Morgunblaðið - 20.07.1975, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 20.07.1975, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚLl 1975 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavik. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, simi 10 100. Auglýsingar Aðalstræti 6, simi 22 4 80. Áskriftargjald 700,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 40,00 kr. eintakið Hann lýsir ofsóknum á hendur einstaklinga í Sovétríkjunum, sem leyfa sér þann munað að hafa aðrar skoðanir en kerfið leyfir, fólks, sem býr við hliðstætt öryggisleysi, fangelsanir og útþurrkun og Gyðingar þriðja ríkis- ins. Um þetta fólk segir hann orðrétt: ,,í hvert sinn sem þið hjálpið fólki, sem er ofsótt í Sovétríkjunum, sýnið þið Solzhenitsyn — ákall útlaga Morgunblaðið birtir í dag athyglisverða ræðu rússneska hugsuðar- ins og rithöfundarins Solzhenitsyns, sem hann flutti í boði bandarísku verkalýðsfélaganna, nokk- urs konar ákall útlaga, sem sat 11 ár í fangelsi fyrir skoðanir sínar einar saman og sætti áratugum saman ofsóknum sovétkerfisins. Hann gerir í ræðu sinni grein fyrir svartnætti flokksræðis rússneska kommúnistaflokksins, veikburða en vaknandi starfi frjálshyggjufólks innan Sovétríkjanna, og skyldum hins frjálsa heims til varnar lýðræði og al- mennum mannréttindum. Um pólitískt valfrelsi í Sovétrikjunum segir hann: „Þetta er kerfi þar sem ekki hafa farið fram kosn- ingar i fjörutíu ár, sem mark er á takandi, heldur farsi einn saman. Þetta er kerfi, sem hefur engar lög- gjafarstofnanir, enga frjálsa fjölmiðla, enga sjálfstæða dómara — þar sem þegnarnir hafa hvorki áhrif á stefnuna í innan- lands- né utanríkismálum, þar sem sérhver hugsun, sem brýtur í bág við við- horf ríkisins, er brotin á bak aftur.“ Hann lýsir markvissum yfirgangi Sovétríkjanna í samskiptum við aðrar þjóð- ir. Hann segir ráðstefnuna í Yalta, í lok síðari heims- styrjaldarinnar, að óþörfu hafa viðurkennt hernám Mongólíu, Moldaviu, Eist- lands, Lettlands og Lithá- en. Sjö Austur-Evrópulönd hafi síðan fylgt í kjölfarið, bak við járntjaldið. Hann varar við þróun mála í Asíu og Afríku og hvetur til varkárni og ákveðni í sam- skiptum við Sovétrikin. ekki einvörðungu góðsemi og dyggð. Þið eruð ekki einungis að verja þetta fólk, heldur eruð þið að verja sjálf ykkur um leið. Þið eruð að verja framtíð ykkar.“ Ræða Solzhenitsyns er þrungin beiskju manns, sem þolað hefur órétt og ofsóknir í áratugi og ber þess merki. Hún er og þrungin ótta um, að orð hans finni ekki hljóm- grunn I hugum fólks, sem býr við efnahagslegt og stjórnarfarslegt öryggi, en gerir sér ekki grein fyrir þvi, að þetta öryggi þarfn- ast vörslu og verndar. Hug- ur Vesturlandabúa sé um of bundinn húsi, bíl og hag- sæld. Og þessa hagsæld verji þeir með endalausum eftirgjöfum, er stuðlað hafi að frelsissviptingu og ógn- arstjórn annarra þjóða. Því sé ekki gaumur gefinn, að keypt hagsæld á ann- arra kostnað, færi hættuna í hlaðvarpa hinna vest- rænu ríkja. Beiskjan, sem einkennir ræðu Solzhenitsyn, er e.t.v. veikleiki hennar. Hún kemur okkur fyrir augu sem knýttur hnefi, en þessi hnefi knýr engu síður á samvizkudyr sérhvers manns. Þess vegna ættum við að lesa ræðu hans með opnum huga, samúð og skilningi, og draga réttan lærdóm af þeirri reynslu, sem að baki orðanna býr. „Ekki sér hann ána menn