Morgunblaðið - 22.04.1975, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. APRlL 1975
29
Eðvald B.
Malmquist:
Heilbrigði og geymsluþol kart-
öflunnar var fundarefni nokkuð á
annað hundrað bænda í Rangár-
valla- og Árnessýslu föstudaginn
21. marz s.l. Fundurinn var hald-
inn í Þykkvabæ. Fundarboðendur
voru Búnaðarfélag Djúpárhrepps
og Eðvald B. Malmquist yfirmats-
maður garðávaxta.
Þetta var fyrsti almenni fund-
urinn, sem haldinn er um þetta
mál sérstaklega, en komið hefur i
ljós, að geymsluþol og heilbrigði
kartöflunnar er ekki sem áður
var, og eru þrjár orsakir sérstak-
lega tilnefndar: að kartöflur fái
ekki réttan áburð, þreyta jarð-
vegsins, og notkun véla við upp-
skeru og flokkun. Blaðamaður
ræddi fyrir nokkru við Eðvald
B. Malmquist og spurði
tfðinda af fundinum, en hann
sagði að eins og vænta mætti
hefðu menn ekki komist að
niðurstöðu um hvað hér vægi
þyngst á metum, enda skiptar
skoðanir i þeim efnum. Eðlilegast
væri því að hafa atriðin öll í huga,
og yrði nú reynt að vinna að úr-
bótum í þessum málum. Þá mætti
ekki gleymast það sem fram fer i
dreifingarkerfinu, til dæmis væri
naumast unnt að svara þeirri
spurningu hvort kartöfluuppsker-
an í gamla daga hefði komist
klakklaust gegnum slíkt dreifing-
arkerfi sem nú tiðkast.
Frummælendur á fundinum í
Þykkvabæ voru Oli Valur Hans-
son ráðunauturv Agnar Guðnason
blaðafulltrúi, Kristinn Jónsson
tilraunastjóri, Ketill Hannesson
forstöðumaður búreikningaskrif-
stofu landbúnaðarins, Eðvald B.
Malmquist og Jóhann Jónasson
forstjóri Grænmetisverzlunar
landbúnaóarins. Allmiklar um-
ræður urðu og ýmsar fyrirspurn-
ir. Þá skoðuðu gestir kartöflu-
geymslur Þykkbæinga, flokkun-
arvélar og aðra aðstöðu við kart-
öflurækt þar.
En nú í upphafi ræktunarársins
og samkvæmt þeim óbeinu niður-
stöðum er hinn fjölmenni bænda-
fundur í Þykkvabæ komst að 21.
marz s.l., þá er ekki úr vegi að
ihuga hin ýmsu atríði kartöflu-
ræktarinnar sem geta i mörgum
tilfellum skorið úr um það hvort
ræktandinn fær fjárhagslega hag-
stæða útkomu á rekstri sínum, í
fyrsta lagi. Nú og svo annað þaö
hvað neytandinn fær. Verður á
markaðnum eftir næsta haust góó
vara, kartöflur sem fólk getur
verið ánægt með við þær aðstæð-
ur er Við búum við í ræktun þegar
full tillítssemi frá neytandans
hálfu er höfð í huga?
Þessi byrjunar- og undirstöðu-
atriði til meiri vöruvöndunar og
hagkvæmni í rekstrinum verða þá
m.a. helst eftirfarandi:
1. Veljið heilbrigt og óaðfinnan-
legt útsæði. Helst frá Norðurlandi
eða öðrum þeim stað þar sem vit-
að er að heílbrigði kartaílna hef-
ur verið betra en viðast hér sunn-
anlands siðastliðið haust og vetur.
Tilraunir og ekki síður ræktunar-
reynsla bænda sjálfra hafa marg-
sýnt aó uppskeruaukning á kart-
öflum hefur verið um 30% þegar
norðlenskt útsæði hefur verió
notað fremur en heimaræktað
sunnlenskt. Og annað, sem meira
er um vert, að heilbrigði og nýt-
ing uppskerunnar hefur orðið
miklu betri og þar með betri vara
á hinum almenna markaði.
2. Hreinlæti og aftur hreinlæti
er eitt af áriðandi atriðum i sam-
bandi við vandaða kartöflurækt-
un. Sótthreinsa þarf geymslur,
kassa, umbúóir og allar vélar, sem
notuð eru við ræktun, flokkun og
annað er viðkemur framleiósl-
unni.
