Morgunblaðið - 20.07.1975, Page 7

Morgunblaðið - 20.07.1975, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20, JÚLl 1975 7 Sr.BOLLI GÚSTAFSSON í Laufási: m danska skáldprest- inn Kai Munk ritaði séra Bjarni Jónsson vígslubiskup: ,,Kai Munk var sendur til þjóðar sinnar. Hann talaði þannig, að hlustað er í mörg- um löndum. Baráttuna háði hann í krafti þeirrar trúar, sem veit að það er ekki hægt að deyða andann. Orð Drott- ins verður ekki fjötrað. Sann- leika orðsins og trúarinnar innsiglaði hann með blóði sínu." Þegar ég les um fals- spámenn, eins og þá, sem Jesús varar við i guðspjalli þessa dags, kemur mér ósjálfrátt í hug litrík and- stæða þeirra, Kai Munk. Hann þoldi enga falsspá- menn, hvorki á sviði trúar eða stjórnmála, og gat með engu móti leitt þá hjá sér eða látið þá í friði. Andstæðiog- um hans þótti hann næsta vígreifur og sannarlega var hann aldrei hræddur við átök. Þau voru óhjákvæmi- leg, ef sannleikurinn átti ekki að rykfalla og glatast. Hann hefði aldrei latt menn til þess að ræða af einurð og opin- skátt um viðkvæm málefni kirkju og kristni, enda mælti hann eitt sinn: „Hvað hefir hinn hræddi og varkári að gera við sannleika? Gefum honum legubekk, svo hann geti notið hvíldarinnar." Hann hefði sjálfsagt sagt um kirkjuna okkar, að hún hefði um langt skeið verið Ijúf- mannleg í stað þess að vera einörð í kærleika til Guðs og manna. Yfirborðsleg Ijúf- mennska er þreytandi til lengdar, jafnvel þótt hún sé studd skáldlegu málskrúði, og hún gefur falsspámönn- um tækifæri til þess að hreiðra um sig í næði, þar sem þeim bezt kemur, til þess að beita áhrifum sínum og rugla kristna menn í rím- inu, svo þeir vita síðast ekki, hvað er kristindómur. Það er augljós meinsemd í þjóðfé- lagi okkar, og ef kirkjan á að vera líkami Krists á jörðinni, farvegur heilags anda Guðs til syndugra manna, þá þýðir ekki að kinka kolli brosandi, ef sannleikurinn er fótum troðinn. Með sannfæringar- krafti trúarinnar talaði Kai Munk um orðið og sakra- mentin: „Þegar ég er til altar- is, finn ég, að hönd, hönd með naglaförum i, er lögð á höfuð mér, og ég heyri al- máttuga rödd hans, sem bar fram fórnina á Golgata. Sú rödd er rödd myndugleikans, einasta röddin, sem geturtal- að til mín orð fyrirgefningar- innar, og um leið finn ég, að mér er óhætt að opna hjarta mitt fyrir Guði. Ég er í ætt við hann, sem hefir sigrað vald hins illa, og hann gefur mér hlutdeild í sigrinum." Vekjandi rödd. Um þenn- an fulltrúa kristins rétttrúnað- ar, sem svo er nefndur af þeim, er falsspámenn hafa gefið vottorð upp á guðdómlegt frjáls- lyndi, já, um Kaj Munk rit- aði hið ástsæla þjóðskáld, Davíð Stefánsson: „Hugur hans brennur af eldmóði, boðar sigur hins góða, trúir á guðdóminn — og krafta- verkið. Hann vill, að hver maður sér heill og hjarta- hreinn. Hann vill glæða stór- hug og viljafestu: knýið á og fyrir yður mun upplokið verða. Oft minnir hann frem- ur á andlegan víking en hógværan sóknarprest, og er þó alltaf undir niðri barnið, sem lýtur guði sínum í auðmýkt, finnur návist hans og al- mætti." Kai Munk dó fyrir trú sína og föðurland. Jesús segir, að af ávöxtum falsspámanna munum við þekkja þá. Það staðfestir saga liðinna alda, að hver sú andleg stefna, sem hyggst koma í stað hins Ijósa trúar- Að bera sannleik- anumvitni boðskapar Jesú Krists í N.tm., sem ætlar að sanna og sannfæra með vísindalegri „pat- ent"lausn, leysa trúna af hólmi, hún dagar uppi og staðnar. Fjörbrot slíkra stefna geta verið átakanleg og ekki síst vegna þess að margt góðra manna missir við það fótfestu um hríð. En áður en lýkur verður þeim Ijóst, að menn geta seint lesið vínber af þyrnum og fíkjur af þistl- um. Kristur er hinn sanni vínviður, eins og hann sjálfur sagði og við erum greinar á þeim stofni. Því verðum við að sækja lífsþrótt til hans. Látum því orð hans lýsa okk- ur og óhrædd berum við sannleikanum vitni. Hvað um ykkur? Örfá hjólhýsi til á lægra verðinu. Afgreidd strax. Gísli Jónsson & Co. h.f. Sundaborg Klettagörðum 11, sími 86644. Vesturheimsvoð Gefjunar Vinargjöf til Vestur-lslendinga. Nú er þess minnzt, aö öld er liðin, síðan fyrstu landarnir tóku sér bólfestu í Vesturheimi. Enn sem fyrr leitar hugur Vestur-íslendinga til ætt- landsins noröur í höfum. Frá íslandi berast einnig kveöjur í ár, og hvaö vottar betur bróöurhug en værðarvoð frá Gefjun, ylur og gæði íslenzkrar ullar. Verð aðeins 2.950 krónur. ULLARVERKSMIÐJAN GEFJUN, AKUREYRI Þröstur Magnú?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.