Morgunblaðið - 03.10.1976, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. OKTÖBER 1976
47
Þar sem fagmennirnir verzla,
er yóur óhætt
BYGGINGAVÖRUVERZLUN BYKO
KÓPAVOGS SF
NÝBÝLAVEGI 8 SÍMI:41000
Eldur borinn f Ofanleiti. Mennirnir standa á fiugbrautinni, sem
var svo gott sem kominn að húsinu.
SAfel
Gamalt hús undir fallhamri tæknivæðingarinnar. Heimaklettur f
fjarska.
var lausn fremur en önnur, hann
minnti stöðugt á að fordómar voru
verstu óvinir mannlegs vits og
þroska og svo kenndi hann okkur
einnig prakkarastrik I góðu. Þann-
ig var bóka og vinnuherbergi
hans veröld vfðsýni, og smá-
smuguháttur var ekki til f fasi hins
brosmilda og ástsæla klerks.
Séra Halldór húsvitjaði oft og
venjulega kom hann með ákveðnu
Framhald á bls. 36
horfid
spekingur og gamansamur mjög,
orti mikið af sálmum og talaði 1 5
tungumál reiprennandi. Við
peyjarnir sem ólumst upp fyrir
ofan hraun, komum oft til hans og
það var alltaf jafn undarlegt að
skjótast úr heimi ærsla og ævin-
týra Ofanbyggjarapeyja og inn f
heim alvarlegustu umræðna við
klerkinn á Ofanleiti. Hann ræddi
við okkur um skáldskap, um
stjómmál þar sem engin kenning
Prestssetrid Ofan-
leiti í Eyjum rifið
PRESTSSETRIÐ að Ofanleiti í
Vestmannaeyjum var rifið til
grunna f sfðustu viku, en prestur
hafði ekki búið þar síðan 1961 er
séra Halldór heitinn Kolbeins lét
af preststörfum. Prestssetur hefur
verið fyrir Ofan hraun í Vest-
mannaeyjum allt síðan um árið
1000. Húsið serrt nú er búið að
rífa var þrílyft steinhús, byggt árið
1927. Húsið stóð á Ofanleitis
hrauni á svæði Ofanbyggjara og
gnæfði mót vestri, hafi og fjöllum.
Þegar séra Halldór lét af störfum
tók séra Þorsteinn L. Jónsson við
af honum en hann settist að í
kaupstaðnum og Ofanleiti var selt
Flugmálastjórn, því húsið þótti
standa of nærri flugbrautinni. Síð-
an 1961 hafa ýmsir búið á gamla
prestssetrinu, en sfðast bjó þar
Árni Óli Ólafsson frá Suðurgarði
ásamt fjölskyldu sinni.
Það er eins með hús og skip, um
hvorttveggja talar fólk oft eins og
lifandi verur og fólk getur átt
sterkar tilfinningar bæði til skipa
og húsa. Ekkert tæki er eins mikill
hluti af manninum og skip og hús
geta orðið beztu vinir þeirra sem
þau hýsa og jafnvel þeirra sem
aðeins ganga hjá. Mörgum þótti
sárt að sjá prestssetrið rifið til
grunna, manneskjulegt hús þar
sem mikil tilþrif höfðu átt sér
stað, hús sem hafði hýst bragð-
mikið fólk, skáld, heimspekinga,
mæta klerka, og þessu húsi fylgdi
reisn þess sem hugsar of horfir
hátt. En tæknivæðingin læturekki
að sér hæða. Þaðan sem fyrrum sá
til hins vfða suðurs úr gluggum
Ofanleitis, blasti síðustu ár við
snarbrattur malarkambur flugvall-
arins sem teygður hefur verið
óþarflega langt til vesturs aðeins
af því að það var nóg til af efni
eftir gosið 1973. 100 metrum
styttri var flugvöllurinn fyllilega
nógu langur og þá* hefði Ofanleiti
getað staðið með reisn sinni til
nota fyrir einhvers konar félags-
starfsemi. Á þessum sfðustu
hundrað metrum grófust einnig
undir flugbrautarendann gamli
kirkjugarðurinn á Stöðli og sfðasta
bæjargarðshleðslan sem til var f
Vestmannaeyjum, grjótgarðurinn f
kring um Svaðkot. Ef til vill munu
menn einhvern tfma f framtfðinni
sýna fornum minjum þá virðingu
og framtak að snara flugvallarend-
anum burtu og leyfa Svaðkots-
garðinum að blasa við.
Eldur var borinn í prestssetrið
og ekki leið á löngu þar til innviðir
þess fóru að stynja með braki og
brestum. Siðan voru stórvirk tæki
sett á húsið sem kvarnaðist smátt
og smátt niður. Manneskjulegt
hús lét undan tæknikrafti, gamlar
minningar hússins voru bornar út.
Sfðustu 150 árin sátu 6 prestar
á Ofanleiti. Séra Jón Austmann
sat þar frá 1827 til 1858, en
kunnar eru sóknarlýsingar hans.
Brynjólfur Jónsson sat þar frá
1860-1884, en hann hafði verið
settur prestur þar 2 ár fyrir 1860
og aðstoðarprestur séra Jóns var
hann frá 1852. Séra Brynjólfur
stóð m.a. að stofnun bókasafnsins
f Eyjum og stofnun Bátaábyrgðar-
félags Vestmannaeyja. Á eftir
honum var prestur á Ofanleiti séra
Stefán Thordesen frá frá 1 884 til
1889. Þá kom séra Oddgeir Guð-
mundsson 1889 til 1924 er séra
Sigurjón Þ. Árnason gerðist Ofan-
byggjari og gegndi embætti þar til
séra Halldór kom til Eyja 1 945.
Séra Halldór var stórmenni og
með jákvæðari mönnum sem
hægt var að hitta. Hann var heim-
Gólfdúkurinn irá
Þar sem mikið er gengið, hef-
ur BYKO jafnan gólfklæðninguna,
sem endist bezt. Þar sem minna geng-
ur á, hefur BYKO það, sem ódýrast
er. Hverju, sem þú stefnir að, hefur
BYKO það rétta undir iljarnar, gólf-
dúka eða flísar, fjölbreytt úrval efnis
og lita.
Prestsetrið Ofanleiti, fyrir
nokkrum árum. Þar sem
mennirnir eru á gangi var
gamli kirkjugarðurinn,
Stöðuil og lengst til vinstri á
myndinni sést gamla Svað-
kotsgrjótgarðinn en bæði
grjótgarðurinn og Stöðull-
inn hvfla nú undir vestur-
enda flugbrautarinnar, sem
gnæfir þarna á háeynni eins
og einhver misskilningur f
landinu. Ljósm.vndir JMbl.
Sigurgeir f Eyjum.
Hús með reisn