Morgunblaðið - 20.07.1975, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 20.07.1975, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚLl 1975 27 LÍTILSHÁTTAR UMBÆTUR — EN EKKINYTT TÍMABIL FRJÁLSRÆÐIS Þegar þíðan í samskiptum stórveldanna komst í fyrir- sagnir dagblaðanna fyrir þremur árum voru margir á Vesturlöndum, og nokkrir í Sovétríkjunum, þeirrar skoðunar að nýtt tímabil væri hafið í samskiptum austurs og vesturs, sem myndi opna sovézkt þjóðfélag og leiða til frjálslegri samfélagshátta á mörgum sviðum. Nú er hins vegar Ijóst, að sovézka stjórnin hefur með sívaxandi sjálfstrausti og hentistefnu fundið leið til þess að komast að hag- kvæmum samskiptum við Vesturlönd á sviði utanríkis- og efnahagsmála án þess að þurfa í staðinn að slaka til heima fyrir. Valdhafarnir, undir forystu Leonid I. Brezhnevs, hafa sýnt fram á að þeir eru stað- ráðnir í að láta það ekki endurtaka sig sem gerðist fyrir meira en tíu árum, á valdatima Nikita S. Khrushchevs, þegar vinsam- leg samskipti við Vesturlönd ollu ólgu heima fyrir. Kreml hefur sýnt kænsku og gert nokkrar tilslakanir, til dæmis í sambandi við að leyfa Gyðingum að flytjast úr landi og meðferð nokkurra heimsfrægra manna, sem eru óánægðir. En þetta hafa verið minniháttar eftirgjafir og ekki haft áhrif á þær reglur, sem ríkja heima fyrir. Þetta voru ekki umbætur sem boðuðu nýtt tímabil frjálsræðis. Sovétríkin hafa flutt inn margra milljarða virði af vest- rænni tækniþekkingu keypt milljónir tonna af korni og komizt yfir tölvur og jafnvel heilar verksmiðjur án þess að splundra eða gera verulegar breytingar á efnahagsráð- stöfunum og jafnvel án þess að breyta að nokkru marki þeirri leynd, sem hvílir yfir milliríkjavíðskiptum þeirra. Þau eru hætt að trufla út- sendingar vestrænna út- varpsstöðva en hafa nægi- lega umsjón með þeim heima fyrir til þess að koma í veg fyrir að spilling frjálsra hugsana valdi nýrri sköpun- arþrá meðal menntamanna, sem flestir hafa meiri áhuga á nýjustu tízku Vesturlanda en skoðanamuni manna á milli. Ritskoðun er enn ströng. Útlendingar fá aðeins að um- gangast fáa útvalda fyrir utan þá, sem þeir hitta stutt- lega af tilviljun. Höft eru grýla, sem allir muna nema nökkrir óánægjumenn, sem ekki hafa með sér nein samtök, og þeir verða æ færri vegna þess að þeir sem mest ber á eru sendir i útlegð. Jsreiir H ork Shtteg •'3SN---A ■ Eftir Hendrick Smith Á efnahagssviðfrfu hefur ríkisstjórnin smám saman bætt lífskjörin og fullnægt óskum hinna betur stæðu úr hópi neytenda um einkábif- reiðir, betra húsnæði og ytri stöðutákn eins og til dæmis fallegan umbúðapappír, síð- buxur fyrir kvenfólk háhælaða kuldaskó, gæludýr og andlitslyftingu. Óskum neytenda hefur hins vegar verið haldið svo vel i skefjum, að þær hafa ekki áhrif á landvarnir og þunga- iðnað sem alltaf hafa gengið fyrir. Sovézk efnahagsmál llða enn fyrir lélega stjórn, ódugnað, litla framleiðslu lélega nýtni verksmiðja og hægfara uppbyggingu. Á þessum áratug hefur hag- vöxturinn ekki orðið eins mikill og leiðtogarnir eða áætlanasérfræðingarnir vildu. Á síðustu fjóruín árum hefur vöxturinn þó verið hægur og stöðugur og þolir nú samanburð við hið óstöðuga hagkerfi