Morgunblaðið - 20.07.1975, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 20.07.1975, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JULÍ 1975 5 Laugardalsvöllur íslandsmót 1. deild. Mánudagskvöld kl. 8 leikí Valur og 3 K.R. Valur. FLÍSASKERAR 3 stærðir NB27 NB 32 Vörubíla hjólbaröar VERÐTILBOD 825-20/12 Kr. 23.240,- 825-20/14 — 27.780,- 1.000-20/14 — 35.380,- 1.000-20/16 Kr. 34.780,- 1.100-20/14 — 37.130,- 1.400-24/16 — 61.470,- TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ Á ÍSLANDIH/E AUDBREKKU 44-46 SÍMI 42606 Auglýsendur athugið Framvegis verður skilafrestur atvinnu-, rað- og smáauglýsinga, sem birtast eiga í þriðjudags- blöðum, til kl. 1 2 á hádegi á mánudögum. sonna travel sunna i UTANLANDSFERÐIR I VIÐ ALLRA HÆFI MALLORCA DAGFLUG ALLA SUNNUDAGA. VERÐ FRÁ KR. 35.900.00 I meira en hundrað ár hefir Mallorka verið eftirsótt paradis fyrir Evrópubúa þannig var það á dögum Chopin, þegar aSeins fina fólkið I Paris hafði efni á þvi að eyða þar sólrikum vetrardögum. Nú er Mallorka fjölsóttasta ferðamanna- paradis Evrópu. Meira en hundrað bað- strendur víðsvegar á ströndum hins undur fagra eylands. Náttúrufegurðin er stórbrotin há fjöll, þröngir firðir, baðstrendur með mjúkum sandi og hamraborgir og klettar. Glaðvœr höfuðborg fögur og e'kta spönsk í útliti og raun. Mallorka er sannkölluð paradis, þangað vilja allir ólmir sem eitt sinn hafa þangað komizt. íslenzk skrifstofa Sunnu veitir farþegum öryggi og ómetanlega þjónustu. Þar er sjór- inn, sólskinið og skemmtanalifið eins og fólk vill hafa það, sannkölluð paradis, vetuf, sumar, vor og haust. Sunna býður mikið úrval af góðum hótelum og íbúðum i sérflokki. COSTA DELSOL FLOGIÐ ALLA LAUGARDAGA. VEROFRÁKR. 29.800.00. Sólarströnd Suður Spánar býr yfir sérstæð- um töfrum, og þaðan er stutt að fara til margra fagurra og eftirsóknarverðra staða, svo sem Granada, Sevilla og Tangier í Afriku. Flogið er beint til Costa del Sol með stærstu og glæsilegustu Boeingþotum is- lendinga, sem bjóða upp á þægindi I flugi, sem Islendingum hefir ekki boðizt fyrr. Brottför er á laugardögum kl. 10 að morgni eins og raunar I öllum öðrum flugferðum Sunnu. Pað eru þvi ekki þreytandi nætur- flug og svefnleysi, sem næturflugum fylgir, sem gerir fólk utanveltu, dasað og þreytt dagana eftir. Á Costa del Sol hefir Sunna úrval af góðum ibúðum og hótelum i Torremolinos, eftir- sóttasta baðstrandarbænum á Costa del Sol. þar hefir Sunna skrifstofuaðstöðu fyrir sitt islenzka starfsfólk á Costa del Sol. sem auk þess heimsækir gestina reglulega á hótelum þess og íbúðum. DAGFLUG ALLA FIMMTUDAGA. VERÐ FRÁ KR. 27.415.00, INNIFALIÐ: FLUGIO, GISTING OG MÁLTlÐIR RÍNARLANDAFERÐIR VERO FRÁ KR. 58.800.00 Eingöngu islenzkur fararstjóri og islenzkir farþegar i þessum ferðum. Ferðin hefst i hinni glaðværu og sögufrægu „Borginni við sundið" — Kaupmannahöfn, sem svo mjög er tengd islendingum fyrr og * síðar. Frá Höfn er ekið með þægilegum langferðabil um hinar fögru borgir og skógi- vöxnu sveitir Danmerkur og Þýzkalands. Stanzað tvær nætur i Hamborg, en lengst dvalið við hina fögru og sögufrægu Rin. Þar rikir lif og fjör. glaðværð og dans, sem engu er likt. Siglt er með skemmtiskipum um Rfnarfljót framhjá Loreley og fleiri frægum stöðum. Farið er i ökuferðir um sveitir og héruð Rinarbyggða, þar sem náttúrufegurð er mikil. Siðustu daga ferðarinnar er dvalið í Kaup- mannahöfn, farið i stuttar skemmti- og skoðunarferðir, Tívoli, Lorrey, skroppið yfir til Sviþjóðar og ótal margt annað gert. Notið er aðstoðar og fyrirgreiðslu skrifstofu Sunnu i Kaupmannahöfn. COSTA BRAVA VERÐ FRÁ KR. 24.800.00 Baðstrandahœirnir á Costa Brava eru margir og flestir litlir, hlýlegir og aðlaðandi En Hf er þar fjörugt og margmenni mikið. Einn sá þekktasti og vinsœlasti þessara baðstranda bæja er Lloret de Mar með öllum bestu einkennum slíkra staða. Þar er skemmtileg strandgata með allri baðstrondinni, svo og mikið af prýðilegum hótelum og ibúðum í þeim gæðaflokki sem SUNNUfarþegar eru vanir og gera eðlilega kröfu til. LIGNANO GULLNA STRÖNDIN VERÐ FRÁ KR. 27.600.00 Lignano stendur á tanga, sem teygist út I Adríáhaf, og meðfram bænum öllum öðru megin er mjúk, breið sandströnd svo langt sem augað eygir Meðfram baðstróndinni hefur nú risið ný borg — by99Ö glœsilegra hótela og (búðarhúsa með þægind um á heimsmælikvarða og þar hefur SUNNA valið gestum stnum samastað ásamt starfsaðstöðu fyrir íslenska fararstjóra. RÓM - SORRENTO Róm — borgin eilífa, sem engri borg er llk Sögu frægir staðir og byggingar við hvert fótmál. Sorrento — er einn af fegurstu bæjum ítalfu við Miðjarðarhafið sunnan við Napólí Stutt að fara til margra skemmtilegra staða. svo sem eyjunnar Kaprf Pompei, Vesuviusar og Napolí, en þaðan er aðeins tveggja stunda ferð til Rómar. ÞVÍ ER SLEGIÐ FÖSTU,HVERGI MEIRAFYRIR FERÐAPENINGANA OG DAGFLUG AÐ AUKI FERBASKRIFSTOFAN SUNNA UEKJARGÖTU 2 SÍMAR 16400 12070

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.