Morgunblaðið - 22.04.1975, Blaðsíða 26
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. APRlL 1975
Minning:
Jón Bjarnason
aðalféhirðir
Fæddur4. maí 1909.
Dáinn 14. apríl 1975.
Hann var fæddur á fögrum vor-
degi á Breióabólstað austur á
Síðu, þessu undurfagra héraði,
þar sem vorið heilsar hvað fyrst á
landi hér. Fegurðin hefur síðan
verið hans fylginautur. Allt var
honum list, er hann lék.
Jón \ar til muna yngstur sex
systkina auk fóstursystur. Atti
hann því sérstökum dáleikum for-
eidra og systkina að fagna, enda
gæddur ljúfri og léttri lund, sem
laðaði að sér gott atlæti og iaunaði
það í senn. Hjá okkur börnum
systkinanna naut hann af þessum
sökunr vinsællar sérstöðu, þegar
líf okkar og vitund var kviknuð.
Hann var ungmennið í hópi hinna
fullorðnu, brú milli kynslóðanna,
einn af oss. I þeim hópi var hug-
takið kynslóðabil ekki til. Okkur
þótti þvi ekki við hæfi að nota
hans stutta og laggóða nafn eitt
saman. 1 okkar munni var nafn
hans Jónsi eða Nóndi frændi.
Foreldrar Jóns voru Bjarni
Jensson, héraðslæknir, og Sig-
ríður Jónsdóttir, kona hans. Þótt
Bjarni væri aðkominn festi hann
yndi í þessu afskekkta héraði og
gegndi þar læknisstörfum frá
1887 til 1914, en Sigríður var
Skaftfellingur í ættir fram. Þótt
leið fjölskyldunnar lægi burt úr
héraði, þegar vötnin strið og
vetrar hriðar höfðu slævt heilsu
og krafta Bjarna læknis, voru þar
bundin bönd vináttu og frænd-
skapar, sem enn halda. Jón var
aðeins fimm ára, þegar brott var
haldiö á hestbaki yfir sanda og
fljót, mestmegnis framan á hjá
systur sinni. Skelfdu þau sam-
ferðafólk með þeysisprettum
fram úr og úr augsýn á ókunnum
stigum, en menningin kom til
móts við þau á Rangárvöllum i
mynd vegar og póstvagns, svo sem
nú er aðeins að sjá af frumhverja-
myndum úr vestrinu. Þótt Jón
yrði svo ungur á brott úr
fæðingarhéraði sínu, átti það ætíð
rik ítök í honum, og rækti hann
vináttutengslin af þeirri prýði,
sem honum var lagin. Góðvild og
mannkostir Skaftfellinga gáfu
heldur ekkert eftir, og er þeim
þökkuð ævinleg tryggð og vinátta.
Bernsku og æskuheimili Jóns,
fyrst á Breiðabólstað og siðan við
Njálsgötu og Kárastíg i Reykja-
vík, var með afbrigðum gott, sam-
heldni mikil og ástriki foreldra á
börnunum og gagnkvæmt, en
strangar kröfur um siðgæði i
samskiptum við menn og málleys-
ingja. Hér er ekki rúm til aó rekja
þá hugnæmu sögu nánar, enda er
nú unnt að visa um það til nýlega
útkominnar bókar „Faðir minn —
læknirinn,'- þar þar sem Ingólfur
bróðir Jóns segir þá sögu, svo sem
best getur orðið. Þess má geta, að
helmingur systkinahópsins er nú
liðinn, Björn og Jens auk Jóns, en
á lifi eru Þórður, Olöf og Ing-
ólfur.
Að Jóni stóðu kunnir ættstofn-
ar, sem greinast víða um land.
Föðurafi hans var Jens Sigurðs-
son, rektor, bróðir Jóns forseta,
en um ætt þeirra Rafnseyrar-
presta, Sigurðar og Jóns eldra
Sigurðssonar, sem kennd er við
Asgarð í Grímsnesi, var Jón
ellefti niður liður í beinan karl-
legg frá Gisla Jónssyni, biskupi
prestaætta, svo og til Ölafs lög-
sagnara á Eyri og þaðan áfram til
nafntogaðra manna, sem of langt
yrði að rekja. Föðuramma Jóns
var Ölöf, dóttir Björns Gunn-
laugssonar, stærðfræðings, land-
mælingamanns og heimspekings,
höfundar Njólu, og er sú ætt úr
Húnaþingi, en hún var einnig
hálfsystir Bjarna Jónssonar,
rektors, og dótturdóttir Bjarna
lögréttumanns i Sviðholti á Alfta-
nesi og ráðsmanns Bessastaða-
skóla, Halldórssonar auðga í
Skildinganesi, Bjarnasonar í
Skildinganesi Bergsteinssonar,
en Halldór var tengdasonur Jóns
rika i Seli. Er ættin frá Bjarna i
Sviðholti kennd við þann bæ, en i
viðara samhengi nefnist ættin
Arnarhóls-, Götuhúsa- og
Skildinganesætt, sbr. ættartölu í
Sögu Reykjavíkur eftir Klemens
Jónsson, og koma þar saman mjög
fjölmennar ættir.
