Morgunblaðið - 20.07.1975, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 20.07.1975, Qupperneq 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚLl 1975 G í ★★★ Etat de Siege, frönsk/ítölsk/v-þýzk, 1973. Leikstjóri: Costa-Gavras. Costa Gavras er vel þekktur fyrir myndir sínar Z og Játning- una, sem báöar hafa verið sýnd- ar hér. Gísl er gerð í sama stíl og hinar tvær fyrrnefndu, án þess þó að búa yfir sömu spennu og þær. Myndin er byggð á atburði, sem vakti heimsathygli á sínum tíma, er þremur háttsettum mönnum í Uruguay var rænt af Tupamaros skæruliðum. Einn þremenninganna var Dan Anthony Mitrone (nefndur Philip Michael Santore í mynd- inni), sérlegur fulltrúi Banda- ríkjastjórnar, sendur af stofn- un er nefnist „U.S. Agency for International Development," til að „aðstoða" lögregluna í Uruguay í umferðarmálum. Þetta var þó aðeins á yfir- borðinu og hið raunverulega verkefni hans var að kenna lög- reglunni baráttuaðferðir gegn skæruliðum, ýmsar pyntinga- aðferðir, herbrögð og Sprengju- tækni. Hann er handtekinn af skæruliðum, sem reyna að þvinga stjórnina til að skipta á honum og fangelsuðum skæruliðum, en stjórnin neitar að viðurkenna að hafa nokkra slíka pólitfska fanga í sinni vörslu. Santore er því líflátinn en í lok myndarinnar er eftir- manni hans heilsað á flugvell- inum og Tupamaros-skæruliði fylgist vel með komumanni. Costa-Gavras og handrita- höfundurinn, Franco Solinas (sem skrifaði m.a. handritið að Battle of Algiers og Burn!), leggja þannig áherslu á hina endalausu valdabaráttu. Til að undirstrika þann skilning, að íhlutun stórveldis í mál smærri ríkja sé vonlaus, búa þeir til atriði á skólalóð háskólans, þar sem lögreglan reynir að bæla það dregur allan mátt úr þvi efni, sem á eftir fer. En höfundarnir gera þetta greini- lega til að forðast samúð með Santore, til að forðast að spennan snúist aðeins um það, hvort hann kom- ist Iffs af eða ekki, og til þess að hafa meira svigrúm til að vekja samúð með skæruliðunum. Þetta sjónarmið á sannarlega fullan rétt á sér, en spurningin er hins vegar sú, hvort þeir hefðu ekki eins getað haldið samúð áhorfandans með skæru- liðum, án þess að þurfa að gefa upp endalokin í upphafi eins og þeir gera. Myndin er gerð sem heimildarmynd um atburði einnar viku, þar sem hver dagur er rækilega merktur, áhorfandinn er gerður að þátt- takanda, sem fylgist gaumgæfi- lega með framvindu málsins, likt og atburðurinn væri að gerast og þess vegna er þetta stílbrot í upphafi öllu ankanna- legra, eftir því sem lengra liður á myndina. Persónulega tel ég, að Gavras og Solinas hefðu dregið upp skarpari mynd og áhrifameiri, hefðu þeir haldið sig við eðlilega rás atburða strax f upphafi. Þessi ákvörðun þeirra er 'öllu undarlegri fyrir þá sök, að á ýmsum stöðum í myndinni reyna þeir að búa til dramatíska spennu, oft úr litlu efni. Þetta gerist til dæmis f atriðinu, þar sem talsmaður stjórnarinnar skýrir á blaða- mannafundi frá þeirri ákvörðun, að ekki verði orðið við kröfu skæruliðanna um fangaskipti. Talsmaður höfund- anna, blaðamaður að nafni Ducas, kemur þá með eftirfar- andi athugasemd (sem þegar er orðin öllum áhorfendum löngu ljós): „Samkvæmt þessari ákvörðun verður Philip Santore tekinn af Iffi.“ Þögn slær á salinn, um leið og klippt er á nærmynd af talsmanni stjórnarinnar, sfðan er klippt f nokkru víðari mynd af þeim tveim, sfðan mjög víða mynd af öUum salnum og síðast inn á nærmyndina af talsmanni stjórnarinnar sem spyr. „Hver var spurningin?