Morgunblaðið - 22.04.1975, Page 22
26
MORGUNBL>ÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. APRlL 1975
Vélvirkjar
Viljum ráða vélvirkja vanan viðgerðum á
þungavinnuvélum og mótorupptektum.
VARÐI h.f.,
Húsavík, sími 96-41250.
Hagfræðingur
Hagfræðingur óskar eftir atvinnu.
Tilboð merkt: „Hagfræðingur — 7394"
sendist Morgunblaðinu fyrir 25. apríl.
Tveir röskir menn
óskast
Viljum ráða nú þegar tvo menn til starfa í
verksmiðju vorri í Mosfellssveit.
Á/afoss, sími 66300.
® Notaðir bílar til sölu O
G.M.C Astro árgerð 1 974
14 tonna lengd milli hjóla 5 metrar. 19 feta
pallur. Góð greiðslukjör.
HEKLA hf.
Laugavegi 1 70—172 — Sími 21240
Kvennadeild
Reykjavíkurdeildar
RKÍ
Aðalfundur verður haldinn þriðjudaginn 29. apríl kl. 7
stundvislega að Hótel Sögu.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kvöldverður.
Þátttaka óskast tilkynnt fyrir hádegi 29. apríl í síma
28222 — 14909 — 14086
Auglýsing
um breytingu á aðalskipulagi Selfoss 1970—1991:
Samkvæmt lögum nr. 19, 1964 er hér með
auglýst eftir athugasemdum við breytingu á
aðalskipulagi Selfoss 1970 til 1991. Þessi
breyting á aðalskipulaginu nær einungis til
miðhverfis bæjarins og afliggjandi svæða.
Ofangreindur aðalskipulags uppdráttur ásamt
greinagerð og skýringar uppdráttum verður til
sýnis í skrifstofu Selfosshrepps, Eyrarvegi 8,
Selfossi á venjulegum skrifstofutíma frá 18.4.
'75 til 30.5. '75.
Athugasemdir skulu hafa borist skrifstofu Sel-
fosshrepps eigi síðar en 1 3.6 ’75. En þeir sem
eigi gera athugasemdir innan þess tíma teljast
samþykkja tillöguna.
Selfossi 21. apríl 1975
Sveitarsjóri Selfosshrepps.
Djúpbrenndir
(„underglace”)
Gefnir verða út m.a. 2000 tölusettir plattar í
tilefni 100 ára búsetu íslendinga í Manitoba,
helmingur upplagsins verður sendur vestur um
haf, Verð kr: 2.500,-
Plattarnir eru til sölu í verzlununni eftir því, sem
þeir koma úr framleiðslu.
Pantanir óskast sóttar.
Sendum í póstkröfu.
Gler & Postulín
Hafnarstræti 1 6 — sími 24338.
— Davíð Sch.
Framhald af bls. 23
atvinnuvegir, sem selja afuróir
sínar i beinni samkeppni við er-
lenda framleiðendur hérlendis
eða erlendis.
Tekin verði upp ný kaupgjalds-
visitala, sem breytist í samræmi
við raunverulegar þjóðartekjur.
9. SKATTAR.
Staðgreiðslukerfi skatta verði
tekið upp. Virðisaukaskattur
verði tekinn upp. Afskriftar-
reglum verði breytt þannig, að fé
sé fyrir hendi innan fyrirtækj-
anna til endurnýjunar vélakosts
að afskriftartíma loknum.
10. PENINGAR t
UMFERÐ.
Peningamagn í umferð aukist
ekki meira ár frá ári, en sem
nemur vexti þjóðarframleiðslu,
nema beita þurfi aðgerðum i
peningamálum til að örva
framleiðsluna.
LOKAORÐ
Eg veit að hér er hægara um að
tala en i að komast og þeir harð-
snúnu hagsmunahópar, sem
mestu ráða hér á íslandi, bæði
innan þings og utan, geta orðið
erfiðir viðureignar. Ég treysti þó
á drengskap og þjóðhollustu
þeirra manna, sem stjórna þess-
um hagsmunahópum, þvi öllum
er ljóst að svona getur þetta ekki
lengur til gengið.
Við verðum að komast úr þeim
vitahring verðbólgu og gengis-
fellinga, sem við höfum verið i
undanfarin 30 ár. Við verðum að
gera okkur ljóst, að ekki er hægt
að halda uppi fölskum lifskjörum
hér á landi með skuldasöfnun er-
lendis, þvi einhverntíma kemur
að skuldadögum.
Við verðum líka að gera okkur
grein fyrir því að lífskjörin geta
því aðeins batnað að framleiðslan
aukist og allar aðgerðir í efna-
hags- og kjaramálum verða að
miðast við þá staðreynd.
Fyrir 100 árum bjuggu aðeins
70.000 manns á lslandi, en þó
fækkaði þeim verulega á árunum
milli 1880 og 1890 vegna fólks-
flutninga úr landi.
