Morgunblaðið - 22.04.1975, Blaðsíða 20
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL 1975
— Heræfingar
Framhald af bls. 1
núverandi æfingar Rússa „Vor-
æfingarnar". Þeir hafa orðið
varir vió sovézk beitiskip af
gerðunum Kara og Kresta II og
ýmsar tegundir tundurspilla.
Sovézkar flugvélar og kafbátar
taka einnig þátt i æfingunum.
Eitt er það við þessar flota-
æfingar Rússa sem veldur leyni-
þjónustustarfsmönnum banda-
lagsins heilabrotum: Sovézk
þyrlumóðurskip hafa ekki sézt til
þessa.
Sovézkar deildir fylgjast með
eftirliti bandalagsins með
æfingunum að sögn talsmanna
NATO. „Við eltum og við erum
eltir,“ sagði einn þeirra i dag.
— Grein
Sigurlaugar
Framhald af bls. 28
minnihlutahópa, sem lengst vilja
ganga í þessum efnum.
Ég vil að lokum láta í ljós þá
von mína, að þetta frumvarp
komist nú senn heilt i höfn hér á
háttv. Alþingi og — að fram-
kvæmd þess, ef að lögum verður,
megi markast af þeirri festu,
skilningi og mannúð, sem hæfir
þessu málefni.
Sigurlaug Bjarnadóttir.
— Kambódía
Framháld áf bls. 1
dvalarleyfi Saukham Khoys, sem
var settur forseti, yrði þó fram-
lengt vegna veikinda hans. Hann
kvað nokkur þúsund flóttamann-
anna þegar hafa snúið yfir landa-
mærin á ný, en ákvörðun yrði
tekin um örlög þeirra sem eftir
eru innan mánaðar.
Um 1000 manns leituðu hælis i
sendiráði Frakklands í Phnom
Penh er borgin féll, og franska
ríkisstjórnin fór þess í dag á leit
við Rauðu Khmerana í Peking að
þessu fólki yrði séð fyrir nauð-
synjum. I Moskvu tók Alexei
Kosygin forsætisráðherra á móti
kambódískum sendimanni í dag
og lofaði stuðningi Sovétstjórnar-
innar við hina nýju valdhafa.
— Samningar
Framhald af bls. 2
mjólkurbúanna hins vegar að
fram til 1. júní hljóti fyrrgreindir
aðilar launajöfnunarbætur hlið-
stæðar þeim er felast í heildar-
samkomulagi Alþýðusambands-
ins og Vinnuveitendasambands-
ins.
Þá náðist einnig samkomulag
milli júgóslavneska verktakans
Energoproject í Sigöldu og hluta
starfsliðs þar, en Morgunblaðinu
tókst ekki að afla nánari upplýs-
inga um efni þess samkomulags i
gærkvöldi.
— Skreið
Framhald af bls. 2
taka sjálfir á sig toll þennan að
einhverju eða verulegu leyti.
Bragi sagði ennfremur, að
menn væru lítið farnir að hengja
upp fisk enn sem komið væri.
Sölusamband ísl. fiskframleið-
enda hefur reyndar ítrekað við
félagsmenn sína að verka ekki
smáfisk vegna lélegra markaðsað-
stæðna hvað þann stærðarflokk
áhrærir og má því ætla að sá
fiskur fari fremur í skreið, en að
sögn Braga hefur lítið borið á þvi
ennþá og taldi hann að smáfiskur-
inn færi enn í salt í einhverjum
mæli.
— Flugmenn
Framhald af bls. 40
eða hingað til lands á þessum
tíma.
Sveinn sagði, að þegar fyrir-
sjáanlegt yrði í dag að til verk-
falls myndi koma, væri áformuð
aukaferð um kl. 4 síðdegis og
flogið til Kaupmannahafnar um
Glasgow á útleiðinni en síðan
beint heim frá Kaupmannahöfn.
Ætti þotan að vera komin til
landsins fyrir miðnætti og gæti
þetta því orðið síðasta ferðin
næstu fjóra daga.
Vegna þessarar óvissu hefur
einnig verið ákveðið að fella
riiður ferð til Chicago í dag.
