Morgunblaðið - 20.07.1975, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 20.07.1975, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JULÍ 1975 21 Sama hlutverk og konurnar, burðardýr. leysi í nið Afriku. . . . • Um óvissu og stjórnleysi i nið Afríku. . . . þetta land, mun hafa f för með sér margra ára vandræði og aft- urför við uppbyggingu þeirra. Valdhafarnir ætluðu að miða við skiptingu lands f Kfna, þar sem býr líklega iðjusamasta fólk jarðar, en íbúar Eþfópfu eru fjarri þvf að vera iðjusamir. Þeim líkar miklu betur að bíða Texti & myndir * Arni Johnsen eftir morgundeginum, það er þeim miklu eðlilegra. Kínverj- ar, Rússar, Bandarfkjamenn og fleiri stórveldi eru inni í þessu dæmi og að sjálfsögðu er því allt óljóst ennþá um framvindu mála. Skipting landsins til fólksins þokast þó áfram, en alit er f upplausn og ótryggt nema villt náttúra Eþíópíu annars vegar og starf kristni- boðsstöðvanna hins vegar, sem hefur skilað svo jákvæðum og merkilegum árangri að nýju valdhafarnir hafa beðið þessa aðila að auka fræðslu- og hjúkr- unarstarf sitt frá því sem verið hefur. I stjórnmálum landsins og stöðu er allt í upplausn og virð- ast ætla að rætast orð gamla keisarans að nýju valdhöfunum myndi aldrei takast að stjórna Eþiópiu. Allt logar f óvissu, bæði inn á við og út á við. Tortryggni er rfkjandi í öllum málum, innbyrðis berjast nýju valdhafarnir um leið og þeir eiga f striði við Eritreumenn sem vilja sjálfstæði, valdhaf- arnir eiga í stríði við nokkra iandeigendur, sem hafa ekki viljað afsala sér völdum og bú- izt er við að Somalir ráðist þá og þegar inn í Eþfópfu til þess að ná aftur landi, sem þeir segja að Eþfópar hafi hertekið af þeim einhverntíma fyrrum. Þá er ófriðlegt á ýmsum öðrum landamærum og gott dæmi um þann allsherjargraut sem vell- ur þarna er að arabar styðja Eritreumenn, en tsraelar vald- hafana í Addis Ababa. Her Eþiópfu rásar um landið grár fyrir járnum og oft falla niður ýmsar áætlunarferðir bæði landleiðis og flugleiðis vegna þess að herinn hefur tekið tæk- in í sína þjónustu við flutning hermanna. Fram til þessa unnu margir landsbyggðarmenn hjá landeig- endunum og ef þeir leigðu land af þeim urðu þeir að borga hin- um stóru landeigendum 90% fram vilja fólks til að njóta rétt-. ar síns f þjóðfélaginu. Þó er þetta land frumskógur ennþá. Rótgrónir siðir, grimmd og fáfræði ráða þar rfkjum á svö mörgum sviðum. Mannslff er lítils metið nema ef það er vinnukraftur. Konan er vinnu- dýr eins og asninn og það er skömm fyrir karlmennina að vinna erfiðisvinnu eða bera byrðar. Það er konunnar og asnans. Um 85% þjóðarinnar er með kynsjúkdóma, atvinnuleysi, fá- tækt og margs kyns sjúkdómar hrjá fólkið, en þegar maður er við hlið þessa fólks er það bros- milt ljúft og gott í umgengni, en vegna mismunandi ættbálka er ákaflega erfitt að festa hönd á nokkru með vissu, venjur og siðir eru svo fjölskrúðugar. Brosið getur verið eins blftt og grimmdin getur verið óhugnan- leg. I dag eru tveir menn valda- mestir í Eþíópíu af þeim liðiega 50 mönnum sem sitja í stjórn landsins. I upphafi eftir bylt- inguna voru þeir 120, en fjöldi hefur verið sendur hingað og þangað á einangraða staði í nokkurs konar útlegð, eða að þeir hafa beinlínis horfið fyrir fuilt og allt. Annar þessara tveggja er talinn hægfara rót- tækur, en hinn harðskeyttur Maóisti. 1 hásæti Hailé Sélassié hafa þeir lepp fyrir sig, sem sinnir störfum keisarans fallna. Þessir tveir valdamenn eiga að heita samherjar, en fólk í Eþfó- píu bíður eftir þvf hvor verði á undan að drepa hinn. 1 þessu landi f dag er fátt friðsælt, óvissan og það óvænta er allsstaðar, niður Afríku flæðir um, en það er spennandi að fara um þetta land, kynnast því og fólki þess, samfélagið er svo margslungið að það knýr mann til umhugsunar og skiln- ings á nið Afríku, annars vegar fullri frystikistu, hins vegar eldstó steinaldar, hlið við hlið. im milljón íbuum Addis Ababa, moldarkofar meo trévirki. GEYMSLU 3 STÆRÐIR NÝ ÞJÓNUSTA VIÐ VIÐSKIPTAVINI í NÝBYGGINGUNNI BANKASTÆTI 7. Samvinnubankinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.