Eftir fund kartöfluræktar-
bænda á Suðurlandi í marz
3. Tinið frá allar sjáanlegar
sýktar kartöflur þegar lagt er til
spírunar. Gætið þess vandlega að
sýktar kartöflur lendi ekki með í
niðursetningarvélarnar. Þær
smita ekki aðeins garðlandið,
heldur skilja þær að sjálfsögóu
einnig eftir sýkla í sjálfri niöur-
setningarvélinni og þar með
dreifist gerlagróðurinn meira og
minna i heilbrigt útsæói um leið
og sett er niður. Þar með er hætt-
an vís þegar upptaka hefst að
hausti.
4. Fylgist meó vexti og umfram
allt heilbrigði kartöfluakursins
yfir sumartímann, þó sérstaklega
þegar á líður og fjarlægið burtu
öll vafasöm grös. Sú vinna getur í
mörgum tilfellum gefið margfald-
an ,,ávöxt“ og sparað mikla fyrir-
höfn við uppskeruna sfðar.
5. Gætið þess vandlega að sýkt
kartöflugrös eóa sýktar kartöflur
fari ekki á færibönd upptökuvél-
anna. Sótthreinsið véiar og tæki
ef þess hefur orðið vart að garð-
lönd hafa verið sýkt þar sem síð-
ast var unnió við upptöku með
vélum.
6. Stillið ganghraða dráttarvéla
og annan snúningshraða tækja
við uppskerustörfin á eins hægan
gang og frekast er hægt hverju
sinni, þannig að hnjask og nún-
ingur verði sem allra minnstur
við snertiflöt vélanna i upptöku
og rögun vörunnar, þegar til
flokkunarstarfa kemur.
Þetta er sérstaklega áriðandi
þegar um surnar- og snemm-
haustsuppskerustörf er aó ræða.
Best væri ef hægt er að koma þvi
við að taka alla sumaruppskeru
upp með höndum og er svo gert
viða í nágrannalöndum okkar. 1
Bretlandi er t.d. greitt mun hærra
verð fyrir slikar kartöflur en þær
sem, teknar eru upp með vélum.
Þetta er sannarlega athyglisvert
ekki sist með tilliti til þess að
okkar uppskera er i langflestum
tilfellum aðeins hálfþroskuö vara,
með litla sem enga hýöismyndun
til varnar hnýðinu eóa sjálfri
kartöflunni. En í hinum heitari
löndum er meiri og minni kork-
myndun komin til verndar ávext-
inum, jafnvel þó um sumarupp-
skeru sé að ræða.
1 öllu falli er nauósynlegt að
taka sumar- og haustmarkaðskart-
öflurnar upp og meðhöndla að
öðru leyti með sérstakri varúð á
öllum stigum, þ.e.a.s. upptöku,
rögun, þvotti og allri dreifingu, ef
koma á henni i viðunandi ásig-
komulagi til neytenda, sem verð-
ur varla öðruvísi en i kassa eða
körfuumbúðum, annað er ógern-
ingur við þær aðstæður, eins
og okkar dreifingarkerfi
er f dag. Ný kartöflu-
uppskera má ekki vera orð-
in ,,gömul“, sjúskuð, þegar
hennar fær hana i hendur. Hér
þarf úrbóta við bæði frá ræktancþ
ans hálfu og ekki síður þeirra er
um dreifinguna sjá.
Að lokum þetta. Enn meiri
hirðusemi og. varkárni í ræktun-
inni. Það er of mikið um það að
við þurfum aó sætta okkur við
smáar og oft ekki nógu góóar
kartöílur á markaðnum þegar
óvenjukalt tíðarfar er og nætur-
frost konia kannski á miðjum
sprettutíma. Hitt er þö ennþá al-
varlegra og óviðunandi til fram-
búðar að þegar vel sprettur og
kartöfluuppskera er i hámarki að
þá sé ekki forsvaranleg neyzlu-
vara á markaðnum, sem stafar
m.a. af tæknilegum orsökum i
ræktun og dreifingu. Ennfremur
vegna þess að íramleiðendur fær-
ast of mikið í fang, ráða ekki við
að hagræða uppskerunni,
geymslu hennar og annarri meó-
ferð sem skyldi. T.d. heíur oft
hlotist af stórtjón vegna þrengsla
i geymslum þegar uppskera er
óvenju mikil og þannig má benda
á ntörg fleiri dæmi um það að það
ýantar á að þaö sé rétt staðið að
framleiðslu og dreiíingarstöríun-
um eins og eðlilegast væri varð-
andi þessa nauósynlegu en vió-
kværnu búgrein og ómissandi
neysluvöru.
