Morgunblaðið - 28.09.1975, Síða 1
48 SIÐUR
310. tbl. 62. árg.
SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
ákaf-
— Ljósmynd Brynjólfur.
„Hvað heldurðu að mamma segi ef myndin kemur í Mogganum?“
Vínarborg, 27. september.
AP — NTB.
OLÍUFRAMLEIÐSLURfKIN f
OPEC-samtökunum náðu í dag
samkomulagi um 10% hækkun á
verði hráolíu frá og með miðviku-
deginum nk. og kemur það verð
til að gilda fram til 30. júnf nk.
Skv. þessu hækkar verð á hráolíu-
fati úr 10 dollurum 46 centum f
11 dollara 51 cent. AIls mun þessi
hækkun kosta þjððir heims 10
milljarða dollara á ársgrundvelli.
Öbreytt vcrð hefur verið á olfu
frá því að f janúar sl.
Akvörðunin um verðhækkun-
ina var tekin í morgun eftir mjög
stormasama fundi undanfarna 3
daga og herma heimildir að
ágreiningurinn milli fulltrúa hafi
verið hinn mesti í 15 ára sögu
samtakanna. Sheik Yamani, olíu
málaráðherra Saudi Arabíu, mun
hafa barist harkalega fyrir að
hækkunin yrði ekki meiri en
5—8%, en flestir hinna ráðherr-
anna höfðu komið sér saman um
15% hækkun. Borin hafði verið
fram málamiðlunartillaga frá
fulltrúum Kuwait um 12%
hækkun, en Yamani neitaði að
fallast á hana. Saudi Arabía er
stærsti framleiðandinn innan
OPEC og því var ekki hægt fyrir
hinar þjóðirnar að samþykkja
hækkun, sem Saudi Arabía sam-
þykkti ekki að fylgja.
Síðasta verðhækkun OPEC-
rikjanna, 38 cent á fat, var sam-
þykkt í desember sl., en 1973
fimmfölduðu OPEC-ríkin oliu-
verðið. Vitað er að He'nry Kissing-
er, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, varaði OPEC-ríkin mjög
alvarlega við að samþykkja meiri-
háttar olíuverðshækkun og sagði
að ef svo færi myndi það eyði-
leggja mjög grundvöll fyrir sam-
vinnu þjóða á sviði orkumála.
Sem kunnugt er verður haldinn
fundur olíuframleiðsluþjóða og
olíukaupenda í París 13. október
nk. til að fjalla um orkumál og
önnur vandamál.
Olíuhækkunin
kostar um 10
milljarða dala
Páll páfi VI um
aftökurnar á Spáni:
„Fordæmiim
F. Lee Bailey
verjandi
Patty Hearst?
San Francisco,
27. september. Reuter.
LlKLEGT er nú talið að einn
kunnasti sakamálalögfræðingur
Bandaríkjanna, F. Lee Bailey,
verði aðalverjandi Patriciu
Hearst er réttarhöldin yfir henni
hefjast. Randolph Hearst, faðir
hennar, skýrði fréttamönnum frá
því í dag, að Bailey hefði heimsótt
Patty í fangelsið og rætt við hana
og nú væri það ákvörðun hennar
Framhald á bls. 47.
lega svo mikla kúgun ’ ’
Madrid, Róm, París,
Lissabon, London,
Kaupmannahöfn og víðar, 27.
sept. AP—Reuter—NTB.
MIKIL reiði og viðurstyggð ein-
kenna mótmælin I heiminum
vegna aftöku Spánverjanna 5 f
dögun f morgun. Höfðu þeir verið
dæmdir til dauða ásamt 6 öðrum,
fyrir morð á lögreglumönnum.
Dómum sexmenninganna var
breytt f lffstíðarfangelsi, en þrátt
fyrir gffurleg mótmæli alls staðar
að úr heiminum voru fimmmenn-
ingarnir skotnir f dögun. Áður
hafði verið ákveðið að þeir skyldu
teknir af lífi með kyrkingu, en
talið er að yfirvöld á Spáni hafi
ekki treyst sér til að framkvæma Sviþjóðar, sagði að fréttin vekti I í einræðisstjórnarfar, sem að
aftökuna á þann hátt vegna þess
hve viðurstyggileg hún þykir f
öðrum löndum.
Leiðtogar fjölda þjóða hafa lýst
hryggð sinni yfir þvi að aftakan
fór fram í morgun og Páll páfi tók
óvenju sterkt til orða í yfirlýsingu
í morgun er honum var skýrt frá
aftökunum. Hann sagði: „Við for-
dæmum ákaflega svo mikla
kúgun." Hann skýrði frá þvi að
hann hefði persónulega sent
þrjár áskoranir til spánskra yfir-
valda um að þyrma lífi mannanna
og síðast í gærkvöldi i símtali til
Madrid.
