssonar í
mótinu, þar sem hann var yfir í
stigum allt fram á síðustu mínútu,
en tók þá áhættu í sókn, sem varð
honum að falli. Með aukinni
reynslu er enginn vafi á því að
íslendingar geta staðið jafnfætis
beztu Norðurlandaþjóðunum,
Finnum og Svium, i júdó, þar sem
okkar mönnum virtist alls ekki
skorta skap, kjark né krafta, —
en einmitt þessi atriði hafa mjög
mikið að segja í þessari átaka-
miklu iþróttagrein, sem einnig
krefst þess að keppendur hafi
yfir miklu þreki að ráða.
Erlendu keppendurnir og farar-
stjórar þeirra voru allir á einu
máli um að framkvæmd mótsins
hér hefði verið til mikillar fyrir-
myndar, og sögðu, að þeir heföu
varla keppt á móti, þar sem betur
hefði verið að staðið. Þetta er
mikill sigur fyrir Júdósambandió
sem þreytti þarna sína prófraun,
eins og margir íslenzku keppend-
urnir, enda var svo að maður
gekk undir manns hönd til þess
að allt gengi sem greiðlegast.
Í móti þessu mátti sjá margar
tilþrifamiklar og skemmtilegar
viðureignir. Tveir keppenda í
mótinu höfðu greinilega yfirburði
yfir aðra hvað snerti tækni, þeir
Larry Edgren frá Svíþjóð, sem er
Japani, og Finnínn Simo Ackien-
ius sem hlaut tvenn gullverðlaun
í mótinu. Beittu þeir báðir stór-
glæsilegum brögðum i viðureign-
um sínum, sérstaklega þó Edgren,
sem var mesti yfirburðasigur-
vegari mótsins, og vann flestar
glímur sínar eftir skamma stund.
SVEITAKEPPNIN:
I sveitakeppninni drógust
löndin þannig saman, að Island,
Noregur og Danmörk voru i
öðrum riðlinum og Svíþjóð og
Finnland í hinum. Var nokkur
óánægja með þetta fyrirkomulag,
sérstaklega af hálfu Svíanna, sem
sáu vonir sínar um silfurverðlaun
í keppninni verða að litlu, er þeir
lentu á móti F’innunum. Slíkt
fyrirkomulag sem þetta hefur þó
jafnan verið á Norður-
landamótum.
Fyrsta keppnin var milli Is-
lands og Noregs. Byrjaði ekki vel
fyrir ísland, þar sem Jóhannes
Haraldsson tapaði sinni glimu í
léttvigtarflokknum. Jóhannes
hefur lítið getað æft í vetur vegna
atvinnu sinnar, og gekk þar að
auki ekki heill til skógar. Halldór
Guðbjörnsson jafnaði hins vegar
stöðuna, i léttvigtarflokknum
með því að „svæfa“ andstæðing
sinn, og Halldór Guðnason, nýliði
í fslenzka landsliðinu, færði Is-
landi forystuna með sigri i Iétt-
þungavigtarflokknum, eftir langa
og stranga viðureign. I siðustu
glímunni, milli Svavars Carlsens
og Jan Jansens, var svo aldrei
vafi á hvor væri betri. Svavar
kom hinum hávaxna og þrekna
keppinaut sínum fljótlega í gólfið
og hélt honum síðan eins og i
skrúfstykki.
Næst áttust svo við Finnar og
Sviar og var viðureign þeirra hin
skemmtilegasta. Henni lauk með
öruggum sigri Finnanna, sem
tryggðu sér þar með réttinn til
þess að keppa um gullverðlaunin,
við annaðhvort Islendinga eða
Dani, sem kepptu næst.
Í þeirri viðureign gekk allt á
afturfótunum hjá íslenzka liðinu.
Jóhannes tapaði fyrst sinni glímu,
og þessu næst urðu ósanngjarnir
dómar Halldóri Guðbjörnssyni að
falli. Viðar gerði jafntefli við sinn
andstæðing, þannig að Danirnir
voru búnir að tryggja sér sigur-
inn, og Svavar Carlsen lagði þvi
ekkí ýkja mikið að sér i þunga-
vigtarflokknum og tapaði fyrir
sínum andstæðing.
Í úrslitakeppninni var svo nán-
ast um yfirburði hjá Finnunum
að ræða og tryggðu þeir sér gull-
verðlaunin. Danir fengu silfrið,
en Islendingar og Svíar deildu
með sér bronsverðlaununum —
Sviarnir þó án þess að hafa unnið
leik.