Það þarf að fara enn betur meó
kartöflur og aðra garðávexti i
dreifingarkerfinu en nú tiðkast i
mörgum tilfellum, sérstaklega er
varðar sumaruppskeruna. En sem
dæmi um það hvað framleiðslan
hefur verið misjöfn hér sunnan-
lands á markaði i vetur, þá má
geta þess aó afföll og endursend
vara vegna margvíslegra galla
heíur numið mörgum tonnum eða
rúmum 3% af heildarmagni þeg-
ar verst heíur gengið, þrátt fyrir
að framleiðendur hafa lagt nijög
mikla vinnu i að betrumbæta vör-
una áóur en þeir hafa sent hana á
hinn almen'na markað.
En auðvitað er framleiðslan
Fyrstur talaði Ragnar Arnalds
Nú ræðan var mest sú gamla
tugga, sem lesa hefur mátt í Þjóð-
viljanum undanfarnar vikur, um
að það væri verið að leika sér að
því að þrautpína alþýðu þessa
lands en auðvitað að hygla þeim,
sem betur mættu sin. Alltaf þessi
gamla kommúnistíska tugga, sem
er fyrir löngu hætt að virka á
fólk. Svo talaði Lúðvik Jósepsson
í síðari umferðinni og barðist um
á hæl og hnakka svolitla stund
með þá grillu í hausnum að við-
skiptakjör þjóðarinnar hefðu
verið litið verri árið 1974 en árið
1973. Þessu ætlast þú Lúðvík
Jósepsson til að fólk trúi. Nei,
þessu verður þú að kyngja
sjálfur. Gg svona var allur mál-
flutningur stjórnarandstöðunnar,
slagorðakennt fálm. Samt viður-
kenndi stjórnarandstaðan, að það
væru erfiðir tímar. Já, einhvern
veginn álpaðist það út út þeim.
En hver var þá meginuppistaða
þessara stjórnmálaumræðna? Þvi
er auðsvarað. Það voru hinar
nokkuð misjöfn frá hinum ýmsu
ræktendum eins og verða vill með
alia vöruvöndun. Þannig
hafa um 40% bænda er framleiöa
til sölu sloppiö alveg eða þvi sem
næst alveg við heimsendingar eða
afíöll á framleiðslu sinni eftir að
hún hel'ur verið tekin í mat og
söludreifingu. En aftur á móti
hafa um 60% markaðsframleið-
enda oröið fyrir meiri eöa minni
afföllum, þrátt fyrir að þeir hafa
leitast við að vanda til frágangs
vörunnar áður en þeir senda hana
frá sér. Það má samt segja
í þessu sambandi að þó fram-
leiðslan hafi verið misjöfn og
ódrjúg vegna leyndra galla í vet-
ur, að þá hafa bragðgæði yfirleitt
verið nokkuð sæmileg.
þróttmiklu og gagnmerku ræður
þeirra Geirs Hallgrimssonar og
Matthíasar Á. Mathiesen. Þetta
voru ræður fluttar af skilningi og
festu, enda ekki við öðru að búast.
Menn spyrja oft hver annan:
Hvaða g?gn er að slikum umræð-
um? £g segi fyrir mitt leyti: Eg
tel að slíkar umræður eigi mikinn
rétt á sér. Þar fær maður glögga
yfirsýn um ýmis þau mál, sem
maður að öðrum kosti fengt ekki.
Eitt var það i þessum umræðum,
sem ég varð áskynja um og það er,
að Samtökin og kommúnistar eru
sem sagt gengnir i eina sæng og
má i því sambandi sannarlga
segja að þar hæfi .... skel og
spónn munnferði.
Að lokum þetta. Það eru erfiðir
timar. Megum við og ráðamenn
okkar bera gæfu til farsællar
lausnar á vandamálum okkar og
þá mun aftur morgna og hver lifa
glaður við sitt.
Föstudaginn 21. marz 1975.
Ólafur Vigfússon,
Hávallagötu 17. Rvfk.
Lágkúruleg stjórn-
arandstaða í eldhús-
dagsumræðunum