Morgunblaðið - 09.03.1976, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1976
11
verið að framleiða. A seinni
vertiðinni, sem hófst 6. október
og stóð til loka desember voru
aðeins framleidd um 30 þúsund
tonn af mjöli.
Versnandi veiðihorfur við
Perú hafa styrkt verðið á fisk-
mjöli, en á móti þvi vegur betri
uppskera á sojabaunum, maís
og hverskonar fóðurmjöli og
jurtaolíum í Bandaríkjunum,
Suður-Ameríku og víðar, en við
hafði verið búist.
Hinn geigvænlegi uppskeru-
brestur og fóðurskortur í
Sovjetrikjunum hefur auk inn-
kaupa á fóðurvörum frá Banda-
rikjunum verið leystur að veru-
legu leyti með fóðurvöru-
kaupum frá Brasilíu.
VIÐSKIPASAMN-
INGUR PÓLLANDS
OG
BRASILÍU
gagngerð endurskoðun á lögum
og reglum um sjóði sjávarút-
vegsins, innbyrðis samhengi
sjóðanna við skiptaverð og afla-
hlut áhafna.
S.l. vor skipaði sjávarútvegs-
ráðherra nefnd í þessu skyni. I
nefndinni eru 10 menn undir
forustu Jóns Sigurðssonar, hag-
rannsóknastjóra Þjóðhagsstofn-
unarinnar. Auk hans eru í
nefndinni 2 fulltrúar frá
hverju eftirtalinna félaga og
sambanda: Sjómannasambandi
Islands, Farmanna- og fiski-
mannasambandi Islands,
Landssambandi ísl. útvegs-
manna og einn fulltrúi frá
hverju eftirtalinna félaga:
Alþýðusambandi Vestfjarða,
Alþýðusambandi Austfjarða og
Félagi ísl. botnvörpuskipa-
eigenda.
Hinn 19. janúar 1976 skilaði
nefndin ítarlegu áliti.
1 framhaldi af þessum tillög-
um voru lögð fram á Alþingi í
byrjun febrúar þrjú stjórnar-
frumvörp, sem gera ráð fyrir að
fella úr gildi hið eldra sjóða-
kerfi fiskiskipa og setja nýtt í
staðinn.
Öll voru þessi frumvörp sam-
þykkt og hafa nú verið auglýst
sem lög og eru prentuð í
Stjórnartíðindum nr. 4, 5 og 6
1976.
Megin efni laga þessara er:
1. Lækkað er tillag í Stofn-
fjársjóð fiskiskipa, sem tekið er
af óskiptum afla úr 15% í 10%.
2. Utflutningsgjöld af loðnu-
afurðum lækka úr 17,9% í 6%
af fob-verðmæti. Einnig er
ákveðin lækkun á útflutnings-
gjaldi af öðrum sjávarafurðum
niður í 6%.
3. Gjald er sgtt á gasolíu og
brennsluolíu, s'em nemur kr.
1,33 á hvert kg og skal það
innheimt með aðflutningsgjöH-
um. Kemur þetta gjald í stað
söluskatts af gasolíu til fiski-
skipa, sem niður er felldur.
Tekjum af gjaldi þessu verður
varið til .niðurgreiðslu á olíu-
verði í sveitum og þorpum, sem
ekki hafa hitaveitu og til
greiðslu i orkusjóð.
Tekjur af útflutningsgjöld-
um þeim, sem ríkissjóður
innheimtir skiptast þannig:
NÝTT VERÐÁ
LOÐNU TIL BRÆÐSLU
A fundi yfirnefndar Verð-
lagsráðs sjávarútvegsins 29.
febr. s.l. var ákveðið eftirfar-
andi lágmarksverð á loðnu til
bræðslu eftirgreind tímabil á
loðnuvertíð 1976:
Framhald á bls. 26
1. Til Aflatryggingasjóðs %
a) Almenn deild................................................22
b) Ahafnadeild ................................................26
2. Til greiðslu á vátryggingakostnaði fiskiskipa, samkvæmt
regium sem sjávarútvegsráðuneytið setur........................27
3. Til Fiskveiðasjóðs íslands og Fiskimálasjóðs
a) Lánastarfsemi...............................................21
b) Styrkveitingar Fiskimálasjóðs .............................0.9
4. Til sjávarrannsóknaog Framleiðslueftirlits sjávarafurða,
skv. reglum sem sjávarútvegsráðuneytið setur..................2,3
5. Til Landssambands ísl. útvegsmanna .........................0,4
6. Til samtaka sjómanna skv. reglum, sem sjávar-
útvegsráðuneytið setur .............:..........................o,4
Samtals 100,0%
27.2. 1976
1 Firancial Time 26. febr.
1976 er skýrt frá upplýsingum
Reuters fréttastofunnar 25.
febrúar þess efnis að Pólland
og Brasílía hafi þann dag undir-
ritað 5 ára viðskipasamning.
