Morgunblaðið - 28.09.1975, Síða 28

Morgunblaðið - 28.09.1975, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1975 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Afgreiðslumaður Varahlutaverzlun óskar að ráða röskan afgreiðslumann sem fyrst. Umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun, og fyrri störf sendist afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir 3. október merkt: „Áreiðanlegur — 2330" Fólk vantar til margvislegra sveitastarfa. Matreiðsla, fjárhirðing, fjósamennska, símavarzla ofl. Upplýsingar gefur: Ráðningarstofa land- búnaðarins, sími 19200. Grindavík Háseta eða netamann vantar á m/b Hópsnes GK 77 sem er á veiðum með fiskitroll. Uppl. í síma 92-8240. Hjúkrunar- fræðingar Tveir hjúkrunarfræðingar óskast nú þegar að sjúkrahúsi Vestmannaeyja. Nánari uppl. veitir hjúkrunarframkvæmdastjóri — sími 1955. Stjórn sjúkrahúss og heilsugæslustöðvar Vestmannaeyja. Stýrimann vantar á Helgu RE 49 sem er á togveiðum. Uppl. um borð í bátnum vestur á Grandagarði, eða í síma 92-1 791 — 81720. Alliance fransaise Frönskunámskeið félagsins eru að hefjast. Kennt er í mörg- um flokkum fyrir byrjendur og lengra komna. Kennarar eru allir franskir. Væntanlegir nemendur komi til viðtals í Háskólanum föstudaginn 3. október kl. 18.1 5. Innritun og nánari upplýsingar í Franska bókasafninu, Laufásvegi 12, kl. 17 —19. Skrifstofustúlka Innflutningsfyrirtæki óskar að ráða skrif- stofustúlku sem fyrst.Tilboð sendist Mbl. merkt: „innflutningsfyrirtæki 2455". Skrifstofustúlka óskast Skrifstofustúlka óskast, verzlunarpróf eða hliðstæð menntun æskileg, ásamt vélrit- unarkunnáttu. Umsókn ásamt upplýsing- um um aldur, menntun og fyrri störf sendist augl.d. Mbl. fyrir 1. október n.k. merkt: 2335. Fulltrúastarf Innflutningsfyrirtæki, sem verzlar með hverskonar vélar og tæki, óskar eftir að ráða fulltrúa deildarstjóra i varahluta- deild. Umsækjendur verða að hafa lokið prófi úr verzlunarskóla eða hafa hliðstæða mennt- un, og vera á aldrinum 20—30 ára. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf strax. Umsóknir með upplýsingum um náms- og starfsferil óskast lagðar inn á af- greiðslu blaðsins fyrir 1. október, merktar „Fulltrúi — 2333". Ferðaskrifstofa Um og eftir næstu áramót óskum við eftir að ráða 1 —2 stúlkur á skrifstofu okkar. Aðeins stúlkur 25 ára eða eldri koma til greina. Menntun verzlunarskólapróf eða hliðstæð menntun. Nokkur málakunnátta nauðsynleg. Skriflegar umsóknir er greini frá aldri fyrri störfum og menntun sendist skrifstofu okkar fyrir 7. okt. merkt „Starf" FERDASKRIFST0FAN URVAL E imskipafélagshúsinu Reykjavík. Háskóli íslands óskar að ráða skrifstofustúlku nú þegar. Góð vélritunarkunnátta, og nokkur mála- kunnátta áskilin. Verzlunarpróf æskilegt. Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna. Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf, sendist skrifstofu Háskólans fyrir 5. okt. n.k. Grindavík Laust er starf á skrifstofu bæjarfógetans í Grindavík. Vinnutími frá kl. 12—17 alla virka daga nema laugardaga. Laun sam- kvæmt kjarasamningum opinberra starfs- manna. Umsóknum ásamt uppl. um menntun og fyrri störf skal skila til undir- ritaðs fyrir 1 5. október n.k. Bæjarfógetinn í Grindavík og Keflavík, sýslumaðurinn í Gullbringusýslu. Coca-Cola verksmiðjan Árbæjarhverfi Óskum eftir að ráða eftirtalið starfsfólk: 1 . Stúlku á lyftara, þarf að hafa bílpróf. 2. Mann á lager. 3. Stúlku í vélasal. Uppl. gefa verkstjórar í síma 82299. Sendiráð óskar eftir húsverði. Fyrir giftan húsvörð sem ekki hefur börn á heimilinu eru góð laun í boði ásamt nýtízkulegri íbúð. (íbúðin er aðeins fyrir barnlaus hjón). Verksviðið er m.a.: Sendistörf, eftirlit með sendiráðshúsi og garði, akstur og samkvæmt sérstökum samningi hreingerningar á skrifstofum og garðyrkjustörf. Gera þarf ráð fyrir óreglu- legum vinnutíma. Góð þekking á danskri eða enskri tungu er nauðsynleg. Svar með uppl. um aldur og núverandi starf sendist Mbl. merkt: Húsvörður — 2452. Logsuðu — Rafsuðumenn Vanir logsuðu og rafsuðumenn óskast nú þegar. Góð laun. fíuntalofnar, Síðumúla 2 7, sími 84244. Skrifstofustarf Hjá lögreglustjóraembættinu í Reykjavík er starf skrifstofustúlku laust til umsókn- ar. Góð vélritunarkunnátta nauðsynleg. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir, með upplýsingum um mennt- un og starfsferil sendist embættinu fyrir 1 0. október n.k. Lögreglustjórinn í fíeykjavík 23. september 1975. Bifvélavirki — móttaka viðskiptavina Stórt bílaverkstæði í Rvk. auglýsir eftir bifvélavirkja til móttöku viðskiptavina. Starfið krefst eftirfarandi: Góðrar enskukunnáttu. Góðrar rithandar og framkomu. Skipulagshæfileika. Umsækjandi þarf að geta sótt 2ja vikna undirbúningsnámskeið erlendis. Umsóknir merktar B-4977 þurfa að berast Mbl. fyrir 3.1 0'75. Lifandi starf Auglýsingastofa óskar að ráða stúlku eða ungan mann til starfa. Umsækjandi þarf að hafa góða grund- vallarmenntun t.d. Samvinnuskóla, Verzlunarskóla eða stúdentsmenntun. Menntunarform er þó ekki afgerandi atriði. Æskilegt er að viðkomandi sé hug- kvæmur og kunni að koma fyrir sig orði. Skilyrði er að hann sé áreiðanlegur og geti starfað sjálfstætt. Væntanlegur starfsmaður mun öðlast víðtæka raun- hæfa þekkingu á auglýsingastarfsemi. Umsóknir er tilgreini aldur menntun og fyrri störf, leggist inn á Mbl. fyrir hádegi þriðjudaginn 30. sept. merkt: „Starf — 6725".

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.