Sveinn kvað hafa verið hringt í
alla sem áttu bókaðar ferðir
héðan þessa daga og þeir látnir
vita af aukaferðinni sem áður er
getið. Farþegum sem hugóust
fljúga með Loftleiðum yfir N-
Atlantshafið, t.d. frá New York til
Luxemborgar, verður 'hins vegar
komið á flugvélar annarra flug-
félaga. Einnig hefur verið
ákveðið, ef til verkfalls kemur,
að færa laugardagsflugið til
Glasgow og London aftur um einn
dag — til sunnudags, þegar flug
hefst á nýjan leik.
Innanlandsflugið verður
samkvæmt áætlun fram til þess
tíma er verkfallið er boðað, en
líklegt er að einhverjar auka-
ferðir verði farnar af þessum
sökum, m.a. er ráðgerð ferð til
ísafjarðar kl. 19 og fleiri ferðir
eru í athugun.
— Portúgal
Framhald af bls. 1
stigvél hermannanna á hverjum
degi. Hann vísaði á bug ásökun-
um um að flokkurinn væri
borgaralegur og hægrisinnaður.
„Ef við erum það, þá eru allar sex
milljónir portúgalskra kjósenda
borgaralegar.“ Kommúnistar
héldu fund sem sóttur var af
50.000 manns sama dag.
Heimildir innan hersins í
Öportó hermdu að landamæri
Spánar væru undir eftirliti til að
tryggja að „óboðnir aðilar“ geri
ekki vart við sig á kjördaginn, og
koma i veg fyrir vopnasmygl.
— 1644 millj.
Framhald af bls. 40
greiðslur samkvæmt þessum lið
fari fram á þremur árum frá 14.
febr. 1975 að telja. Sjávarútvegs-
ráðuneytinu er heimilt að ráó-
stafa allt að 400 m. kr. af heildar-
fjárhæð skv. þessum lið til lán-
veitinga í sjávarútvegi til
2ja—3ja ára, til að bæta lausafjár-
stöðu eigenda fiskiskipa og
vinnslustöðva.
Hækkun erlendra skulda vegna
gengisbreytingarinnar kemur að
hluta til fram strax á þessu ári.
Gert er ráð fyrir að með þeim 950
m. kr., sem varið verður sam-
kvæmt þessum lið, verði hægt að
bæta gengistapið með um 6% á
stofnupphæðina. Ætla má að eig-
endur fiskibáta fái um 41% af
heildarupphæðinni, en togaraeig-
endur 59%
3. Til Fiskveiðasjóðs Islands
(sem óafturkræft framlag) kr.
300 m. kr., til þess að greiða fyrir
lánveitingum sjóðsins til tækja-
kaupa og endurbóta á eldri fiski-
bátum.
4. Til þess að bæta eigendum
fiskiskipa tjón, sem þeir verða
fyrir, er skip þeirra eru dæmd
ónýt, enda sé tjónið ekki bætt
með öðrum hætti, 50 m. kr. Ráðu-
neytið setji nánari reglur um
framkvæmd þessa ákvæðis.
5. Til olíusjóðs fiskiskipa til
þess að jafna greiðsluhalla hans
fram til 15. febr. 1975, 80 m. kr.
Að því er stefnt að Olíusjóðurinn
geti staðið undir greiósluskuld-
bindingum sinum af eigin tekjum
framvegis.
6. Til tryggingarsjóðs fiskiskipa
til þess að bæta greiðslustöðu
hans, 100 m. kr. I athugasemdum
er þess m.a. getið, að yfirdráttur
tryggingarsjóðs hjá Seðlabankan-
um í febrúarlok 1975 hafi numió
121 m. kr.
7. Til Verðjöfnunarsjóðs fisk-
iðnaðarins, deildar fyrir afurðir
síldar- og fiskimjölsverksmiðja,
til greiðslu verðbóta vegna loðnu-
mjöls og fiskmjöls á vetrarvertíð
1975, 50 m. kr. Akvæði þetta er
vegna mikils verðfalls á loðnu-
mjöli, en áætlað er að greiðslur úr
Verðjöfnunarsjóði gætu numið
350 m. kr., vegna loðnumjöls, á
þessari vertíð, en hins vegar ein-
hver innborgun af lýsi.