Olof Palme, forsætisráðherra
reiði og sorg og spánska stjórnin
hefði i örvæntingu reynt að halda.
hruni væri komið, en þessi at-
Framhald á bls. 47.
Frydenlund spáir
einhliða aðgerðum
New York, 27. september. Reuter.
KNUT Frydenlund, utanrfkisráð-
herra Noregs, spáði þvf á Alls-
herjarþinginu f gærkvöldi að
mörg strandrfki mundu grfpa til
einhliða aðgerða til verndar fisk-
Nýtt kalt stríð hafið
fyrir tilstilli Rússa?
Utanríkisráðherrar Vestur-
veldanna hafa komizt að þeirri
niðurstöðu að sögn brezka
blaðsins The Guardian, að
Rússar hafi „innleitt kalda
strfðið að nýju, ekki aðeins f
Portúgal heldur einnig með til-
raunum til að koma af stað
glundroða í öðrum löndum
Vestur-Evrópu.“
Henry Kissinger frá Banda-
rfkjunum, James Callaghan frá
Bretlandi, Jean Sauvagnargues
frá Frakklandi og Hans-
Dietrich Genscher frá Vestur-
Þýzkalandi hafa rætt eftirtalda
möguleika á fundi f New York
að sögn blaðsins:
• möguleika á sovézkri fhlut-
un f Júgóslavíu eftir dauða Tit-
os marskálks.
0 þátttöku kommúnista f rfk-
isstjórn á ftalíu.
0 „innbyrðis strfð eða eitt-
hvað enn verra“ á Spáni eftir
dauða Francos þjóðarleiðtoga.
0 stjórn í Portúgal, er komm-
únistar ráða eða stjórn sem er
völt f sessi vegna þrýstings frá
vinstri.
0 sovézka íhlutun eða sov-
ézka undirróðursstarfsemi f
Finnlandi eftir dauða Uhro
Kekkonens forseta.
0 nýja sovézka fhlutun f Ber-
Ifn.
Utanríkisráðherrarnir voru
sammáia um, að burtséð frá
Finnlandi og Berlín væru þess-
ir möguleikar fyrir hendi.
Jafnframt hefur The Times
vakið athygli á stuðningi Leon-
id Brezhnevs flokksleiðtoga við
baráttumenn harðlínustefnu og
valdbeitingu kommúnista-
flokka í Vestur-Evrópu, ef hún
reynist nauðsynleg.
Afstaða Brezhnevs kom í ljós,
þegar Tass skýrði frá þvi, að
Brezhnev hefði hitt að máli
Konstantin Zarodov, sérfræð-
ing i kenningum Marx og Len-
íns og aðalritstjóra ritsins
„Vandamál friðar og sósíal-
isma“, og að Brezhnev „mæti
mikils áhrif“ ritsins.
Nýlega sagði Zarodov vest-
rænum kommúnistaflokkum i
grein í Pravda, að þeir ættu að
ná „yfirráðum", með valdi ef
nauðsynlegt reyndist, og for-
dæmdi bandalög við aðra
fiokka. Skrif Zarodovs hafa
fengið aukna þýðingu eftir
fund hans og Brezhnevs, segir
The Times.
1 Pravda-greininni sagði
hann, að flokkarnir ættu að ná
yfirráðum og koma á „alræði
öreiganna“ með þvi að brjóta á
bak aftur, ef nauðsynlegt
Framhald á bls. 47.'
auðæfum sem lifsafkoma þeirra
byggist á, ef samkomulag næðist
ekki á hafréttarráðstefnunni.
Hann skoraði á þingið að auð-
velda störf ráðstefnunnar þannig
að henni gæti lokið á næsta ári
með samþykkt hafréttarsamn-
ings.
Frydenlund lýsti yfir stuðningi
við tillögur á ráðstefnunni um að
tveir fundir yrðu haldnir á næsta
ári til að ljúka nauðsynlegum
störfum. Hann viðurkenndi að
tveir slíkir fundir yrðu álag á
ýmsar sendinefndir en bað þær að
hugleiða hinn kostinn sem væri
sá að ráðstefnan færi út um þúf-
ur.
Hann benti á að 200 mílna efna-
hagslögsaga nyti viðtæks stuðn-
ings en sagði að alþjóðleg stjórn
yrði nauðsynleg sem fyrr til að
tryggja vernd fiskstofna og
tryggja það að heimurinn fengi
stöðugt eggjahvituefni úr sjónum.
8 f órust
Lissabon, 27. september.
Reuter.
ÁTTA flugmenn fórust þegar
flutningaflugvél portúgalska
flughersins af Noratles-gerð
steyptist til jarðar skömmu eftir
flugtak frá Tancos-flugstöðinni i
Mið-Portúgal að því er tilkynnt
var i dag. Eldur kom upp i einum
af þremur hreyflum flugvélar-
innar og vélin fórst þegar flug-
stjórinn reyndi að nauðlenda.