“ „Engin. Það er engin spurning," svarar Ducas. Gavras reynir þarna að slá um sig og skapa spennu með athugasemd um ástand sem áhorfandinn hefur fyrir all- nokkru gert sér fulla grein fyr- ir. Áhrifin eru því hin sömu og af vindhöggi. En þrátt fyrir ýmis umdeilanleg mistök f þessari mynd, er Costa-Gavras eftirtektarverður leikstjóri, sem á skilið fulla virðingu þeirra, sem vilja stuðla að því að uppræta allskonar pólitískt ofbeldi, hvort sem það kemur frá hægri eða vinstri. SSP. Kötturog 0 Cat and Mouse, bresk. 1974. Leikstjóri: Daniel Petrie. Kirk Douglas er ekki beint sá leikari, sem ég mundi telja heppilegan I hlutverk manns, er þjáist af minnimáttarkennd. Strax f upphafi myndarinnar er augljóst, að Douglas reynir af öllum mætti að leika og gera þessa persónu, sem hann kemst greinilega aldrei f samband við, trúverðuga. Þetta er eitthvert versta dæmi um rangt val leik- ara í hlutverk, sem ég hef lengi séð. George Anderson (Kirk Douglas) er kennari í líffræði og hefur verið það í 15 ár. En þegar kona hans yfirgefur hann og tekur son sinn (sem er ekki sonur Andersons) með sér, hrynur hinn tilbúni heimur hans saman. Nemendur hans uppnefna hann „Mousey" og að lokum rís hann ekki lengur undir þessum niðurlægingum, segir upp starfi sfnu og eltir konu og barn, en hún hyggst gifta sig á nýjan leik. Höfundar myndarinnar reyna að skapa samúð með Anderson en fyrir- ætlanir hans til að ná til sonar sfns eru mjög óljósar og morð hans á bláókunnugu fólki í þeim tilgangi eru vægast sagt óskiljanlegar framkvæmdir. mús Eiginkonan er honum algerlega fráhverf, rekur hann á dyr með því að hringja á lögregluna og verður þannig illmennið í myndinni, ef samúðin á að vera með Anderson. En f loka- atriðinu, þegar Anderson hefur hana loks á valdi sfnu og hyggst drepa hana, brotnar hann niður og grætur eins og smádrengur, sem kemur til mömmu að leita huggunar. I þessu sfðasta atriði er áhorfendum allt f einu ætlað að hafa samúð með eiginkon- unni og öllum stoðum þannig kippt undan þeirri ódýru sál- fræðikönnun, sem áhorfendur virtust eiga að fylgjast með í fyrri hluta myndarinnar. SSP KÚREKALlF Yves Montand og Costa-Gavras. verið síðan myndin var gerð, dylst sennilega engum, að Gavras fer með rétt mál. En þar eð myndin byggist að mestu á því að sanna smám saman, hvert sé hið raunverulega starf Santore, ásamt þvi að fylgst er með eftirgrennslan lögregl- unnar og viðbrögðum yfirvalda, virðist myndin fremur skýrsia en drama. Gallinn er bara sá, að Gavras og Solinas, sem greini- lega vilja ekki gera myndina spennandi, eiga fullt f fangi með að halda spennunni niðri. Þeir grfpa til þess óyndis úr- ræðis strax i byrjun mynd- arinnar að sýna leitina að lfki Santore og finna harn dauðan. Meginhluti myndarinnar er síðan „flashback“, þar sem atburðirnir eri raktir frá degi til dags í stíl heimildarmyndar' Þetta frumhlaup i upphafi veldur þeim nokkrum erfiðleikum til að komast á spor frásagnarinnar, auk þess sem Kúrekalff: Ben Mockridge kemst að þvf, að þetta er ekkert sældarlff. (Billy „Green“ Bush). Dreng- urinn, Ben Mockridge (Gary Grimes), kemst þó fljótlega að þvf að lff kúrekans er erfitt og slóðin þyrnum stráð. Kokkur- inn verður fyrstur til að fræða hann á því, að „starf kúreka er nokkuð, sem þú tekur, þegar þú færð ekkert annað.“ Síðar í myndinni fræðir þreyttur kúreki okkur á þeirri skoðun sinni, að það „besta er að ríða inn í þorp og út úr þorpi — allt þar á milli er ömurlegt.