LÉTTVIGT:
Undankeppnin í einstaklings-
keppninni hófst kl. 10.00 á sunnu-
dagsmorguninn, og var þá strax
um skemmtilegar og harðar viður-
eignir að ræða. íslendingarnir
tveir í Iéttvigtarflokknum töpuðu
báðir fyrir andstæðingum sínum,
en Ömar Sigurðsson keppti þó um
þriðju verðlaun við Norðmanninn
Petter Lind. og Jóhannes keppti
við Svíann Nicklas Kristensson.
Veittu Islendingarnir þá keppi-
nautum sinum töluverða keppni,
og virtist t.d. Ömar vera vel á veg
kominn með Norðmanninn, er
hann náði góðu taki og vann sig-
ur. Á Omar framtíðina fyrir sér,
þar sem hann er enn kornungur
ISLENDINGAR A OL?
— ÉG ER mjög ánægður með þetta sagði Eysteinn Þorvaldsson. formaður
Júdósambands íslands, að loknu Norðurlandameistaramótinu í Laugar-
dalshöllinni á sunnudaginn. Hann og félagar hans sem að framkvæmd
mótsins stóðu máttu lika vera ánægðir, þar sem það var samdóma álit
allra gesta Júdósambandsins, að svo vel framkvæmt Norðurlandamót
hefði ekki verið haldið til þessa. Mikið starfslið þarf til að annast slika
keppni sem þessa, en allt gekk eins og í sögu, og keppnin sjálf stóðst
nákvæmlega þau timamörk sem áætluð höfðu verið.
— Keppnin á þessu Norðurlandamóti var miklu harðari en hún var t.d. í
fyrra, sagði Eysteinn. — Nú eru komnir fram á sjónarsviðið aftur menn
sem undanfarin ár hafa verið ósigrandi ( heimalöndum sinum, eins og t.d.
Simo Ackrenius. Ég tel lika að islendingar hafi staðið sig mjög vel í
þessari keppni, og einstaklingar i islenzka landsliðinu komu verulega á
óvart eins og t.d. Gísli Þorsteinsson, sem nú tók í fyrsta sinn þátt í
stórmóti í júdó.
Eysteinn sagði, að Júdósamband íslands myndi nú fara að vinna að þvi
að íslendingar tækju þátt i júdókeppni Olympiuleikanna i Montreal 1976.
— Við tökum það mál til endanlegrar afgreiðslu í stjórninni nú alveg á
næstunni, og sendum siðan tillögur okkar fyrir sambandsráðsfund ISÍ. Þá
sagði Eysteinn að fljótlega yrði tekin ákvörðun um hvort íslenzkir
keppendur yrðu sendir á Evrópumeistaramótið í Lion í Frakklandi nú í vor.
— Það voru sendir þrfr menn á mótið í fyrra, og ég tel ekki minni ástæðu
til þess að gera slíkt nú, sagði Eysteinn.
Stjl.
og reynslulaus á stórmótum sem
þessu.
Urslitakeppnin var milli Lars
P'lygh frá Svíþjóð og Arvo
Tarvainen frá Finnlandi og vann
Sviinn þar sigur við mikinn fögn-
uð landa sinna, sem tóku hann og
tolleruðu, enda mun Finninn
jafnan hafa farið með sigur af
hólmi, þegar þeir hafa mætzt i
keppni áður.
LÉTTÞUNGAVIGT:
Halldór Guðbjörnsson lék sama
leikinn í keppni sinni við Axel
Hopstock og hann hafði gert í
landskeppninni daginn áður.
Kom honum í gólfið og „svæfði"
hann síðan. Var auðséð að næsti
keppinautur Halldórs, Ronny
Nilsson frá Svíþjóð, var hræddur
við að fá slíka meðferð einnig, þar
sem hann lagði alla áherzlu á að
fara ekki í gólfið. Var barátta
hans og Halldórs hin snarpasta,
og hafði Halldór alltaf heldur
betur, án þess þó að fá stig. Voru
báðir stigalausir að lotunni lok-
inni, en dómararnir dæmdu
Halldóri réttilega sigur.
1 hinum riðlinum keppti hinn
japanski Svíi, Larry Edgren, og
byrjaði hann á því að sveifla
Gunnari Guðmundssyni í gólfið
og vinna á „Ippon‘\ Hins vegar
lenti Edgren i miklu basli með
Per Hansen frá Danmörku, sem
varðist mjög vel, og naut þess að
hann er til muna hávaxnari en
Edgren. Fór þó svo að lokum að
Edgren sigraði og mætti því
Halldóri i úrslitakeppninni. —
Komi ég honum í gólfið þá vinn
ég hann, sagði Halldór fyrir
keppnina, en Edgren gaf engin
færi á sér, og vann Halldór með
stórglæsilega útfærðum brögðum.
Var ekkert efamál að Edgren
þessi var „tekniskastur“ allra
keppendanna á Norðurlandamót-
inu, og greinilega þrautþjálfaður.