I hinni skaftfellsku móðurætt
Jóns verða fyrir héraðsgrónar
bændaættir, tiltölulega ómeng-
aðar embættablóði. Afi hans og
amma á þá hlið voru Jón Jónsson,
bóndi að Stóru-Borg og síðan
Breiðuhlíð í Mýrdal, og kona hans
Ingibjörg Einarsdóttir frá
Hunkubökkum, en afi hennar var
Jón Magnússon, klausturhaldari
og hreppstjóri. Jón klaustur-
haldari var uppi á ofanverðri 18.
og öndverðri 19. öld, kraftmikill
karl, er sat ýmsar jarðir austur
þar auk Kirkjubæjarklausturs, en
var upprunninn úr Öxnadal
+
Eiginmaður minn
LÁRUS JÓNSSON.
organisti
er lézt 1 5. apríl s.l. verður jarð-
sunginn frá Hafnarfjarðarkirkju,
miðvikudaginn 23 aprll kl. 2
e.h
Blóm og kransar afþakkað.
nyrðra. Börn þeirra Jóns og Ingi
bjargar voru niu og er mikill
fjöldi myndar- og sómafólks af
þeim kominn.
Jóni kippti mjög í kyn sinna
nánustu ættmenna að' gáfum,
skapgerð og útliti. Hann var
góðum og fjölþættum almennum
gáfum gæddur, en hafði alveg sér-
staklega þegið náðargáfu listar-
innar. Skapgerðin einkenndist af
góðvild, blíðlyndi og kímni, sem
var svo sérstök að hann gat hent
gaman að nánast hverju sem var,
án þess að i fyndist græska,
grómska eða broddur, sem
nokkurn særði. Hann var með
fríðustu mönnum í útliti og bar
göfugmannlegan svip. Liktist
hann i því föður sinum, og þó með
greinilegu ívafi af svip móður
sinnar.
Jón gekk i Menntaskólann í
Reykjavík og lauk þaðan gagn-
fræðaprófi, en lagði ekki hug á
frekari göngu eftir þeirri braut,
þar sem hann hugði ekki á em-
bættisframa. Myndlistin tók hug
hans. Hann naut góðrar tilsagnar
í þeirri list, sló trönum sínum viða
og málaði mikið á tímabili,
einkum landslags- og kyrralífs-
myndir. Hæfileikarnir voru ótvi-
ræðir, formskyn, litameðferð og
teiknigeta með ágætum, heildar-
svipur lifandi og hrífandi,
fegurðin sett ofar öllu, en án
óhóflegra skreytibragða. Liggur
margt eftir hann, sem viður-
kenndir meistarar gætu verið
þekktir fyrir. Er mér enn rík í
minni sú listræna upplifun og
sköpunargleði, þegar lista-
maðurinn valdi sér mótív á sól-
björtum sumardegi og reisti
trönur sínar, en listaverkið tók á
sig mót á Ijósu léreftinu. A þess-
um tíma var myndlistin enn siður
lífvænt lifibrauð en þó varð siðar,
og þurfti hörkutól til að brjótast i
gegn. Jón gerði sVo strangar
kröfur til sín og sinnar listar, að
hann vildi ekki stunda hana af
hálfvelgju, föndra eða fúska.
Hann tók því þá hreinlegu
ákvörðun, er hann valdi sér ævi-
starf, að leggja listina á hilluna,
og hefur sú ávkörðun tæpast
gengið þrautalaust. Við sem best
þekktum til, höfum talið, að þar
hafi of góð listgáfa farið forgörð-
um og jafnframt að hjáverkalist
hefði veitt lífi hans meiri
fyllingu. En þessu varð ekki um
þokað.
Umfram flesta menn aðra virti
Jón bróður sinn Jens, sem stýrði
skrifstofuhaldi Sláturfélags
Suðurlands á giftdrjúgri starfs-
ævi. Þótti honum verðugt að
gerast starfsmaður hans og feta i
hans spor. Mun annar verða til að
segja þá sögu, sem mér er miður
kunn, enda var Jón hógvær
maður og vann sín þjóðnýtu störf
án þess að tíunda það við vini og
vandamenn.
I einkalífi Jóns var hið blíða
blandið stríóu eins og æði oft vill
verða. Arið 1934 gekk hann að
eiga Láru Grimsdóttur, glæsilega
stúlku, og voru þau með fallegri
hjónum. En þau báru ekki gæfu
til varanlegra samvista. Þeirra
sonur er Jens, húsgagnabólstrari í
Hafnarfirði, en kona hans er Val-
dis Kristmundsdóttir og börn
þeirra þrjú: Jón Kristinn, Sig-
ríður og Lára.
Leið Jóns lá á ný saman við
lífsförunaut, sem fylgdi honum til
æviloka, er hann gekk að eiga
Kristínu Pálsdóttur árið 1949, en
hún var þá ekkja, svo að þetta
varð annað hjónaband beggja.