agnrýni Þjóðviljans á þjóðmálavettvangi hefur undanfarnar vikur byggst á þremur megin- þáttum: kjaramálum, orku- málum og landhelgismál- um. I þvi efni er vert að rifja upp feril Alþýðu- bandalagsins í vinstri stjórn og umræðum um nýja slíka á sl. ári. Það var vinstri stjórnin sem rauf tengsl kaupgjalds og vísitölu, með samþykki Alþýðubandalagsins. I um- ræðum um myndun nýrrar vinstri stjórnar féllst Al- þýðubandalagið á gengis- lækkun, söluskattshækkun og hækkun á verðjöfnunar- gjaldi raforku. Ráðherra þess samdi raunar frum- varpið um hækkun raf- orkuverðs. Sami ráðherra þess átti allan veg og vanda af undirbúningi og samn- ingsviðræðum varðandi járnblendiverksmiðju á Grundartanga í Hvalfirði, valdi samningsaðilann og mótaði samningsdrögin. Hins vegar var algjör kyrr- staða í nýtingu jarðvarma til húshitunar allan ráð- herraferil hans. Eftir út- færslu fiskveiðilögsögunn- ar i 50 sjómílur stóð Al- þýðubandalagið að viðræð- um og samningum við Breta, Belga, Norðmenn og Færeyinga og féllust á við- ræður við V-Þjóðverja, sem ekki leiddu til samn- inga. í þá tíð komu og fram tilmæli frá Austur- Þjóðverjum og Pólverjum um viðræður, sem ekki var hafnað, en fóru hins vegar ekki fram. Þessi atriði eru dregin hér fram i dagsljósið til að sýna ósamræmið og óheil- indin í skrifum Þjóðvilj- ans, eftir að Alþýðubanda- lagið komst í stjórnarand- stöðu. Ásakanir blaðsins, bitna því ekki sfzt á ráð- herrum og þingliði Alþýðu- bandalagsins, sem stóðu að þess konar stjórnunarað- gerðum öllum, sem hat- rammast er deilt á nú. Þessi Þjóðviljaskrif rúm- ast því öll innan boðskapar gamals spakmælis, sem svo hljóðar: „Ekki sér hann sína menn, svo hann ber þá Iíka.“ Reykj avíkurbréf Laugardagur 19. júlí 200 mílurnar Bak við þá ákvörðun íslenzku ríkisstjórnarinnar að færa fisk- veiðilögsöguna út í 200 sjómílur 15. okt. n.k. stendur einhuga þjóð. Allir góðir Islendingar fagna þvi að þetta mikilvæga spor hefur verið stigið, og við ættum nú senn að sjá fyrir endann á langri og harðri baráttu lítillar þjóðar fyrir tiivist sinni. Auðvitað hefur þró- unin á alþjóðavettvangi hjálpað íslendingum til að ná settu marki. En einnig má benda á það, sem Geir Hallgrímsson forsætisráð- herra sagði f samtali hér í blaðinu í vikunni, að við höfum átt „þátt í að.móta þá þróun“. Það hefur þvi ekki verið lítil ábyrgð, sem hvílt hefur á herðum formanns ís- lenzku sendinefndarinnar á haf- réttarraðstefnu Sameinuðu þjóð- anna, Hans G. Andersens, enda hefur hann lengst af verið kvadd- ur til, þegar stjórnvöld hafa mót- að stefnu íslendinga i hafréttar- málum, og nýtur mikillar virðing- ar erlendis eins og þeir vita bezt, sem fylgzt hafa með störfum hans á hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Það er sanngirnismál að á þetta sé minnzt, nú þegar lokasporið er stigið í hafréttar- málum okkar. Menn geta að sjálfsögðu deilt um, hver sé mikilvægasti þáttur- inn í landhelgismálum íslendinga og pólitísk dagblöð geta gamnað sér við að bera alls kyns undra- rétti á borð fyrir kjósendur sína, eins og Tíminn gerði í forystu- grein nú í vikunni, þegar blaðið ræddi landhelgismál og komst að þeirri niðurstöðu, að allar út- færslur væru framsóknarmönn- um einum meira og minna að þakka. Þá geta pólitísk dagblöð einnig farið í fýlu, ef þau vilja, eins og Þjóðviljinn gerði i vikunni, þegar