MILLIVIGT:
Keppendur íslands i milli-
vigtarfiokknum voru þeir Sig-
urjón Kristjánsson og Viðar
Guðjohnsen. Báðir töpuðu þeir
viðureignum sínum naumlega, í
mjög skemmtilegum glímum, þar
sem baráttan var allsráðandi.
Vakti frammistaða Viðars mikla
athygli, en hann er nýorðinn 17
ára. Þarna er á ferðinni piltur
sem vafalaust á eftir að komast í
fremstu röð í þessari íþróttagrein,
ef svo heldur sem horfir. Áttu
keppinautar hans erfitt með að
trúa að hann væri ekki eldri, og
luku miklu lofsorði á hæfileika
hans. Sigurvegari i þessum
þyngdarflokki varð Conny
Pettersson frá Svíþjóð, sem
sigraði Bertil Ström, landa sinn,
sem Sigurjón hafði tapað fyrir, i
úrslitaleik.
LÉTTÞUNGAVIGT:
I þessum þyngdarflokki tefldu
Islendingar fram tveimur nýlið-
um, Halldóri Guðnasyni og Gisla
Þorsteinssyni. Glímdi Gísli fyrst
við Örn Terje Foss frá Noregi og
vann þar góðan sigur. Var þetta
góð byrjun hjá Gísla og tókst
honum svo að fylgja eftir með
glæsilegum sigri yfir Jan
Klemann frá Danmörku. Tryggði
Gisli sér þar með rétt til þess að
keppa um gullið við Finnann
Simo Ackrenius sem sigraði i
hinum riðlinum, en þar tapaði
Halldór Guðnason naumlega
glímu sinni við John Lysholdt
Pedersen. Áttu fæstir von á því að
Gisli myndi standast Ackrenius
snúning í úrslitalotunni, þar sem
Þessi Finninn hefur gífurlega
keppnisreynslu og þykir búa yfir
mjög mikilli tækni og körftum.
En Gísli sýndi það í úrslitaglím-
unni að fyrri sigrar hans voru
engin tilviljun. Finninn komst
ekkert áleiðis með hann, og fór
svo að Gísli vann inn vítastig á
Finnann og sigur hans virtist
blasa við. Aðeins einni mínútu
áður en lotunni skyldi ljúka tókst
Finnanum loks að ná taki á Gísla
og sigra á siðustu stundu. Enginn
keppandi kom eins á óvart í móti
þessu og Gísli, sem er aðeins 22
ára, og á þvi framtíðina fyrir sér
sem júdómaður.
ÞUNGAVIGT:
I þungavigtarflokknum voru
miklar vonir bundnar við Svavar
Carlsen, enda hann reyndasti
keppnismaður Islendinganna, og
hafði unnið bæði til silfur- og
bronsverðlauna á Norðurlanda-
meistaramóti. Lenti Svavar í
fyrstu umferð á móti Norðmann-
inum Erik Hauger og eftir jafna
baráttu framan af lotunni tókst
Hauger að ná góðu taki og sigra.
Þar með var Svavar úr leik. I
hinum riðlinum tapaði Hannes
Ragnarsson fyrir Kari Johanns-
son frá Finnlandi eftir lengst af
jafna viðureign, og siðan fyrir
Roland Bexander frá Sviþjóð,
eftir glimu þar sem Hannes hafði
um tíma betur.
OPNI FLOKKURINN:
Sigurvegari i opna flokknum
varð Simo Ackrenius frá Finn-
landi, sá er vann Gisla Þorsteins-
son i úrslitakeppninni í létt-
þungavigtinni, og lagði hann
þungavigtarmennina einn af
öðrum. Benedikt Pálsson deildi
þriðju verðlaununum í þessum
þyngdarflokki með Seppo Reivuo,
sigurvegaranum í þungavigtinni,
en Erik Hauger frá Noregi hlaut
silfurverðlaunin, sem hann var
vel að kominn, vegna góðrar
frammistöðu sinnar bæði í
þessum flokki og í þungavigtar-
flokknum.
— stjl.
Verðlaunamenn f léttmillivigt: Ronny Nilsson, Svfþjóð (brons), Per
Edgren, Svfþjóð (gull), Halldór Guðbjörnsson, tslandi (silfur).
Verðlaunamenn f léttþungavigtarflokknum: Örn Terje Foss, Noreg
Danmörku (brons), Simo Ackrenius, Finnlandi (gull), Gfsli Þorsteinsson
Menn kipptu sér lftið upp við það þótt þi
keppninni, en enginn keppandi meiddist
norska liðsins að troða bómull upp í
júdómanni Noregs, en dómarinn fylgist i