Morgunblaðið - 20.07.1975, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JTJLÍ 1975
39
Kosnlngar, ha. ha"
Framhald af bls. 19
Ég veit það ekki. Allavega ekki margir,
ekki nógu margir. Þeir eru of bráðir á að
láta þá lausa. Þeir taka þá fasta og henda
þeim svo út daginn eftir. Stundum eru
hermennirnir alltof vægir. Og samt hafa
þeir gert byltingu.
Heyrðu Cunhal, hér heyrir maður ekki
um annað en byltingu. Bylting verður
þegar fólkið tekur þátt i henni. Það var
ekki bylting, sem átti sér stað 25. apríl,
heidur vaidarán.
Síður en svo. Ef þú álítur MFA ekki
vera annað en hóp, sem kemur saman
einn góðan dag til að gera samsæri, þá
skilurðu ekki hvað hefur gerzt i Portúgal.
Þetta var ekki valdarán. Við kommúnistar
sögðum það strax. Þetta var hreyfing
lýðræðisafla innan hersins, sem hélt fundi
með 400 liðsforingjum í einu, til að ræða
leiðir til að breyta um stjórnarfar. Ég ætti
ekki að kalla þetta fundi, ég ætti að kalla
þetta samkomur. Og ef þú spyrð mig hvar
fólkið var á meðan þessar samkomur voru
haldnar, þá segi ég að hreyfing hersins
hefði aldrei farið af stað ef fólkið hefði
ekki þegar hafið baráttuna. Framfara-
sinnuðu liðsforingjarnir féllu ekki af
himnum ofan, þeir spruttu ekki upp eins
og gorkúlur eftir skyn og skúr. En til að
sannfæra þig verð ég að skilgreina þetta
nánar.
_— Vertu ekki að leggja það á þig.
Það er ekkert að leggja á sig. Hérna
kemur skilgreiningin. Sfðustu ár fasista-
stjórnarinnar voru erfið, jafnvel fyrir
sterkustu hópa kapítalista. Nýlendustrxðið
tók til sín 43% þjóðarútgjalda og þessir
hópar fundu það út að það þjónaði ekki
lengur tilgangi þeirra að styðja það. Burt-
séð frá öllu öðru, þá einangraði það þá frá
öðrum Evrópuríkjum, og hindraði efna-
hagslega útþenslu þeirra. I örvæntingu
endurtóku þeir sífellt að Caetano hefði
þurft að endurskoða utanríkisstefnu sína
og gera stjórn sína frjálslyndari. Þessi
örvænting fékk útrás hjá Spinola og
öðrum herforingjum. Spinola var gáfaður,
vel undirbúinn og naut fylgis. Hins vegar
voru aðrar blikur á iofti innan hersins.
Þar voru framfarasinnuðu liðsforingjarn-
ir. Við verðum að viðurkenna að þær voru
ekki hugmyndafræðilegar. Fáir höfðu
nægilegan undirbúning. Kommúnista-
sellur voru til dæmis til á meðal her-
manna en sjaldan meðal liðsforingja. Og
hreyfingin þróaðist fremur sem lokaður
hópur en sem lýðræðisleg hreyfing. Yfir-
mennirnir byrjuðu á að halda fundi til að
ræða vandamál tengd stöðuhækkunum, en
síðan víkkuðu umræðurnar. Þær þrosk-
uðust. Og þegar báðar stefnur, sú sem
Spinola fylgdi og miðaði aðeins að gera
stjórnina frjálslyndari og hin, sem hinir
framfarasinnuðu herforingjar fylgdu, og
sem gerði ráð fyrir einhverju meiru,
snéru saman bökum 25. apríl...
— ... greip Cunhal inn í og byrjaði að
starfa með hinum framfarasinnuðu yfir-
mönnum. Þar til hann hafði þá þar sem
hann vildi.
Þannig er nú ekki hægt að segja það.
Við kommúnistar höfðum engin sambönd
fy^-ir 25. april. Við sáum fyrir um eitthvað,
en við gátum ekki spáð neinu ákveðnu, við
höfðum enga trúnaðarmenn innan hers-
ins. Það er ekki einu sinni hægt að segja
að við hefðum átt þar marga fylgismenn.
Meira að segja sá sem talað var um sem
leiðtoga, Costa Goraes, var hægfara. Spin-
ola tók sæti Costa Gomes af þvi að það var
Spinola, sem gat samið við Caetano og sá
síðarnefndi lýsti þvi yfir að hann færi
ekki frá nema Spinola tæki við af honum.
Það var þó ekki þetta, sem ég ætlaði að
útskýra. Heldur það að það var herinn
sem kollsteypti fasistaeinræðinu en fólkið
blés mætti í byltinguna. Það var sem sé
fólkið, sem réðst á aðalstöðvar lögreglunn-
ar og hleypti út pólitiskum föngum. Ég
get sannað þetta, því það eru til kvik-
myndir frá þessu.