lýst var yfir 200 mílna útfærslu. Sýnir það kannski betur en margt annað að pólitískur ávinningur skiptir hjá þeim Þjóðviljamönnum, meira máli en hugsjónin sjálf, eins og stundum vill brenna við. En þjóðin fagnar einhuga og óskar þess, að stjórnmálamenn reyni ekki að skara eid að póli- tískri köku sinni, heldur finni þeir leiðir til að standa saman og leysa þau brýnu verkefni, sem við blasa, ef tryggja á, að útfærslan nái tilgangi sínum. Mestu máli skiptir að fiskveiðilandhelgi ís- lands verði friðuð með þeim hætti, sem stefnt er að, svo að fiskurinn komist á miðin,. en sé ekki upp urinn á leiðinni þangað, eins og oft hefur verið. Að þessu leyti erhafsvæðiðmilliðOog 200 mflna mjög mikilvægt. Um það fara þýðingarmiklar þorskgöngur á leið frá GrænlandLá Islandsmið. Varðar miklu að þær njóti frekari verndar en verið hefur. Á þessu svæði eru mikilvægar uppeldis- stöðvar og gönguleiðir karfa, ufsa, loðnu og síldar, sem miklu skipta fyrir framtíðarhagsmuni þjóðarinnar. Matthías Bjarnason sjávarútvegsráðherra lagoi áherzlu á það í merkri ræðu sinni, þegar reglugerðin um útfærsluna var gefin út 15. júlí s.l., að megin- markmiðið með henni væri að koma í veg fyrir ofveiði fiskstofna á Islandsmíðum, sem ýmist væru full- eða ofnýttir og hindra sókn erlendra veiðiskipa á miðin. Hann sagði: „Eitt meginmarkmið út- færslu fiskveiðilandhelginnar i 200 sjómílur 15. okt. n.k. er það að afla okkur Islendingum betri að- stöðu en við höfum haft til að stjórna veiðunum á Islandsmið- um í heild. Vegna aðstöðu og veiða útlendinga hefur verið erf- itt fyrir Islendinga að gera ein- hliða ráðstafanir á þessu svæði, svo að þær bæru árangur — og í mörgum tilvikum ókleift með öllu. Tilgangslaust virðist að minnka eigin veiðar, ef það leiðir aðeins til að auka veiðar út- lendinga. Á hinn bóginn verða allar ráðstafanir til friðunar árangursríkari eftir þvi sem er- lendum veiðiskipum fækkar á miðunum. Eftir þvi sem Is- lendingar ná fiskistofnunum meir undir sína stjórn vex þeim þvi ábyrgð og verkefni að því er varðar verndun og hámarksnýt- ingu stofnanna. Eftir200mílna út færsluna ættu íslendingar að geta sett reglur til verndar fiskistofn- um á stórum hafsvæðum, sem bæru tilætlaðan árangur. Þá krefst útfærslan i 200 mílur veru- legs átakstil eflingar rannsókna á fiskistofnunum.“ Og ennfremur: „Meginmarkmið útfærslu fisk- veiðilandhelginnar er að koma í veg fyrir ofveiði fiskistofnanna á Islandsmiðum, sem þegar eru ýmist fullnýttir eða ofveiddir og hindra sókn erlendra veiðiskipa á Islandsmið. Ef íslendingar eiga að geta haldið til jafns við aðrar þjóðir um lifskjör, verður hlut- deild þeirra i heildarvéiðinni á Islandsmióum að vaxa. Útfærslu fiskveiðilögsögunnar er ætlað að tryggja hámarksnýtingu fisk- stofnanna á íslandsmiðum og skynsamlega stjórn þeirra. Stækkun fiskveiðilandhelg- innar í 200 sjómílur hefur verið nægilega undirbúin innanlands sem utan og er vissuiega mikill og merkilegur lokaáfangi í réttinda- og hagsmunabaráttu Islendinga. Hún verður mikill fengur fyrir okkur Islendinga að því leyti, að aukið fiskimagn, einnig fiskur sem veiddur er og nýttur er I dag, heldur sig utan 50 sjómílna en innan 200 mílna markanna. Með útfærslunni hafa Islendingar helgað sér og tekið í sínar eigin hendur stjórn á hinum hefð- bundnu Islandsmiðum." Mergurinn málsins er