Astæðan var sú, að vegna ein-
hæfs atvinnulífs voru lífskjörin
svo rýr og atvinnumöguleikarnir
svo fábrotnir að fólkið kaus
heldur að leita gæfunnar annars
staðar.
Ég vona að okkur takist að
standa þannig að atvinnuupp-
byggingu landsins, að þessi gamla
saga endurtaki sig ekki. Til þess
að svo verði verða atvinnuvegirn-
ir að geta boðið börnum landsins
störf við fjölbreyttan atvinnu-
rekstur, sem gerir kröfur til
dugnaðar og menntunar starfs-
manna sinna, en getur jafnframt
boðið þeim lífskjör eins og bezt
gerast með öórum þjóðum.
A Islandi viljum við búa og hér
getur okkur liðið vel ef við berum
gæfu til að vinna saraan að þeim
málum, sem horfa til heilla fyrir
þjóðina alla.
Akranes
Sjálfstæðiskvennafélagið Bára heldur fund á sjálfstæðishúsinu
við Heiðarbraut þriðjudaginn 22. apríl kl. 20.30.
Fundarefni:
Kosning fulltrúa á landsþing sjálfstæðisflokksins. Hörður Páls-
son, bæjarfulltrúi flytur ávarp. Bingó.
Mætið vel og stundvislega.
Stjórnin.
Þór félag sjálfstæðismanna
í launþegastétt
í Hafnarfirði
heldur fund þriðjudaginn 22. apríl kl.
20.30, i sjálfstæðishúsinu í Hafnarfirði.
Fundarefni:
1. Kosning fulltrúa á landsfund sjálf-
stæðisflokksins 3.—6. mai.
2. Pétur Sigurðsson, alþingismaður ræðir
um væntanlegt dvalarheimili aldraðra i
Hafnarfirði.
3. Önnur mál.
Nýir félagar velkomnir á fundinn.
Stjórnin.
HUGINN F.U.S. Garðahreppi
Almennur félagsfundur
verður að Lyngási 12, þriðjudaginn 22. apríl n.k. kl. 8:30
stundvíslega.
Fundarefni:
Gunnar Sigurgeirsson ræðir um hreppsmálin.
Guðmundur Hallgrímsson ræðir um starfsemi BVGGUNG og
væntanlegar lagabreytingar á næsta aðalfundi.
Kosning 2ja fulltrúa á Landsfund Sjálfstæðisflokksins.
Félagar eru hvattir til að mæta og taka með sér nýja félaga.
Stjórnin.
Sauðárkrókur
Aðalfundur verður haldinn i Sjálfstæðisfélagi Sauðárkróks
fimmtudaginn 24. apríl n.k. í Sæborg, Aðalgötu 8, Sauðár-
króki. Fundurinn hefsj kl. 8.30 síðdegis. Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kjör fulltrúa á landsfund.
3. Húsnæðismál, framsögumaður Friðrik J. Friðriksson,
bæjarfulltrúi. Stjórnin.
4. Önnur mál.
Hveragerði — Ölfus
Ellert Schram.
Fundur verður haldinn í Sjálfstæðisfélag-
inu Ingólfi þriðjudaginn 22. apríl kl.
21.00 í Hótel Hveragerði.
Dagskrá:
Kosning fulltrúa á 21. landsfund Sjálf-
stæðisflokksins.
Ellert B. Schram, alþingismaður, ræðir
um stjórnmálaviðhorfið og svarar fyrir-
spurnum.
Stjórnin.
Týr F.U.S. Kópavogi
Almennur félagsfundur verður haldinn þriðjudaginn 22. april
kl. 20.30 í Sjálfstæðishúsinu við Borgarholtsbraut.
Fundarefni: Kjör fulltrúa á Landsfund Sjálfstæðisflokksins
11. Önnur mál.
Félagar fjölmennið. Stjórnin.
Fulltrúaráðsfundur
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna i Reykja-
vik efnir til fundar þriðjudaginn 22. april
kl. 20:30 að Hótel Sögu, Súlnasal.
Dagskrá:
1. Val landsfundarfulltrúa
2. Ingólfur Jónsson, alþm. flytur ræðu.
Fulltrúar eru beðnir um að mæta stund-
víslega og sýna Fulltrúaráðsskirteinin við
innganginn. Stjórn Fulltrúaráðsins.
S.U.S. F.U.S. Baldur
Er ríkisstjórnin
á réttri leið?
Samband ungra sjálfstæðismanna og F.U.S. Baldur efna til
umræðufundar um ofangreint málefni.
Fundurinn verður haldinn i Félagsheimili Seltirninga kl. 8.30
þriðjudaginn 22.4.
Framsögumaður verður: Bladur Guðlaugsson. Fundurinn er
öllum opinn.
S.U.S. F.U.S. Baldur