Vestur- landa. Verðbólga, atvinnu- leysi, gjaldeyrisvandræði og orkukreppa Vesturlanda hafa skyggt á hin stöðugu vanda- mál Sovétrikjanna og valdið því að okkur virðast Rússar hafa minni áhyggjur af þeim. Sovézka stjórnin hefur forðazt að endurtaka háðs- yrði Khrushchevs um að kommúnismi myndi 'ganga að kapítalismanum dauðum og sömuleiðis hefur hún forð- azt þá freistingu að skipa vestrænum kommúnista- flokkum að stofna til póli- tískrar ringulreiðar í löndum eins og Portúgal, Grikklandi, Ítalíu og Frakklandi. Ræður meðlimá „Pólit- buro" nú i haust hafa hins vegar bent til að ekki hafi allir gefið upp vonina um að kapítalisminn muni grafa sjálfan sig. Brezhnev hefur hins vegar augljóslega sett sér- mun mikilvægara takmark, að nýta sem bezt bætt samskipti við Vesturlönd í þeim tilgangi að ná jafnræði við Bandaríkin og útrýma hugmyndum manna um Sovétríkin sem vanþróað land. Þiðan hefur haft áhrif á aðeins takmarkaðan hluta sovézkra borgara. Þeir sem mest hafa hagnazt á henni eru íbúar stórborganna, til dæmis Moskvu, Leningrad og Odessa, þar sem verzlað er með gallabuxur, vestrænar hljómplötur, raf- magnstæki og aðrar mun- aðarvörur. Fyrir margar milljónir bænda, sem búa í bjálka- kofum við þrönga vegi mið- rússnesku sléttunnar, hefur þíðan haft lítil sem engin áhrif. Þeir verða enn að vinna erfiðisvinnu við frum- stæð skilyrði, taka upp kartöflur með höndunum og bera vatnsfötur á herðum sér. Þar sem þeir sitja á tré- bekkjunum framan við hús sín er umheimurinn þeim eitthvað óviðkomandi. (þýð J .ÞÞ.) in til framkvæmda eigi slðar en 31. des. 1974. Þar sem skemmra er milli Is- lands og annarra landa en 400 sjómílur skal í samræmi við alþjóðlegar venjur miða við mið- linur milli landa. Alþingi felur ríkisstjórninni að leggja fyrir þingið frumvarp um þær breytingar á lögum, sem nauðsynlegar eru vegna útfærslu i 200 sjómílur. Alþingi leggur nú sem fyrr áherzlu á nauðsyn þess að settar séu strangar reglur um verndun fiskistofna til þess að tryggja sem bezt hagnýtingu þeirra og koma í veg fyrir ofveiði og að þeim regl- um verði fylgt eftir með festu.“ Af ýmsum ástæðum sem flutningsmönnum voru óviðkom- andi hefur útfærslan dregizt nokkrum mánuðum lengur en ráðgert var með þessari þings- ályktunartillögu sjálfstæðis- manna. Morgunblaðið ræðir tillögu þessa I forystugrein 24. okt. 1973 og vitnar þá ma. til ræðu Gunnars Thoroddssens á Alþingi, þar sem hann segir m.a., að mál hafi þróazt þannig, að þau lönd, sem vilja víðáttumikla landhelgi og fylgja landgrunnsstefnunni eins og við, „telja yfirleitt sigurvæn- legast að fylkja sér um 200 mílur... Þess vegna eru 200 milurnar liklegastar til þess að sameina þessi óliku sjónarmið, sem hafa það þó sameiginlegt að stefna að stórri landhelgi. 