8. Til rannsókna og styrkveit-
inga, vegna fiskiskipa, sem breyta
vélbúnaði sínum til þess, að geta
nýtt svartolíu í stað gasolíu sém
orkugjafa, 10 m. kr.
9. Til orlofshúsa sjómannasam-
takanna, 12 m. k.r
10. Eftirstöðvar til ráðstöfunar
samkvæmt nánari ákvörðun sjáv-
arútvegsráðuneytisins.
— Minning Torfi
Framhald af bls.. 31
lífsferli Torfa að setjast að á Hall-
dórsstöðum. Því Halldórsstaðir
voru mjög í sviðsljósinu og höfðu
verið það lengi. Þar var lengst af
fleirbýli og svo var tengdafaóir
Torfa, Magnús Þórarinsson, bú-
inn að koma á fót fyrstu tóvinnu-
vélum hér á landi heima á Hall-
dórsstöðum, svo að nærri má geta
að mannmargt hefur verið er
héraðsbúar komu með ull sina.
A búskaparárum Torfa þar á
Halldórsstöðum voru sambýlis-
bændur hans lengst af þeir Páll
Þórarinsson og kona hans Lizzie,
sem var skozk og söng sig inn í
hjörtu héraósbúa eins og kunnugt
er. Og svo Hallgrímur Þorbergs-
son sem var kvæntur Bergþóru
Magnúsdóttur. Þeir Torfi og Hall-
grimur voru því svilar. Þeir Páll
og Hallgrímur sátu því jörðina
ásamt Torfa. Og þó að tóvinnuvél-
ar Magnúsar, tengdaföður Torfa,
yrðu eldi að bráð árið 1923, var
sem gestkomur minnkuðuekkivið
það. Samgöngubætur urðu nokkr-
ar á þessum árum og húsakostur
Halldórsstaðabænda var betri í
þann tíð en víða gerðist. A Hall-
dórsstöðum var hljómlist í háveg-
um höfð, sem og annað er hafði
menningargildi. Eins skal þó sér-
staklega minnst sem snerti heim-
ili Torfa og Kolfinnu, sökum þess
aó hún var mikill hljómlistarunn-
andi og lærði orgelleik ung að
árum. Hún fór því ung að leika
undir söng Lizziar heima & Hall-
dórsstöðum, sem og annarsstaðar
innan héraðs. Og þó að Kolfinna
giftist og færi að eiga börn brást
htín ekki hinni skozku söngmey.
Þetta má einnig þakka manni
hennar Torfa Hjálmarssyni, sem
einnig hafði komist i snertingu
við hljómlistina heima í föður-
garði. Og þarna kom fram hversu
Torfi og Kolfinna fórnuðu sér fyr-
ir tónlist þó að annasamt væri á
stundum og hvert barnið af öóru
fæddist. Og eitt er víst, að ef
húsbóndinn á heimilinu, Torfi
Hjálmarsson, hefði ekki verið
þessi félagslyndi og dagfarsgóði
maður kann það aó vera, að marg-
ir hefðu notið söngs Lizziar mun
sjaldnar.
En Torfi var ekki skaplaus mað-
ur þótt hann haggaðist ekki í
framkomu, enda þarf sterka skap-
gerð til að halda jafnvægi á stund-
um og vera tillitssamur við fólk.
— En ég sem þetta skrifa kynntist
ekki Torfa að ráði fyrr en nokkru
eftr að hafln gerðist bóndi á Hall-
dórsstöóum. — Ég kom á heimili
hans fyrst þegar ég var 16 ára, og
eftir að ég hafði einu sinni komið
til hans, kom ég oftar. Þannig fór
svo einnig fyrir fleirum. Og það
var líka þannig á Halldórsstöóum
að ef maður kom á eitt heimilið,
kom maóur á öll hin. Það var því
mjög mikill samgangur á bænum.
