Morgunblaðið - 22.08.1976, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.08.1976, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. AGUST 1976 Smyrill með 95 farþega til Seyðisfjarðar í gær Seyðisfirði 21. ágúst. SMYRILL kom til Seyðisfjarðar f dag með 95 farþega og 17 bfla. Voru það mest Íslendingar á heimleið sem með skipinu komu. Með Smyrli fóru 215 farþegar og 57 bflar. Þetta eru færri farþegar en verið hafa með skipinu f und- anförnum ferðum. Sfðasta ferð skipsins f sumar verður farin 11. september. Verið er að leggja olíumöl á nokkrar götur f bænum núna, en fyrir nokkrum árum var lagt á helztu umferðargötur f bænum, og er unnið að endurbótum á þeim götum. jafnframt þvf sem lagt er á aðrar götur. Sveinn. Valur og IR mætast í úrslitaleik útimótsins ORSLITALEIKIR f útimótinu f handknattleik fara fram við Aust- urbæjarskólann f dag og það verða Valur og IR, sem leika til úrslita f meistaraflokki karla. 1 fyrrakvöld léku Valsmenn gegn FH og var þar um mikla baráttu að ræða. t leikhléi var jafnt, 10:10, og allan seinni hálfleikinn skiptust liðin á að hafa forystuna, sem mest varð þó tvö mörk. Valur var tveimur mörkum yfir þegar nokkrar mfnútur voru eftir, en FH-ingum tókst að jafna 22:22 nokkrum sekúndum fyrir leiks- lok. Það dugði FH-ingum þó skammt þvf þó liðin yrðu jöfn að stigum þá var markatala Vals- manna hagstæðari. ÍR-ingar unnu Hauka 13:11 i fyrrakvöld og tryggðu iR-ingar sér þannig sigur f riðlinum. Is- landsmeistararnir í útihandknatt- leik í fyrra, Víkingur, sigraði síð- an lið Gróttu 21:14 og leika Vík- ingarnir um þriðja sætið f mótinu í dag gegn FH-ingum. Leikur þeirra hefst klukkan 14, sfðan leika FH og Valur til úrslita í meistaraflokki kvenna og loks hefst svo úrslitaleikurinn í mfl. karla um klukkan 16.15. Verklegar framkvæmdir fyrir 152 milljónir kr. Stykkishólmi, 10. ágúst — REIKNING AR Stykkishólms- hrepps fyrir árið 1975 voru ný- lega samþykktir af hreppsnefnd. Samkvæmt þeim voru helztu út- gjaldaliðir hreppsins sveitar- stjórn 3 millj., heilbrigðis og tryggingarmál 6,2 millj., fræðslu- mál 8,5 millj. Rekstrarútgjöld fóru ekki nema 13% fram úr áætlun og má það heita gott á þessum verðbólgutfmum. Á árinu voru verklegar fram- kvæmdir i Stykkishólmi 152 millj. Stærstu liðir félagsheimili og hót- el 70 millj., hafnargerð 40 millj., gatnagerð 23 millj., leiguíbúðir og verkamanna 7 millj., íþróttavöll- Vitni vantar ur 6 millj. Á fjárhagsáætlun fyrir árið 1976 er áætlað að verja til gatnagerðar 28 millj., hafnargerð- ar og vatnsveitu 13 millj. leigu- fbúða og verkam. 40 millj. og fé- lagsheimili og hótel 35 millj. Ut- svör eru rúmar 51 millj., aðstöðu- gjöld rúmar 8 millj. Hæstu út- svarsgreiðendur eru Stefán Sig- urkarlsson lyfsali 457 þús. Pálmi Frfmannsson héraðslæknir 416 þúsund, Klæmint Antoniusson tannlæknir 402 þúsund. Fyrir- tæki Sig. Ágústssonar greiðir hæst aðstöðugjald 1280 þúsund. Félagsheimilinu var að mestu lok- ið á þessu ári, en eftir er 'að ljúka innréttingum hótels og standa vonir til að fyrirgreiðsla fáist hjá þeim sjóðum sem lána eiga til ferðamála, svo hægt sé að ná því Framhald á bls. 43 Ljósm. Friðþjófur. Svipmynd frá rigningarsumri SLYSARANNSÖKNADEILD lög- reglunnar hefur beðið Mbl. að auglýsa eftir vitnum að ákeyrslu, sem varð aðfaranótt 18. ágúst s.l. Þá var ekið á bifreiðina R-19546, sem er grá Volkswagenbifreið, þar sem hún stóð fyrir framan Háaleitisbraut 17. Bifreiðin dæld- aðist hægra megin. Talið er lík- legt að blárri bifreið með topp- grindarboga á þaki hafi verið bakkað á bifreiðina. Þeir sem upplýsingar geta veitt f málinu eru beðnir að snúa sér til slysa- rannsóknadeildarinnar. Skattstjórinn í Reykjaiieskjördæmi: Fleiri kærur vegna viðhalds fasteigna Áttugasta leikár