Skv. samningnum á Brasilía að
láta Póllandi i té árlega 300.000
tonn af sojamjöli, 150.000 tonn
af sojabaunum og 500.000 tonn
af mais. Þessar og aðrar út-
flutningsvörur frá Brasiliu til
Póllands eiga skv. samningnum
að nema á þessu 5 ára timabili
1.6 milljarð doilara á hvora hlið
til ársloka 1980.
Brasilía selur sisal-hamp,
castorolíu, kakao, kakaosmjör
og hnetukjarna, hrísgrjón, fros-
ið kjöt og frystan appelsínu-
safa. 1 staðinn flytur Pólland út
til Brasiliu brennistein, áburð
og ýmiskonar efni til lyfja-
gerðar í Brasiliu.
I dreifibréfi FlF Nr. 12/1975
er grein um Brasiliu og fleiri
lönd i S-Afmeriku, sem keppi-
nauta á feitmetismörkuðum.
26. febr. 1976
ÓÐAVERÐBÓLGAN
OG SJÁVARÚT-
VEGURINN
1 ályktun, sem síðasta Fiski-
þing samþykkti í einu hljóði
siðast í nóvember 1975, segir
svo m. a.:
„Hinar gífurlegu fram-
kvæmdir á vegum hins opin-
bera siðustu þrjú árin, sem
margar hverjar eru óarðbærar,
hafa verið mjög verðbólgu-
aukandi. Einnig hafa yfirboð í
kaupgjaldsmáium hjá ríkinu
sjálfu, miklar og harðar fram-
kvæmdir á vegum þess, stuðlað
að hinu sama.
Vrnsar stofnanir rikisins
greiða hærra kaup en almennt
gerist auk margvíslegra hlunn-
inda, sem þær veita starfs-
mönnum sinum í hverskonar
fríðindum, sem undirstöðuat-
vinnuvegirnir ekki megna að
bjóða starfsfólki sinu.“
Sjálfstæðisflokkurinn og
Alþýðubandalagið urðu sigur-
vegarar í kosningunum. Ný
stjórn var mynduð í ágústlok
1974 af Sjálfstæðisflokki og
Framsóknarflokki. Tók hún við
miklum vanda i efnahags- og
utanríkismálum og hruni
flestra fiskstofna vegna ofveiði.
Þessi vandamál er stjórnin að
glima við. Það er ósk yfir-
gnæfandi meirihluta þjóðarinn-
ar, að stjórninni auðnist að
leysa giftusamlega þann marg-
þætta vanda, sem nú steðjar að.
Framtíð þjóðarinnar veltur á
því, að ekki sé rasað fyrir ráð
fram.
28.2.1976
BREYTINGAR Á
SJÓÐAKERFI
SJAVARUTVEGSINS
A undanförnum árum hefur
verið sívaxandi óánægja með
sjóðakerfi fiskiskipaflotans.
Við gerð samninga um kaup
og kjör sjómanna á bátaflotan-
um í marzmánuði 1975 fóru
samninganefndir sjómanna og
útgerðarmanna fram á það við
ríkisstjórnina að fram færi
Á skiöum
í hlíóum Alpafjalla
Eins og síöastliöinn vetur bjóöum viö nú viku og
tveggja vikna skíðaferðir til Kitzbuhel og St. Anton
í Austurriki á veröi frá 41.700 og 50.600 krónum.
( Kitzbuhel og St. Anton eru jafnt brekkur fyrir
byrjendur, sem þá bestu. Þar er veriö á skíöum í
sól og góöu veöri allan daginn, og þegar heim er
komið, bíöur gufubaö og hvíld, góöur kvöldmatur og
rólegt kvöld viö arineld, - eöa upplyfting á
skemmtistað ef fólk vill heldur.
Morguninn eftir, snemma, er stigiö á skíöin og
haldið beint upp í brekkur - svona gengur þetta
dag eftir dag eftir dag, meöan á dvölinni stendur.
Sem sagt, dýröleg dvöl í alþjóðlegu andrúmslofti
með fullkomnu ”apré ski".
Þeir sem velja tveggja vikna feröir, geta dvalið
viku á hvorum staö ef þeir kjósa heldur.
Skíöafólk leitió upplýsinga hjá söluskrifstofum
okkar, ferðaskrifstofunum og umboösmönnum.
flugfélag L0FTLEIDIR
ISLAJVDS