Og án efa var það söngurinn og
hljómlistin sem olli því. Einnig
hve margir menn voru þar tímum
saman. —
Á sumrin komu þar listunnend-
ur og listamenrt hvaðanæva að,
því þeim fannst sumarið þar svo
heilnæmt. Ég segi þetta hér til að
sýna hversu margbrotið umhverfi
Torfa var, en þó oft á tíðum anna-
samt. Og þaó var sama hvar og
hvenær ég sá Torfa Hjálmarsson,
hann var alltaf þessi glaðlegi mað-
ur, sembarmeðsérþennan sér
staka blæ andlegrar og líkamlegr-
ar snyrtimennsku. Þó mun hann
mér minnisstæóastur skömmu áð-
ur en ég fór alfarinn til Reykja-
víkur, þegar ég vann undir stjórn
hans að vegalagningu ásamt
nokkrum öðrum. Ég minnist þess
ekki að hafa unnið hjá betri verk
stjóra þar sem allt virtist ganga
jafn snurðulaust og af sjálfu sér.
Og á þessum dögum kynntist ég
Torfa einnig sem sérstaklega góð-
um félaga, og slíkra manna er
ávallt gott að minnast.
— Og nú er Torfi Hjálmarsson
allur. — Hann er ekki lengur
meðal vinaog aðstandenda. Og ég
vil óska öllu hans fólki og ekki
sízt konu hans, Kolfinnu Magnús-
dóttur, velfarnaðar með þökk fyr-
ir svo margt. Ég veit, að undir það
taka margir gamlir sveitungar.
Og eitt er það, sem mér fannst
fara einkar vel á, að þessi maður
vorhugans, Torfi Hjálmarsson,
kvaddi fólk sitt og jörð á þeirri
árstið, sem sólin skín skærast. En
hann var jarðsunginn að Þverá i
Laxárdal 14. júní 1972, þar sem
Laxá rennur við túnfótinn og
raular sitt gamla lag.
Gísli T. Guðmundsson.
— Brezhnev
Framhald af bls. 38
meðan rannsókn færi fram í máli
hans og að hann yrði leiddur fyrir
rétt að sögn Sakharovs.
Jafnframt sagði Sakharov að
lokið væri 29 klukkutima húsleit
öryggislögreglunnar á heimili rit-
höfundarins Aiexanders Gins-
burgs i Tarusa skammt frá
Moskvu. Lögreglan hafði á brott
með sér erlend lyf ætluð pólitísk-
um föngum og spjaldskrá um
ættingja fanganna. Hana hefur
Ginsburg tekið saman síðan hon-
um var sleppt úr vinnubúðum
1973, eftir að hafa afplánað fimm
ára dóm fyrir andsovézka æsinga-
starfsemi.
Mótmæli gegn ofsóknum á
hendur Amnesty-mönnum í Rúss-
landi og handtökum rússneskra
Amnesty-manna hafa m.a. verið
send Nikolai Podgorny forseta og
Brezhnev flokksforingja frá
Amnesty-samtökunum í Hollandi
og Austurríki. Aðalmiðstöðin í
London hefur beðið Amnesty-
samtök um allan heim að mót-
mæla.
— Vietnam
Framhald af bls. 1
leysast upp. I Bangkok sagði tals-
maður Thailandsstjórnar að að-
eins virtist hafa birt yfir framtíð
Suður-Víetnams eftir afsögnina.
„En Thieu forseti gerði sitt bezta.
Okkur þykir afsögn hans leið.“ I
París sagðist franska stjórnin
vera ánægð með brottför Thieus
úr valdastóli, og hún væri tilbúin
til að reyna að koma á friðarvið-
ræðum milli stríðsaðila.
Afsögn Thieus kom hvergi á
óvart. I Tókýó sagði einn af leið-
togum stjórnarflokksins að hún
væri hugprúð tilraun til að koma í
veg fyrir blóðbað i Saigon. Stjórn-
málaskýrendur eru þó margir
hverjir ekki vissir um að komm-
únistaherirnir muni hætta sókn
sinni sem svo vel hefur heppnast
á undanförnum vikum, heldur
reyna að ná öllu landinu á sitt
vald.
Ford Bandaríkjaforseti hafði í
kvöld ekkert sagt opinberlega um
afsögnina, en hann átti að koma
fram i sjónvarpi i nótt. Þingleið-
togar í Washington voru almennt
á þeirri skoðun að möguleikar
hefðu aukizt við afsögnina, þótt
sumir teldu hana hafa komið of
seint. Kissinger og Ford ræddu
um afsögnina í dag áður en Kiss-
inger kom enn einu sinni fyrir
þingið til að reyna að fá samþykki
þess fyrir aðstoð við Saigonstjórn,
en utanríkisráðherrann sagði að
þrátt fyrir það að staðan í stríðinu
væri mjög alvarleg myndu her- og
hjálpargögn bæta samningsað-
stöðuna. Kissinger sagði aó hugs-
anlega myndi hann fresta för
sinni til Suður-Ameríku vegna
breyttra viðhorfa í Suður-
Víetnam.