sá, að nú erum við að ná lokatakmarki því, er við settum okkur með land- grunnslögunum 1948 um yfirráð okkar á lifandi auðlindum á Is- landsmiðum; að við erum að „öðl- ast yfirráð yfir íslandsmiðum öllum“, eins og forsætisráðherra benti á í fyrrnefndu samtali. „Þýðingarminni” útfærsla? Fiskveiði lögsaga Islands var stækkuð úr 3 mílum 1901 f 4 mil- ur 1952, úr 12 mflum 1958 í 50 mílur 1972 og nú loks í 200 sjómíl- ur. íslenzka þjóðin hefur einlæg- lega fagnað öllum þessum áföng- um. Hún hefur ekki fylgzt með öðru betur en stækkun fiskveiði- lögsögu sinnar og raunar er það hún sjálf sem hefur mótað stefn- una, því að hver sá, sem ekki hefur farið að vilja hennar f þess- um efnum, hefur dæmt sjálfan sig úr leik. Auðvitað er stækkun- in nú stærsta skrefið, sem stigið hefur verið, a.m.k. ef miðað er við stærð þess yfirráðasvæðis sem Is- lendingar fá i sinn hlut. Út- færðsla úr 50 mílum f 200 mflur hlýtur að vera stærra spor en t.a.m. 38 mílurnar úr 12 f 50 mílur. Auk þess er útfærslan nú miðuð við þróun í alþjóðahaf- réttarmálum og tekin mið af þeirri stefnu, sem nýtur stuðn- ings mikils meirihluta þjóða heims. Aftur á móti heyrðist aldrei talað um 50 mílur á hafrétt- arráðstefnunni f Genf, svo að dæmi sé tekið. 50 mílur er því engin raunhæf viðmiðun, þegar litið er á þróun hafréttarmála í heiminum. Um útfærsluna nú sagði Tíminn í forustugrein s.l. þriðju- dag m.a.: „Þetta er fjórða út- færslan á fiskveiðilögsögunni og sú sem nær yfir stærst hafsvæði. Hins vegar má segja, að eins og sakir standa sé hún þýðingar- minni en hinar fyrri, því að til- tölulega litlar fiskveiðar eru á svæðinu milli 50 og 200 mílna." Þetta er alrangt, eins og fram kemur í ræðu Matthíasar Bjarna- sonar, sem vitnað er til hér að framan. Yfirráðasvæði Islands stækkar um helming við út- færsluna 15. okt. Hvernig getur slfkt spor verið ,,þýðingarminna“ en þau sem áður hafa verið stigin? Areiðanlega mundu þeir ekki skrifa undir það þeir forystumenn í sjávarútvegi, sem á sínum tíma undirrituðu áskorun til Alþingis þess efnis, að íslendingar færðu landhelgi sína út i 200 sjó- mflur. Framtak þessara manna verður ekki sfður munað en ákvarðanir einstakra forystu- manna f stjórnmálum enda þótt pólitíkusar hirði ekki um að tfunda það f málgögnum sínum. En vegna ummælanna f forystu- grein Timans mætti draga þá ályktun, að Sjálfstæðisflokkurinn hefði haft alla forystu um út- færslu landhelginnar nú og raunar þurft að þrýsta á til að hún yrði að veruleika. Tfminn ætti sízt af öllu að skrifa á þann veg, að sú hugsun læddist áð Islendingum. Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt höfuðáherzlu á 200 mílurnar, það er rétt. Hann telur hana sízt af öllu „þýðingarminni" en aðrar útfærslur og hefur þó átt aðild að útfærslu íslenzkrar fiskveiðiland- helgi fyrr. I þessu sambandi má minna á þingsályktunartillögu Sjálfstæðisflokksins, sem lögð var fram á Alþingi í okt. 1973 um útfærslu fiskveiðilandhelgi Is- lands í 200 sjómílur. Allir þing- menn flokksins fluttu tillöguna, en Gunnar Thoroddsen formaður þingflokksins var fyrsti flutnings- maður hennar. Tillagan var svo hljóðandi: „Alþingi ályktar að fiskveiðilandhelgi Islands verði stækkuð þannig að hún verði 200 sjómílur frá grunnlínum allt í kringum landið og komi stækkun-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.