“ Og Culpepper bætir við af visku sinni: „Það sama gildir um ar en kúrekar. Samskipti þeirra innbyrðis eru mjög stirð og eina dægradvöl þeirra við varðeldana að kvöldi er að segja lygasögur um sjálfa sig — hetjusögur, sem varpa frægðar- ljóma á þeirra eigin persónu, en Richards segir okkur að séu tómur uppspuni. Hér er mynd- in best eins og henni er ætlað og jafnvel f fyrstu bardagasen- unni er að finna ofurlítinn anga af raunsæi, þegar drengurinn skynjar ógn dauðans og vald byssunnar. En þar með er líka upptalið. Myndin fær fljótlega S L niður uppreisn stúdenta. Eftir að hún hefur náð nokkrum tök- um á ástandinu, hefja stúdent- arnir að spila tónlist f gegnum hátalara en lögreglan finnur hátalarann og brýtur hann. Um leið heyrist tónlistin í öðrum hátalara, en um leið og hann hefur verið brotinn heyrist hún i enn öðrum og þannig koll af kolli. Gavras gerir þetta atriði mjög hlægilegt, með því að kvikmynda það úr nokkurri fjarlægð og láta lögreglumenn- ina hoppa og skakklappast um lóðina eins og beljur i blautum flór. Atriðið nær tilgangi sínum þvi þessi barátta er greinilega vonlaus. Þannig eru ýmis smáatriði nokkuð sterk í mynd- inni þó í heild sé hún ekki gallalaus. Markmið þeirra með gerð myndarinnar kemur fram í eftirfarandi broti úr viðtali, sem haft var við Costa Gavras: „Markmið okkar var að svipta *-*-The Culpepper Cattle Co., bandarísk, 1972. Leikstjóri: Diek Richards. Nafnið segir næstum allt, sem um þessa mynd er að segja. 16 ára piltur fær þá flugu I kollinn að kúrekalif sé eftir- sóknarverðasta ævistarfið und- ir sólinni og kemur sér að sem aðstoðarkokkur hjá rekstrar- kónginum Frank Culpepper konur." En þar með er náð hápunkti i heimspekilegum vangaveltum um Iff kúrekans. Þetta er fyrsta mynd leikstjórans, Dick Richards, sem jafnframt samdi söguna en fyrir honum vakir greinilega að svipta burt frægðarljómanum, sem lif kúrekanna hefur hingað til oft verið baðað f. Árangur- inn er hins vegar mjög bland- aður. Kúrekar Richards eru fremur fáskiptnir harðjaxlar og margir hverjir meiri byssubóf- á sig blæ venjulegrar bardaga- myndar, þar sem blóðbaðið er jafn óraunverulegt og f þeim myndum, sem Richards vill deila á. Ástæðan er vafalítið sú, að Richards beitir hefðbundn- um aðferðum til að koma bardagasenunum til skila, „tómatsósu" og hröðum klipp- ingum, án þess að byggja betur undir þessi atriði með persónu- sköpun. Persónurnar eru allar fremur óljósar, líkt og goðsögn vestursins, sem myndin reynir að svipta hulunni af, og fyrir bragðið komast áhorfendur engu nær því, hvernig hetjur villta vestursins raunverulega lifðu. Hins vegar er myndin mjög vel unnin tæknilega og er þokkaleg dægrastytting, þó henni mistakist að varpa nýju ljósi á kúrekalífið. SSP. Yves Montand tekinn höndum af skæruliðum fyrir framan hús sitt. hulunni af þeim aðferðum, þeim tæknilegu yfirráðum, sem Bandaríkin beita undir yfir- skini fjölmargra mismunandi stofnana. . . Ég vildi að áhorf- endur, spyrðu eftir að hafa séð myndina hvar sem þeir mættu þessi „ógrynni af örlátum ameríkönum" .. . að íhuga og útskýra þessar tæknilegu aðferðir í Suður-Amerfku, Vietnam eða Evrópu er nákvæmlega sami hluturinn. Að fást við eitt staðbundið vandamál gefur okkur tækifæri til að upplýsa aðferð, sem alls staðar er notuð.“ Eftir þær uppljóstranir, sem gerðar hafa Einn hinna grfmuklæddu ræningja yfirheyrir Santore.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.