200 mílna landhelgin mun ná til þeirra fiskimiða, sem mestu skipta fyrir okkur og taka yfir landgrunnið, og sums staðar ná lengra. Það samræmist þvi íslenzkum hagsmunum að taka upp þá stefnu. .. við teljum það lífsnauðsyn fyrir íslenzku þjóðina vegna þess, að utan 50 mílna, milli 50 og 200 mílna,eru dýrmæt fiskimið i alvarlegri yfirvofandi hættu... Eftir undirbúningsfundi hafréttarráðstefnunnar liggur það einnig fyrir, svo að ekki er véfengt, að meirihluti þjóða heims er orðinn fylgjandi 200 milna efnahags- eða auðlindalög- sögu, sem felur m.a. i sér fisk- veiðilandhelgi. Hins vegar getur hafréttarráðstefnan tekið 2 eða 3 ár, eða lengri tíma, og enginn veit hvort þeir % hlutar atkvæða, sem þarf til þess að samþykktin verði að alþjóðalögum, fáist, eða hve- nær. Auk þess þarf staðfestingu margra ríkja á eftir. Þegar allt þetta kemur saman sýnist okkur sjálfstæðismönnum ekki ástæða til þess að biða, heldur talsverður ábyrgðarhluti og áhætta að bíða öllu lengur en við höfum lagt til.“ Athyglisvert er, að þessi þings- ályktunartillga sjálfstæðismanna er birt í sama Morgunblaðinu 17. okt. 1973, og sagt er frá för Ólafs Jóhannessonar þáverandi forsæt- isráðherra, á fund Heaths, en það var ekki fyrr en Ólafur fór þessa för til Bretlands, sem tilganginum með útfærslu 50 mílna fiskveiði- lögsögu var raunverulega náð. Fram að þeim tima veiddu Bretar innan 50 mílnanna meira og minna eins og þeim sjálfum sýnd- ist. Það er því rétt hjá stjórnar- flokkunum, nú þegar þeir loka ekki öllum samningaleiðum, en stefna að því að tilganginum með útfærslunni í 200 miðlur verði náð á borði, en ekki einungis í orði. Þróunin i hafréttarmálum hjálpar okkur til þess að 200 mílna útfærslan verði ekki „pappirsplagg“ eins og 50 mílna útfærslan var lengi framan af, heldur raunveruleg staðreynd. Bókun stjórnarflokkanna í landhelgisnefndinni nú er svo- hlóðandi: „I framhaldi af útgáfu reglugerðar um útfærslu fisk- veiðilögsögunnar í 200 sjómílur hinn 15. júli 1975 og með hliðsjón af þvi, að hafréttarráðstefna Sam- einuðu þjóðanna hefur enn eigi lokið störfum, er eðlilegt að tekn- ar séu upp viðræður við þær þjóð- ir sem þess óska vegna útfærsl- unnar, svo að tryggð verði sem fyllst hagnýting Islendinga sjálfra á fiskstofnum við landið. Jafnframt er nauðsynlegt að leggja höfuðáherzlu á að störfum hafréttarráðstefnunnar verði hraðað svo sem mest má verða.“ .Það er rétt sem Lúðvfk Jóseps- son segir um útfærsluna nú, þegar hann kemst svo að orði, að „það er þetta atriði sem ég legg nú megináherzlu á í stöðu landhelgismálsins i dag, að það dugir ekki aðeins að færa út að forminu til i 200 milur." Hann mælir þessi orð af bit- urri reynslu. En bæði hann og aðrir vita, að Islendingar hafa aldrei fært út landhelgi sína án mikillar baráttu. Við eigum áreiðanlega einhverja slika bar- áttu fyrir höndum og því er nauð synlegast af öllu að menn standi saman, a.m.k. þangað til séð verð- ur hvert stefnir. Forsætisráð- herra Geir Hallgrímsson, sagði um samstöðu Islendinga f fyrr- nefndu samtali við Morgunblaðið: „við fögnum þvi að samstaða er um útfærsluna i 200 milurnar 15. okt. n.k. og eigum ekki að rýra áhrif samstöðunnar með því að efna til deilna um viðræður við aðrar þjóðir fyrr en séð verður, hvaða kosti við höfum af þeim viðræðum höfnum. Þá geta menn valið eða hafnað og rökrætt um valkostina. Þeir sem hinsvegar rjúfa sam- heldnina á þessu stigi málsins veikja stöðu okkar gagnvart öðr- um þjóðum, þegar mestu máli skiptir að styrkja hana.