Kristin er upprunnin frá Nesi i
Selvogi, af Bergsætt hin mætasta
kona og svo lík Jóni að útliti og
skaphöfn, að undrum sætti. Ein-
kenndist hjónaband þeirra ætíð
af eindrægni og ástúð, gagn-
kvæmum skilningi og hjálpsemi,
sem bæði höfðu þörf fyrir, þegar
heilsunni tók að hraka. Samhent
voru þau sterk eins og hinn veiki
reyr, ef hver styður annan. Dóttir
þeirra, Þórhildur var fædd árið
1950 og er hún til heimilis með
móður sinni og hennar stoó og
stytta í yfirstandandi raun, en
starfar sem ritari á læknamiðstöð.
Börn Kristínar af fyrra hjóna-
bandi, Kristin og Valur og
fjölskyldur þeirra hafa rækt fóst-
urtengslin af sérstakri ástúð, og
sama er á hinn bóginn að segja um
Jens son Jóns, sem var fóstraður
af Kristínu á siðustu uppvaxtarár-
um sínum.. Maður Kristínar yngri
er Magnús Axelsson, og eiga þau
fjögur börn, en kona Vals er Erla
Þórðardóttir og eiga þau þrjú
börn. Allt er þetta ein samhent
fjölskylda.
Hugur okkar aðstandenda og
vina dvelur nú hjá Krístínu og
Þórhildi og fjölskyldum barna
þeirra Jóns í þökk fyrir alla
gæsku þeirra við hann og bæn
fyrir þeim í raun þeirra. Bænir
okkar fylgja sálu hans inn í víð-
erni hing andlega heims. Drottinn
blessi hann um eilífð.
Bjarni Bragi Jónsson
Það er óþarft að fara mörgum
orðum um, hve snar þáttur vinn-
an og vinnustaðurinn er í lífi
okkar mannanna. Það er öllum
svo vel ljóst, en við gerum okkur
sjaldnar grein fyrir, hversu
vinnugleðin mótast af þeim anda,
sem á vinnustaðnum ríkir eftir
mannkostum þeirra, sem við þar
höfum samskipti við.
Þetta kemur okkur þó sérstak-
Aímælis- og
minningar-
greinar
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig
verður grein, sem birtast á í
miðvikudagsblaði, að berast 1
slðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með
greinar aðra daga. Greinar
mega ekki vera í sendíbréfs-
formi eða bundnu máli. Þær
þurfa að vera vélritaðar og
með góðu línubili.
útfaraskreytlngar
blómouol
Groðurhusið v/Sigtun sími 36770
ílnhollí 4 Slmar 26677 og 14254
JMorflunblntiiþ
nucivsincRR
^-•22480
+
Maðurinn minn og faðir okkar.
EGILL JÓNSSON
brfreiðastjóri,
Ásgarði 49.
andaðist 20 þ m
Borgarspítalanum
á
Ragna Guðnadóttir
og börn.
+
Maðurinn minn og faðir okkar,
HLÖÐVER
BÆRINGSSON
andaðist á Borgarspttalanum
21 þ.m.
Guðbjörg Sigvaldadóttir
og börn.
+
Minningarathöfn um
INGVAR ÞÓRÓLFSSON
frá Birtingarholti,
Vestmannaeyjum,
fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 23. apríl kl. 10.30. Jarðsett
verður frá Landakirkju, Vestmannaeyjum föstudaginn 25. aprll kl
14.00.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Útför + EINARS ANDRÉSSONAR
verður gerð frá Dómkirkjunni 1 dag, þriðjudaginn 22. apríl kl. 1 3 30.
Jófrfður Guðmundsdóttir Anna Einarsdóttir.
+
Faðir okkar, tengdafaðir og afi
JÓN ÓSKAR GUÐSTEINSSON,
vélstjóri,
Frakkastfg 10,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 23. aprll kl
slðdegis.
Örn Jónsson,
Guðsteinn Jónsson,
Guðrún Jónsdóttir,
Erna Jónsdóttir,
Ríkharður Jónsson,
og barnabörn.
Svala Norðberg,
Sigurlaug Steinþórsdóttir,
Hlöðver Diðriksson,
Martin Olesen.
Guðrún Bergsveinsdóttir
Lokað
eftir hádegi í dag vegna jarðarfarar
SIGURMUNDAR ÞÓRODDSSONAR,
Bílaborg h/f,
Mazda umboð -
Borgartúni 29.
verkstæði
Karólfna Kristln Björnsdóttir.
Lokað vegna jarðar-
farar
Aðalskrifstofa okkar að Skúlagötu 20, Reykja-
vík verður lokuð í dag þriðjudaginn 22. apríl frá
kl. 10—13 f.h. vegna jarðarfarar Jóns Bjarna-
sonar, aðalféhirðis. s/iWrfélag Suðurlands.
Vegna jarðarfarar
Einars Andréssonar verður skrifstofum og verzl-
un lokað frá kl. 1 2—4 í dag.
Má/ og Menning.