Leikfélags Reykjavfkur er nú að hefjast. I gær komu saman f Iðnó leikarar féagsins og starfsfólk til þess að undirbúa leikárið. SAMKVÆMT upplýsingum Reykjaneskjördæmi munu hafa Sveins Þórðarsonar skattstjóra f borizt um 1700 til 1800 skattakær- ur til embættisins, en alls eru framtöl f umdæminu um 20 þús- und. Er þetta mjög áþekkur fjöldi og borizt hefur undanfarin ár að sögn skattstjórans — þó munu þær vera eitthvað fleiri en vant er. Sveinn Þórðarson sagði að það sem fjölgaði kærunum nú væri viðhaldskostnaður fasteigna. Áð- ur fyrr var frádráttur vegna við- halds prósenta af fasteignamati, en nú er viðhaldið samkvæmt reikningum. Sagði Sveinn að þegar svo væri, yrði þessi frá- dráttarliður eilíft ágreiningsefni — hvað skuli teljast viðhald og hvað endurbætur. Hefur þetta heldur fjölgað kærunum. Þá sagði skattstjórinn að f Hafnarfirði og Kópavogi hefðu verið umfangsmiklar hitaveitu- framkvæmdir og kvað hann menn hafa haft tilhneigingu að ein- hverju leyti til þess að setja út- gjöld sín þess vegna undir við- haldskostnað og hefur það leitt af sér bréfaskriftir og kærumál. Enn kvað hann kærur vera að berast, en þær væru auðvitað of seint Framhald á bls. 43 Alvarlegt umferðar- slys 1 Kópavogi ALVARLEGT umferðarslys varð f Kópavogi snemma f gærmorgun. 23 ára gamall maður varð fyrir bfl á Nýbýlavegi. Hann höfuð- kúpubrotnaði og hlaut innvortis meiðsli og Iiggur nú á gjörgæzlu- deild Borgarspftalans og er ekki talinn vera úr lffshættu. Maðurinn er hljómlistarmaður og var hann á leið heim til sin á sjötta tímanum í gærmorgun eftir að hafa verið að spila úti á landi. Var hann á Nýbýlavegi og ætlaði yfir götuna niður i Furugrund. Kom þá fólksbfll aðvífandi og lenti maðurinn fyrir honum. Hann var strax fluttur á slysa- varðstofuna, þar sem gerð var á honum mikil aðgerð. Mikil berja- spretta og góð tíð í Fáskrúðsfirði Fáskrúðsfirði, 21 ágúst. TlÐ hefur verið með eindæmum góð hér í sumar og í dag er hér glampandi sól og hiti. Smærri bát- ar hafa aflað vel að undanförnu og næg vinna er á staðnum. Bændur hafa velflestir lokið hey- skap og notið góðviðrisins við þau störf. Berjaspretta hér um slóðir er með mesta móti og krækiberin sem hér vaxa einkum stór og mik- il. Albert. Ræða sjónvarps- samvinnu um gerfihnetti HINN 24. ágúst hefst í Reykjavík fundur norrænna ráðuneytis- stjóra og munu þeir fjalla um það hvernig unnt verði að nota gervi- hnetti og þá möguleika, sem þeir veita í þágu sjónvarpssamvinnu Norðurlanda. Fyrir íslands hönd situr þennan fund Birgir Thorl- acius, ráðuneytisstjóri í mennta- málaráðuneytinu. Tregt á loðnunni 1 GÆRMORGUN vissi loðnu- nefnd um afla fjögurra loðnu- báta, sem voru á leið til lands. Þeir voru Asgeir með 280 tonn og Gfsli Arni með 430 tonn og ætluðu þessir bátar-með aflann til Siglufjarðar. Hilmir var með 250 tonn og Ásberg með sama afla. Þessi skip ætluðu til Reykja- vfkur með sinn afla. Veiðisvæði bátanna var f gær um 120 mflur f norðvestur af Siglunesi og allt vestur að svæði norðaustan við Straumnes. Effie Briest — mánudagsmynd HÁSKÓLABtÓ sýnir nú á mánu- dögum kvikmyndina Effie Briest, sem gerð er af Þjóðverjanum R.W. Fassbinder, sem nú er með- al þekktustu leikstjóra Þjóðverja. Hefur hann stjórnað hvorki meira né minna en 25 kvikmynd- um, þótt hann sé aðeins 40 ára. Kvikmyndin fjallar um gifta konu, sem fær leið á tilbreytinga- lausu hjónalifi og tekur sér friðil. Maður hennar kemst ekki að þessu fyrr en eftir 6 ár og drepur þá kokkálinn f einvígi, en rekur konuna út á gaddinn. í banaleg- unni játar hún að hafa uppskorið svo sem hún hafi verðskuldað. Effie Briest er gerð eftir skáld- sögu Theodore Fontane, sem var Þjóðverji og uppi á árunum 1819—98.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.