“ I framhaldi af fyrrnefndum ummælum Lúðviks Jósepssonar um útfærsluna virðist þvi miður mega ráða, að hann muni nú beita sér fyrir ófriði um útfærsluna. Það er að sjálfsögðu hans mál og flokksmanna hans. Hann virðist miða alla hluti við 50 milurnar eins og fram kemur af eftirfar- andi orðum: „Ég tel, að nú höfum við svo sterkan bakhjarl á alþjóðavettvangi i þessum málum og að nauðsyn okkar sé svo brýn að við eigum alveg skilyrðislaust að slá þvi föstu, að a.m.k. innan 50 mílnanna veitum við ekki frekari veiðiheimildir útlendingum . . .“ En auðvitað skiptir i sjálfu sér litlu máli eða engu, hvort við veitum einhverjar veiði- heimildir fyrir innan 47 míl- ur eða 53, svo að dæmi séu tekin. 50 milna viðmið- unin er úr sögunni, hún hefur aldrei verið annað né meira en áfangi að settu takmarki. Aðal- atriðið er að tilganginum með út- færslu nú verði náð, eða eins og forsætisráðherra hefur komizt að orði: „I viðræðum við aðra verð- um við að leggja megináherzlu á eðlilega verkaskiptingu þjóða i þessum efnum og sýna fram á kosti þess ekki sizt fyrir aðra, að Islendingar nýti aflann af íslandsmiðum. Við megum ekki gleyma þvi, að við höfum hagsmuna aó gæta inn- an væntanlegrar 200 mílna lög- sögu annarra ríkja. Þar má nefna síldveiðar i Norðursjó, þorsk- veiðar við Grænland og þorsk- og karfaveiðar við Nýfundnaland. Markmið okkar i viðræðum við aðra verður auðvitað að takmarka sem mest veiðar þeirra við Island, þar til endanlegur hafréttarsátt- máli er fullfrágenginn, svo að við einir sitjum að sem mestum og beztum afla innan ramma strangra og skynsamlegra friðunarreglna.. Þetta er auðvitað mergurinn málsins. Við þurfum með samningum að geta haft áhrif á friðun fisks innann væntanlegrar 200 mflna fiskveiðilögsögu nágrannaþjóða, sem gengur á Islandsmið. Tvennt er það einkum sem nýja útfærslan er grundvölluð á, það eru landgrunnslögin frá 1948 og, þróun hafréttarmála á alþjóða vettvangi, ekki sízt frumvarp það, sem lagt var fram á síðasta fundi hafréttarráðstefnunnar í Genf, þar sem gert var ráð fyrir þvi, að strandríki hafi yfirráðarétt yfir 200 milna efnahagslögsögu sinni og geti ákveðið fiskimagn á þessu svæði og hvernig það skuli nytjað. Þá byggist ákvörðunin um það atriði í reglugerðinni nú, að 200 milunum í átt að Jan Mayen verði ekki framfylgt að svo stöddu á þeirri niðurstöðu fyrrnefnds frumvarps á hafréttarráðstefn- unni, að miða megi efnahagslög- sögu við þær eyjar einar sem byggðar eru mönnum. Það hlýtur að vera íslendingum fagnaðar- efni, hversu vel norðmenn hafa tekið þessu ákvæði í reglugerð- inni og yfirleitt, hve viðbrögð þeirra við útfærslu Islendinga nú eru jákvæð. Utanrikisráðherra þeirra Frydenlund, telur að lik- legt sé, að almennur skilningur ríki í heiminum á sérstöðu tslands I hafréttarmálum. Um Jan Mayen komst Matthías Bjarnason sjávarútvegsráðherra svo að orði i fyrrnefndri ræðu sinni: „I samræmi við frumvarp það að heildartexta hafréttarsátt- mála, er nú liggur fyrir hafréttar- ráðstefnunni, gilda miðlínur, þar sem minna er en 400 sjómílur milli grunnlina annarra landa annars vegar og Islands hins- vegar. Þetta tekur þó ekki til Rockall, enda er gert ráð fyrir því í greindu frumvarpi, að óbyggi- legir klettar, sem ekki geti orðið Framhald á bls. 31

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.