Morgunblaðið - 22.04.1975, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. APRlL 1975
39
Frá afmœlishátíð
Þjóðleikhússins
Núverandi og fyrrverandi þjódleikhússtjórar, Sveinn Einarsson t.v. og Guðlaugur Rósinkrans.
25 ARA starfsafmæli Þjóðleik-
hússins var hátíðlegt haldið á
sunnudaginn og afmælishátfðinni
verður fram haldið á miðvikudag
og fimmtudag f þessari viku. A
sunnudaginn var hinn eiginlegi
afmælisdagur og var þá ýmislegt
gert til hátfðabrigða og leikhús-
inu bárust fjölda margar gjafir
og heillaóskir.
Segja má að afmælishátíðin
hafi byrjað með stofnun Starfs-
mannafélags Þjóðleikhússins.
Stofnfundurinn var haldinn i
leikhúskjallaranum í hádeginu og
var hann mjög fjölsóttur. Formað-
ur var kjörinn Halldór Ormsson
miðasölustjóri. Síðdegis var sýn-
ing á barnaleikritinu Kardi-
mommubænum og var höfundur-
inn Thorbjörn Egner viðstaddur
sýninguna. Var hann kallaður
upp á sviðið að henni lokinni og
hylltur ákaflega. Thorbjörn Egn-
er gerði þvi næst grein fyrir
fyrstu úthlutun úr sérstökum
sjóði, Kardimommusjóðnum, sem
hann hefur stofnað með höfund-
arlaunum fyrir verk sín frá Þjóð-
leikhúsinu, en hlutverk sjóðsins á
að vera að auka samskipti ís-
lenzkra og norskra leikara. Hlutu
þeir Klemens Jónsson og Carl
Billich verðlaunin, en þeir hafa
mest unnið að uppsetningu á leik-
ritum Egners hér. Einn norskur
leikari mun einnig hljóta verð-
laun úr sjóðnum og mun Egner
velja hann síðar.
Klukkan 17 hófst móttaka í
Kristalsal Þjóðleikhússinsogvoru
það flutt fjöldamörg ávörp og
gjafir afhentar. Fyrstur tók tii
máls Vilhjálmur Þ. Gislason, for-
maður þjóðleikhússráðs, og
skýrði m.a. frá nokkrum athyglis-
verðum staðreyndum um rekstur
hússins s.l^ 25 ár. Næstur tal-
aði Vilhjálmur Hjálmarsson
menntamálaráðherra og flutti
leikhúsi og leikurum árnaðarósk-
ir. Vigdís Finnbogadóttir, leik-
hússtjóri hjá Leikfélagi Reykja-
vikur, flutti árnaðaróskir frá
Leikfélaginu og afhenti gjöf frá
því, myndir af .nokkrum látnum
leikurum sem hófu feril sinn hjá
LR en hófu siðar störf við Þjóð-
leikhúsið. Jón Kristinsson, for-
maður Leikfélags Akureyrar,
flutti kveðjur að norðan og af-
henti Þjóðleikhúsinu að gjöf árit-
aðan skjöld. Næstur talaði Klem-
ens Jónsson fyrir hönd Félags Is-
lenzkra leikara og ættingja Arn-
disar heitinnar Björnsdóttur leik-
konu og afhenti Þjóðleikhúsinu
málverk af Arndísi. Myndina
gerði Halldór Pétursson listmál-
ari og var hún afhjúpuð í Kristals-
salnum á sunnudaginn. Gerði það
kona Halldórs. Ævar R. Kvaran
talaði fyrir hönd hins nýstofnaða
Starfsmannafélags leikhússins
og færði því gjöf frá starfsmanna-
félaginu, 150 þúsund krónur. Því
næst mælti Guðlaugur Rósin-
krans fyrrverandi þjóðleikhúss-
stjóri nokkur orð. Helga Hjörvar,
framkvæmdastjóri Bandalags is-
lenzkra leikfélaga, flutti kveðjur
frá bandalaginu og að lokum töl-
uðu erlendu gestirnir tveir, þeir
Thorbjörn Egner og Erland
Josephsson, leikhússtjóri Drama-
ten i Stokkhólmi. Færðu þeir báð-
ir leikhúsinu gjafir, Egner mynd
af ræningjunum þremur úr
Kardimommubænum, og Josephs-
son búningaskissu eftir Lennart
Mörk við Draumleikina eftir
Strindberg í uppsetningu Ingi-
mars Bergman. Siðastur tal-
aði Sveinn Einarsson þjóðleikhús
stjóri, þakkaði gjafir og árnaðar
óskir og gat gjafar Sigurðar
Grimssonar leikdómara sem er
nýlátinn, en hann hafði mælt svo
fyrir, að leikhúsið skyldi fá frá
sér myndskreytta viðhafnarút-
gáfu af verkum Shakespeare. Að
siðustu skýrði þjóðleikhússtjóri
frá verðlaunaveitingu úr Menn-
ingasjóði leikhússins, en verðlaun
hlutu að þessu sinni Bryndis Pét-
ursdóttir, Briet Héðinsdóttir,
Gisli Alfreðsson, Guðmundur
Magnússon og Jón Benediktsson.
A sunnudagskvöld var sýning
fyrir boðsgesti á nokkrum atrið-
um úr verkum sem Þjóðleikhúsið
hefur sýnt s.l. 25 ár. Var sýning-
unni mjög vel tekið. Meðal gesta
voru forsetahjónin. N.k. miðviku-
dagskvöld verður ljóða- og
söngvakvöld á litla sviðinu I kjall-
ara leikhússins í tilefni afmælis-
ins og á fimmtudagskvöld verður
frumsýning á nýrri gerð Silfur-
tunglsins eftir Halldór Laxness.
Frá afhjúpun myndar af Arndfsl Björnsdóttur leikkonu.
Svipmynd frá afmæiishófinu. Talið frá vinstri: Valur Gfslason leikari, Kóbert Arnfinnsson
leikari, Gylfi Þ. Gfslason alþm. og Vilhjálmur Þ. Gfsiason, form. þjóóleikhúsráðs.
RYMINGARSALA!
Vegna breytinga verður rýmingarsala
í dag og næstu daga! Stórkostlegur
afsláttur af öllum vörum í búðinni
(Ij)
[ Notið þetta einstæða tækifæri.
v/Bankastræti
Sími 28350