I dag komu 1000 Bandaríkja-
menn og Vietnamar til Filipseyja
I fjölmennustu flutningum
Bandaríkjastjórnar á einum degi
frá Saigon.
— Hækka minna
Framhald af bls. 40
engu að siður verður um nokkra
hækkun að ræða frá áðurnefndu
5-peseta-gjaldi eða sem næst
tvöföldun að því er Morgunblaðið
hefur eftir áreiðanlegum heim-
ildum.
— 20 tonn
Framhald af bls. 40
móti hefði þorskgengdin aukist
og aflinn iðulega farið í 10 tonn af
þorski á dag hjá rækjubátunum.
Um þverbak hefði keyrt í gær-
morgun er bátur kom að landi
með 3 tonn af rækju og 20 tonn af
þorski, og hefði ráðuneytið ekki
talið sér annað fært en banna
veiðarnar um óákveðinn tíma, þar
sem þorskveiðar í rækjutroll
væru síður en svo æskilegar.
— Lækkun
tekjuskatts
Framhald af bls. 3
nefndar er gerð grein fyrir þeim
skattalækkunum, sem frumvarp-
ið um ráðstafanir í efnahags- og
fjármálum kveður á um, þegar
tillit hefur verið tekið til breyt-
ingartillagna nefndarinnar. Má
nefna sem dæmi þar um, að bein-
ir skattar hjóna með þrjú börn
og eina milljón i árstekjur 1974
lækka um 50 þús. kr. miðað við
gildandi lög. Beinir skattar ein-
stæðs foreldris með tvö börn á
framfæri og 800 þús. kr. árstekjur
1974 lækka um 42 þús. kr. miðað
við gildandi lög.
— Thieu mætti aukinni mótspyrnu
Framhald af bls. 38
forseti fór fram á. Hann lýsti þvi yfir um áramótin að barizt yrði „þar til
siðustu liðssveitir kommúnista yrðu sigraðar". Síðan gaf hann hina
örlagariku fyrirskipun sina um undanhaldið frá miðhálendinu 17. marz.
Afleiðingin varð skipulagslaus flótti og upplausn. Allt i einu þótti sýnt
að Suður-Vietnam mundi falla. Flestir voru sammála um að þvi aðeins
að Thieu segði af sér yrði komizt hjá blóðbaði.
Kröfurnar um afsögn Thieus urðu æ háværari. Menn eins og Cao Ky
og „Stóri" Minh komu allt i einu fram i dagsljósið, sá fyrrnefndi i
fararbroddi „Þjóðbjörgunarnefndar", sá siðarnefndi i fararbroddi
„þriðja afls" búddatrúarmanna og hlutleysissinna. fhaldsmenn, hóf-
samir menn, embættismenn og aðrir gengu i lið með andstæðingum
Thieus. Öldungadeildin krafðist nýrrar forystu. Starfsmenn bandariska
sendiráðsins gáfu i skyn að þörf væri á nýjum leiðtogum. Thieu svaraði
með þvi að handtaka stuðningsmenn Kys og mynda „striðsstjórn".
Siðan hörfaði hann til hallar sinnar, kenndi hershöfðingjunum um
ófarirnar og lýsti því yfir, þótt allt væri að hrynja að „ráðast yrði til
atlögu til að endurheimta þau svæði sem kommúnistar hefðu náð á sitt
vatd." En valdaferill hans var á enda. Nú er aðeins beðið siðustu
sóknarinnar til Saigon.
1 7 lesta fiskibátur
Til sölu 17 lesta fiskibátur byggður 1972 12
lesta plankabyggður bátur byggður 1961 með
210 h.a. Volvo Penta 1973.
Tökum að okkur sölu á skipum og bátum.
Fiskiskip,
Austurstræti 14, 3. hæö.
Sími 22475 heimasími 13742.