— Bylting er gerð til að bæta lff fólks-
ins. Það virðist mér ekki hafa gerzt f
Portúgal.
Ég skal viðurkenna það. Efnahagur okk-
ar er í rúst, þrátt fyrir þjóðnýtingar. En ég
bregzt við veruleikanum eins og sannur
byltingarsinni og hef hugrekki til að
standa gegn verkföllum, of háum launa-
kröfum, að endurtaka það að maður verð-
ur að vara sig á lýðskrumi, keppni um
hver lofar mestu. Einmitt nú i morgun átti
ég viðræður við fulltrúa starfsfólks gisti-
húsa. Ég spurði þá: „Haldið þið, að þið
leysið ykkar vandamál með sífelldum
launahækkunum? Timabundið kannski.
En hvað með morgundaginn? Á morgun
verða ekki lengur neinir ferðamenn og
gistihúsin verða að loka (ferðamönnum
hefur þegar fækkað í ár). Þið verðið að
draga úr kröfugerð og vinna meira, fram-
leiða meira!
— Bara að ftölsku verkalýðsfélögin
heyrðu til þfn.
Af hverju ætti ég að hafa áhyggjur af
ftölsku verkalýðsfélögunum? Sannleikur
er sannleikur og lýðskrum er lýðskrum.
Ef við hjálpum ekki sjálfum okkur, gerir
það enginn ... Fleiri spurningar?
— Bara tvær. Sú fyrri er: Hvað með
Nato?
Um daginn hitti ég bandariska sendi-
herrann, sem var hér á undan Carlucci.
Með honum voru nokkrir Englendingar og
þeir spurðu mig allir: „Hvernig má þetta
vera? Þið portúgalskir kommúnistar styðj-
ið Nato. Viljiðþiðvirkilegavera áfram
aðilar að bandalaginu?“ Mitt svar: „Hver
segir ykkur að við styðjum það, og að við
viljum halda áfram i þvi? Við höfum
aðeins sagt að við viljum ekki ræða málið
eins og stendur. Það verður að skoða þetta
í viðara samhengi: Heimsfriðurinn, Var-
sjárbandalagið, samvinna landa með mis-
munandi stjórnarfar. Einn góðan veður-
dag vindum við okkur í þetta. Okkur ligg-
ur ekkert á. Eins og er veldur aðild okkar
að Náto okkur engum vandræðum.“
— Seinni spurningin er um Varsjár-
bandalagið. Er það rétt eða rangt að þú
hafir lýst yfir stuðningi þínum við af-
skipti Sovétrfkjanna af Tékkóslóvakfu?
Ætlarðu að enda á þessu?
— Fyrirgefðu að ég skuli vera svo
ruddaleg.
Af hverju „ruddaleg"? Það er alveg satt
að ég studdi afskipti Sovétríkjanna í
Tékkóslóvakíu, hina svokölluðu skrið-
dreka i Prag. Og það er engin skömm að
því að viðurkenna það, í mesta lagi er það
stundum óskynsamlegt. En þetta var
minn, okkar, valkostur og hann var réttur.
Að öllu leyti: pólitiskt, sögulega og menn-
ingarlega. Mér er skítsama hvernig menn
.hafa túlkað hann. Ég væri þakklátur ef
þetta kæmi skýrt fram i viðtalinu. Og lika
annað. Ég endurtek og lýk: Portúgal verð-
ur aldrei Iand lýðræðislegra réttinda og
einokunar. Það verður ekki aftanitosi
ykkar borgaralega lýðræðis. Vegna þess
að við látum það ekki gerast. Við gætum
endað með nýtt fasistiskt Portúgal. Við
verðum að taka þá áhættu, þó að ég sé
ekki trúaður á hana, þvf ég er ekki trúað-
ur á annað valdarán fasista. Við kommún-
istar höfum tæki til að koma í veg fyrir
það, vegna bandalags okkar við herinn.
En vissulega munum við ekki fá sósíal-
demókratiskt Portúgal. Láttu það, vinsam-
legast, koma skýrt fram, ef þér væri sama.
— Hafðu engar áhyggjur, Cunhai, ég
geri það.
POCLAIN - FRANSKAR - POCLAIN - ÚRVALS - POCLAIN - VÉLAR - POCLAIN
FÁÐU ÞÉR EINA FRANSKA
ÞÆR HAFA GERT ÞAÐ GOTT.
HEIMSÞEKKT AFKÖST OG GÆÐI.
ÁRALÖNG REYNSLA HÉRLENDIS.
Poclain
BELTAGROFUR
4 Podoin
AMOKSTURSVELAR
^Pocloin
ÞJONUSTA
■n
Einkaumboðsmenn^
Kristián O. Skaöfjörð,
Hólmsgötu 4, R. Sími 24120.
POCLAIN - FRANSKAR — POCLAIN - URVALS — POCLAIN — VELAR — POCLAIN